Læknablaðið - 15.03.2005, Qupperneq 68
UMRÆÐA & FRÉTTIR / OPIÐ AÐGENGI
þann fjölda tilvitnana sem verður til vegna aðgeng-
is að einstakri grein í stað sérstaks tímarits „Open
Access Initiative Statement" eða OAIS. Þar með
liggur fyrir formlegur vilji stofnana til að varðveita
vísindaskrif, birta þau og veita ókeypis aðgang að
þeim. Þar með ber stofnunin ábyrgð á vísindaefni
sínu.
Hvað þarf til að opinn aðgangur verði að veru-
leika?
• Virk þátttaka höfunda er mikilvœg
Höfundar hafa haft áhyggjur af því að fá ekki
birtar greinar í virtum tímaritum ef þeir hafa birt
greinar sínar áður í O A-tímaritum, hjá sinni stofnun
eða á netinu. Hættan er hverfandi því flestir útgef-
endur hafa viðurkennt rétt höfunda til að birta grein-
ar sínar áður en þær eru gefnar út hjá þeim. Þessi
vandi er þó enn til staðar hjá um 10% útgefenda.
Höfundar verða að hugleiða hvernig þeir muni
nota viðkomandi grein. Þeir ættu að hafa í huga
þau not sem stofnunin sem þeir vinna hjá á eftir að
hafa af verkum þeirra. Það er höfundum í hag að
sem flestir lesi verk þeirra.
• Breytt fjármögnun
Þeir sem fjármagna rannsóknir eiga að greiða
fyrir útgáfuna og verða að skilyrða að vísindamenn
sem hljóta styrki birti greinarnar með opnum
aðgangi. Hluti af styrknum gæti farið í að greiða
fyrir útgáfuna eða að þeir sem veita styrki verji
hluta af fénu til þess að gefa út vísindagreinarnar.
Seinni leiðin er talin betri þar sem annars er hætta
á að höfundar velji frekar að birta greinar hjá hefð-
bundnum útgefendum því þar þurfa þeir ekki að
greiða fyrir birtingu.
• Skýrar reglur hvernig framkvœmd verður háttað
Allar vísindastofnanir setji á laggirnar varð-
veislusafn, annars muni þetta ekki heppnast.
Erlendis hefur mikil umræða farið fram varð-
andi OA og OAI. Ýmsir hópar og félagasamtök
hafa samþykkt yfirlýsingar sem styðja OA og OAI.
Fyrir utan Budapest yfirlýsinguna má þar nefna:
Bethesda yfirlýsinguna í Bandaríkjunum árið 2003
(15), Berlínar yfirlýsinguna, 2003 (16) og Wellcome
Trust yfirlýsinguna frá Bretlandi. (17).
Hér á landi hefur lítið verið fjallað um opinn
aðgang innan heilbrigðisgeirans. í tengslum við
Vísindi á vordögum á Landspítala 12. maí verð-
ur haldið málþing um opinn aðgang með þátt-
töku innlendra vísindamanna og erlendra OA
útgefenda. Vonandi verður málþingið kveikja að
umfjöllun um málefnið.
Heimildir
1. Orsdel L. Scholarly Reformation: Scholarly Joumals in a
Changing Marketplace. NVBFs 6th Nordic Interlending Con-
ference, Trondheim 2004.
2. Tenopir C, King D. Lesson for the future of journals: Science
journals can continue to thrive because they provide major
benefits. Nature 2001; 413: 672-4.
3. Gibson I. Overview of the inquiry of the House of Commons
Science and Technology Committee into Scientific Publica-
tions. In: Scientific Publications: Free for all?; The Geological
Society, London; 2004.
4. Okerson A. Reflection from the USA. In: Scientific Publica-
tions: Free for all?; The Geological Society, London; 2004.
5. Commons Ho. House of Commons Science and Technology
Committee Tenth Report of Session 2003-04. In: Scientific
Publications: Free for all? (HC399-1).
6. Look H. Open access: look both ways before crossing. Serials
2004; 17: 217-23.
7. Bhattacharya S. UK govemment obstructing open-access pub-
lishing. In: New Scientist.com news service: Reed Business;
2004.
8. Renn J. Towards a Web of Culture and Science. In: The Inter-
national CODATA conference. Berlin.
9. OECD. Science, Technology and Innovation for the 21st
Century. Meeting of the OECD Committee for Scientific and
Technological Policy at Ministerial Level, 29-30 January 2004
-Final Communique. www.oecd.org/document
10. Forsætisráðuneytið. Vísinda- og tæknistefna. In: tækniráð V-o,
editor.: Forsætisráðuneytið; 2004.
11. Bowker RR. Ulrich‘s Serials Analysis System. 2004;
www.ulrichsweb.com/ulrichsweb/analysis/
12. Libraries LU. DOAJ Directory of Open Access Journals.
2004, www.doaj.org
13. BioMedCentral. Open Access journals proven to compete on
quality. 2004 www.biomedcentral.com/info/about/pr-releases
14. Pinfield S. Institutional repositories and the SHERPA pro-
ject. In: Scientific Publications: Free for all?; The Geological
Society, London; 2004.
15. Bethesda Statement on Open Access Publishing. In: Meeting
on Open Access Publishing; Howard Hughes Medical Institute
in Chevy Chase, Maryland.; 2003.
16. Berlin Declaration on Open Access to Knowledge in the
Sciences and Humanities. In: Conference on Open Access to
Knowledge in the Sciences and Humanities; Berlin; 2003.
17. Wellcome Trust. Scientific publishing: A position statement by
the Welcome Trust in support of open access publishing.
18. SHERPA. News - SHERPA. 2004 www.sherpa.ac.uk/news/
292 Læknablaðið 2005/91