Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2005, Page 33

Læknablaðið - 15.03.2005, Page 33
ÞI N G SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA 15:55-17:30 Erindi 30-32 - Fundarstjórar: Tryggvi Stefánsson, Porvaldur Ingvarsson 15:55-16:10 Pulmonary Sequestration and its Range of Symptoms. A Review of 8 Surgically Treated Cases - Andreas Pikwer 16:10-16:25 Aðgerðir vegna ristilkrabbameins á Landspítala 1994-1998 - Hrafnhildur Stefánsdóttir 16:25-16:40 Úrnám bugaristils með aðstoð kviðsjár á Landspítala 1999-2003 - Fjalar Elvarsson Veggspjöld 1 og 2 Þróun hvekkaðgerða á FSA 1992-2002 - Valur Þór Marteinsson Arangur nýranámsaðgerða með kviðsjártækni og aðstoð handar - Valur Þór Marteinsson, Hafsteinn Guðjónsson, Sigurður M. Albertsson 19:30 Hátíðarkvöldverður Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands á hótel Nordica Kœru félagar, kollegar, gestir og stuðningsaðilar Það er ánægjulegt að kynna enn eitt sameiginlegt ársþing Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Islands 2005. Ársþingið 2004 var okkar fyrsta sameiginlega þing þar sem dagskrá stóð í tvo heila daga. Fannst okkur sem að þessu stóðum fyrirkomulagið takast einstaklega vel. Dagskráin í ár samanstendur af tveimur. mál- þingum og frjálsum erindum. Uppistaða þingsins eins og undanfarin ár eru frjáls erindi. í fyrra var það áberandi hversu yngri kollegar og verðandi kollegar stóðu sig geysilega vel með vel unnin verk- efni og skýran og góðan flutning. Frjálsu erindin verða flutt eftir hádegi báða dagana. Þingið hefst á föstudagsmorgni með spennandi málþingi um gervilíffæri. Eftir því sem þróun í gjörgæslu- og skurðlækningum fleygir fram hafa möguleikar til að meðhöndla ýmsar líffærabilanir stóraukist. Þessi hátæknimeðferð krefst mikillar samvinnu mismunandi sérgreina. Á laugardagsmorgni er annað spennandi mál- þing um grindarbotnsvandamál sem eru algeng hjá konum sem fætt hafa börn. Einkennin geta verið margvísleg, til dæmis þvagleki, einkenni um líffæra- sig auk hægðatregðu og/eða hægðaleka. Sumar konur hafa haft einkenni svo árum skiptir og ekki fengið lausn sinna mála þrátt fyrir endurteknar heimsóknir til lækna. Flókin grindarbotnsvanda- mál þarf oft að nálgast með samvinnu margra sér- greina eða teymisvinnu til þess að góður árangur náist. Þetta málþing fjallar um teymisvinnu í grein- ingu og meðferð grindarbotnsvandamála. Efni þessara tveggja málþinga undirstrikar hversu þverfagleg samvinna er mikilvæg við lausn flókinna vandmála í nútímalæknisfræði. Þinginu lýkur á laugardagskvöld með skemmti- legum kvöldverði á hótel Nordica. Hefst hann klukkan 19:30 með fordrykk við undirleik strengja- kvartetts. Undir borðhaldi mun landsfrægur skemmtikraftur skemmta gestum. Fyrir hönd Skurðlæknafélags Islands og Svæf- inga- og gjörgæslulæknafélags íslands viljum við enn og aftur þakka öllum þeim fyrirtækjum sem styrkt hafa ársþing okkar í gegnum tíðina. Sam- skipti og tengsl okkar við þessi fyrirtæki með vísindi, fræðslu og kynningu að markmiði eru og munu alltaf vera mikilvæg og nauðsynleg. Felix Valsson Helgi H. Sigurðsson Stjórn Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands Stjórn Skurðlæknafélags íslands Felix Valsson formaður Helgi H. Sigurðsson formaður Svein Geir Einarsson varaformaður Fritz H. Berndsen gjaldkeri Sigurbergur Kárason gjaldkeri Hjörtur G. Gíslason ritari María Sigurðardóttir ritari Læknablaðið 2005/91 257

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.