Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2005, Side 53

Læknablaðið - 15.03.2005, Side 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ELDRI LÆKNAR Þessa mynd tók Björk Ingvarsdóttir í haustferð Öldungadeildar að stuðla- bergsnámum í Hruna- mannahreppi. Öldungadeild Læknafélags íslands Védís Skarp- héðinsdóttir Ásmundur Brekkan, Ólafur Sveinsson, Páll Sigurðsson og Hrafn Tulinius. Öldungadeild Læknafélags íslands var stofnuð 7. maí 1994 og fyllir því ríflega áratug. Samkvæmt lögum er tilgangur félagsins að gæta hagsmuna aldraðra lækna og stuðla að auknum innbyrðis samskiptum þeirra, svo og að efla samskipti lækna almennt, félagslega og faglega. Allir læknar sem búsettir eru á íslandi og hafa náð 60 ára aldri geta orðið félagar. Félagar eru nú alls 127 talsins. Starfið er gróskumikið og dafnar ár frá ári. Stjórn félagsins skipa eftirfarandi: Þorvaldur Veigar Guðmundsson formaður, Ólafur Örn Arnarson ritari, Ingvar E. Kjartansson gjaldkeri, Þór Halldórsson og Tómas Helgason meðstjórnendur. í Öldungaráði sitja: Guðmundur Bjarnason, Halla Þorbjörnsdóttir, Óli Björn Hannesson, Leifur Jónsson, Svanur Sveins- son og Sigmundur Magnússon. Þrátt fyrir að eiga sinn eigin lagabálk og afmark- að varnarþing er öld- ungadeildin alls ekki einskorðuð við félags- skírteini. Félagar eru hvattir til að taka maka sína og aðra gesti með í alla starfsemi félagsins. Félagsskapurinn fundar um hvaðeina sem áhuga vekur fyrsta miðviku- dag mánaðarins yfir vet- urinn, heldur jólafagnað á aðventunni með mat Þórey Sigurjónsdóttir og Bergþóra Sigurðardóttir. Páll Ásmundsson, Lárus Helgason, Jóhannes Bergsveins- son og Páll Gíslason. Sigursteinn Guðmundsson og Guðrún Jónsdóttir. og drykk og tilheyrandi fagnaðarerindi, og stendur fyrir ferðum innanlands og utan. Til marks um félagsstarfið á árinu 2004 má geta þess að farið var í vorferð á slóðir Einars skálds Benediktssonar og í haustferð að skoða stuðlabergsnámur í landi Hrepphóla í Hrunamannahreppi. Kallaðir voru til ýmsir til að messa á fundum: Jakob Jakobsson fiski- fræðingur: Síldin veður og síldin kveður, - Sigurður Arnalds verkfræðingur: Kárahnjúkavirkjun, Sveinn Rúnar Hauksson læknir: Palestína, skipting lands- ins, hernám og núverandi ástand og Þórarinn Þór- arinsson arkitekt: Línur í landnámi Ingólfs. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar öld- ungadeildin fékk sér kaffi og vínarbrauð, 2. febrúar síðastliðinn, áður en hlýtt var á boðskap Ragnars Björnssonar prófessors um jarðskjálfta og áhrif þeirra. Læknablaðið 2005/91 277

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.