Læknablaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ELDRI LÆKNAR
Þessa mynd tók Björk
Ingvarsdóttir í haustferð
Öldungadeildar að stuðla-
bergsnámum í Hruna-
mannahreppi.
Öldungadeild
Læknafélags íslands
Védís Skarp-
héðinsdóttir
Ásmundur Brekkan, Ólafur Sveinsson, Páll Sigurðsson
og Hrafn Tulinius.
Öldungadeild Læknafélags íslands var stofnuð
7. maí 1994 og fyllir því ríflega áratug. Samkvæmt
lögum er tilgangur félagsins að gæta hagsmuna
aldraðra lækna og stuðla að auknum innbyrðis
samskiptum þeirra, svo og að efla samskipti lækna
almennt, félagslega og faglega. Allir læknar sem
búsettir eru á íslandi og hafa náð 60 ára aldri geta
orðið félagar. Félagar eru nú alls 127 talsins. Starfið
er gróskumikið og dafnar ár frá ári. Stjórn félagsins
skipa eftirfarandi: Þorvaldur Veigar Guðmundsson
formaður, Ólafur Örn Arnarson ritari, Ingvar E.
Kjartansson gjaldkeri, Þór Halldórsson og Tómas
Helgason meðstjórnendur. í Öldungaráði sitja:
Guðmundur Bjarnason, Halla Þorbjörnsdóttir, Óli
Björn Hannesson, Leifur Jónsson, Svanur Sveins-
son og Sigmundur Magnússon.
Þrátt fyrir að eiga sinn eigin lagabálk og afmark-
að varnarþing er öld-
ungadeildin alls ekki
einskorðuð við félags-
skírteini. Félagar eru
hvattir til að taka maka
sína og aðra gesti með í
alla starfsemi félagsins.
Félagsskapurinn fundar
um hvaðeina sem áhuga
vekur fyrsta miðviku-
dag mánaðarins yfir vet-
urinn, heldur jólafagnað
á aðventunni með mat
Þórey Sigurjónsdóttir og Bergþóra Sigurðardóttir.
Páll Ásmundsson, Lárus Helgason, Jóhannes Bergsveins-
son og Páll Gíslason.
Sigursteinn Guðmundsson og Guðrún Jónsdóttir.
og drykk og tilheyrandi fagnaðarerindi, og stendur
fyrir ferðum innanlands og utan. Til marks um
félagsstarfið á árinu 2004 má geta þess að farið var
í vorferð á slóðir Einars skálds Benediktssonar
og í haustferð að skoða stuðlabergsnámur í landi
Hrepphóla í Hrunamannahreppi. Kallaðir voru til
ýmsir til að messa á fundum: Jakob Jakobsson fiski-
fræðingur: Síldin veður og síldin kveður, - Sigurður
Arnalds verkfræðingur: Kárahnjúkavirkjun, Sveinn
Rúnar Hauksson læknir: Palestína, skipting lands-
ins, hernám og núverandi ástand og Þórarinn Þór-
arinsson arkitekt: Línur í landnámi Ingólfs.
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar öld-
ungadeildin fékk sér kaffi og vínarbrauð, 2.
febrúar síðastliðinn, áður en hlýtt var á boðskap
Ragnars Björnssonar prófessors um jarðskjálfta og
áhrif þeirra.
Læknablaðið 2005/91 277