Læknablaðið - 15.09.2004, Page 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILSUFAR LÆKNA / T Ó BAKSVAR NI R
búsetu í þéttbýli eða dreifbýli. Loks verður eitt verk-
efni boðið 3. árs nema í læknisfræði en það snýst um
heilsufar, líðan og lífsstíl lækna á íslandi. Stefnt er að
því að halda málþing haustið 2005 þar sem fyrstu nið-
urstöður rannsóknarinnar verða kynntar.
Kröfurnar minnka ekki
En hvers vegna þarf að rannsaka heilsu lækna? Eru
þeir ekki fullfærir um að passa upp á hana sjálfir?
„Erlendar rannsóknir og eldri íslenskar rannsókn-
ir hafa sýnt að svo virðist ekki vera. Til dæmis kom
fram í einni þeirra að dánartíðni lækna var hærri en
annarra starfsstétta hér á landi. Svíar hafa tekið eftir
því að fjarvistir kvenkyns lækna hafa aukist verulega
á síðustu árum, bæði vegna veikinda og eins vegna
þess að þær hætta snemma að vinna og fara á eftir-
laun. Menn spyrja sig því hvort vinnuskipulag eigi
einhvern þátt í þessu,“ segir Lilja.
Þær nefna einnig til sögu breytt viðhorf og sjálfs-
mynd lækna þar sem yngra fólk í læknastétt sætti sig
ekki við óhóflegan vinnutíma sem hefur viljað ein-
kenna læknisstarfið. Þorgerður segir að kröfurnar séu
ekki að minnka því uppbygging háskólasjúkrahúsa
hafi hert á kröfunum. Það er ekki nóg að standa sig í
klínísku starfi heldur þarf líka að sýna lit í rannsókn-
um og kennslu.
Lilja bendir á að rannsóknin nú sé að hluta hlið-
stæð þeirri sem áður var gerð á Landspítalanum en
þar hafi mismunur í vinnuálagi iækna á milli deilda
verið allnokkur. „Nú verður spennandi að sjá hvort
þetta er séríslenskt fyrirbæri eða hvort þetta er ein-
kenni á tilteknum tegundum deilda. Af því má eflaust
læra sitthvað um skipulag vinnunnar,“ segir hún.
Þær eru sammála um að það verði forvitnilegt að
bera saman þessi fjögur sjúkrahús. Ólöf nefnir eink-
um samanburð við sjúkrahúsið í Þrándheimi sem er
af svipaðri stærð og Landspítali. „Það verður líka
spennandi að sjá hvaða rnunur er á líðan og starfsum-
hverfi lækna á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum
hér á landi og milli þeirra sem starfa á landsbyggð-
inni, í þéttbýlinu og þeirra sem starfa sjálfstætt á eig-
in stofu,“ segir hún. „En það er mjög mikilvægt að
hvetja alla lækna til að sýna þessu framtaki áhuga
með þátttöku því rannsóknin er háð því að þátttaka
sé góð.“
Reykingar eru líka okkar mál!
LOFT ráðstefna í Hveragerði 16.-17. september
Það er fátt eitt orðið sem ekki kemur á borð okkar
læknanna. Nú þegar ljóst er að stærstu heilbrigðis-
vandamál okkar tíma snúast meðal annars um nautn-
ir eins og tóbaksreykingar og ofát verður okkur fag-
fólkinu kannski fátt um svör þegar til okkar er leitað.
Okkar annars ágæti læknaskóli hefur undirbúið okk-
ur misvel til að takast á við þessa vá. Við höfum áreið-
anlega öll komist að því að fyrirlestur og skynsemistal
er ekki það sem dugar þegar kemur að þessum vanda.
Það gerir skyldur okkar sjálfra meiri til að nálgast
menntun, þekkingu og reynslu til að sinna honum.
Afleiðingar tóbaksreykinga eru tíundaðar reglu-
lega og æ fieiri rannsóknir sýna okkur þann gríðarlega
þátt sem þær eiga í orsökum hjartasjúkdóma, krabba-
meina, æðasjúkdóma, ótímabærra dauðsfalla og svo
framvegis. Á þessu leikur enginn vafi. Tölurnar sem
birtar eru virðast stundum fjarstæðukenndar, eins og
sáust í BMJ 23. júní 2004: Breskir læknar sem fæddir
voru 1900-1930 og reyktu mestan hluta ævinnar, dóu
að meðaltali 10 árum yngri en þeir sem aldrei höfðu
reykt! Og 5000 karlmönnum sem fylgt var eftir í 20 ár,
fengu 50-60% aukningu á kransæðasjúkdómum við
óbeinar reykingar!
Starfsorka okkar fer oft á tíðum í að sinna afleið-
ingum reykinga enda erum við þjálfuð til þess. Reyk-
ingavarnir eru hins vegar á öllum stigum, forvarnir,
meðferðir, minnka skaðann, sinna afleiðingum. Okk-
ar hlutverk sent lækna að sinna ásamt öðrum, for-
vörnum og meðferð, er að stækka. Tóbaksreykingar
snúast um nikótínfíkn sem gerir það að verkum að
meðferð við þeim þarf einnig að beinast að fíkninni.
Sérhæfðar meðferðir eru til og sömuleiðis almenn
inngrip sem hvoru tveggja sýna árangur.
Það gefast tækifæri til fræðast um tóbaksvarn-
ir sem vert er að nýta sér enda koma skuggahliðar
tóbaksreykinga á borð okkar allra, sama í hvaða sér-
grein við störfum. Ótal fletir eru á þessum víðfeðma
vanda og enn er langt í land með að finna eina góða
lausn á honum. Þangað til er mikilvægt að kynna sér
það sem fræðin getur kennt okkur og hlusta á hvað
aðrir hafa um þetta að segja og leggja eitthvað til mál-
anna sjálfur.
Valgerður
Rúnarsdóttir
Ég skrifa þennan pistil sem stjórnarmeðlimur í Fé-
lagi lækna gegn tóbaki til þess að vekja athygli á ráð-
stefnu um tóbaksvarnir á Islandi sem haldin verður
í Hveragerði 16.-17. september 2004. Þetta er þriðja
LOFT ráðstefnan sem haldin hefur verið og er í um-
sjón Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði. Hún er ætl-
uð heilbrigðisstarfsfólki sem og áhugamönnum um
tóbaksvarnir.
Vefslóðin er www.hnlfi.is/loft2004/
Höfundur er sérfræðingur í lyf-
lækningum og fíknlækningum
og starfar hjá SÁÁ.
Læknablaðið 2004/90 651