Læknablaðið - 15.03.2005, Page 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Konur í stjórnum, skiptir það máli?
Hulda
Hjartardóttir
Höfundur er varaformaður
stjórnar LÍ.
í pistlunum Af sjónarhóli
stjómar birta stjórnarmenn
LÍ sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Undanfarið hefur verið talsvert í umræðunni
hvort það skipti máli að konur sitji í stjórnum
félaga og sjóða, til dæmis lífeyrissjóða. Flestar
konur eru sammála um að þetta skipti máli en
hvert er raunverulegt gildi þess fyrir þjóðfélagið?
Þótt okkur finnist að það ætti að vera sjálfsagt
að konur séu til jafns við karla við stjórnvölinn á
fyrirtækjum, á þingi og í bæjarstjórnum, nefndum,
ráðum og stjórnum hinna ýmsu félaga og samtaka
þá er það ekki raunin. Konur eru núorðið jafn vel
menntaðar og karlar og ætti því að vera sjálfsagt
að þær taki sinn skerf af ábyrgðarstöðum í þjóð-
félaginu, hvort sem um er að ræða í stjórnmálum,
félagsmálum eða á vinnumarkaði.
En sækjast þær í raun eftir því og ef þeim eru
boðin hin ýmsu trúnaðarstörf eru þær viljugar að
taka slíkt að sér? Ég er minnug ræðu sem banda-
rísk starfssystir mín hélt á eftirminnilegri ráðstefnu
í Hveradölum fyrir um 15 árum og margir kven-
kyns læknar sjálfsagt muna. Hún hvatti okkur til að
segja alltaf já ef okkur byðist að taka þátt í félags-
málum, síðan gætum við velt því fyrir okkur hvern-
ig við færum að því að bæta þessu nýja starfi við
öll hin sem við höfum tekið að okkur. Hún sagði
nefnilega að alltof margar konur höfnuðu boðum
um að taka að sér trúnaðarstörf og að starfa í
félagsmálum því að þeim fyndist þær ekki hafa
tíma. Það er auðvitað rétt, við vinnum krefjandi
störf og vinnutíminn er oft langur og við eigum þar
að auki flestar fjölskyldur sem mest allur frítími
okkar fer í að sinna. En fordæmisgildið fyrir kom-
andi kynslóðir er kannski það allra mikilvægasta.
Ég fór meðal annars að hugleiða þetta þegar
ég var á þorrablóti nýverið og ein frænka mín hélt
því þar fram að það væri hálfgert tabú hér á landi
að segja að það sé mikilvægt að konur komist í
æðstu stöður þjóðfélagsins. Hún var afar ósátt við
þetta og vildi að konur væru ákveðnari og stoltari
af þessum skrefum sem við erum smátt og smátt
að ná. Konur sem komast í áhrifastöður, jafnvel
orðnar forstjórar stærstu fyrirtækja landsins, svara
því gjarnan til þegar þær eru spurðar að þessu að
það skipti engu máli að þær séu konur, aðalatriðið
sé bara að besti maðurinn veljist til starfsins. Sú
staðreynd liggur samt í augum uppi, konan hefði
ekki fengið stöðuna nema hún væri best til þess
fallin en það er augljóst að þetta skiptir máli til að
styrkja ímynd kvenna í hugum ungra stúlkna og
kvenna almennt. Við vitum að stúlkur standa sig
jafnvel betur í skóla núorðið en drengir og er þessi
munur meira að segja farinn að valda áhyggjum
um framtíð drengja í menntakerfinu.
En hvað verður svo um stúlkurnar, hvenær
gerist það að þær missa sjálfstraustið og fara að
draga sig í hlé þrátt fyrir velgengni í námi? Senni-
lega í efstu bekkjum grunnskóla, drengirnir þurfa
að sýna sig og sanna með gassagangi og látum til
að ganga í augun á stelpunum og hinum strákun-
um. í framhaldsskólunum heldur þetta munstur
áfram, hvernig stendur til dæmis á því að í spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna eru nær undan-
tekningarlaust þrír strákar í liðunum? Ein og ein
stelpa sést þar innan um en nær aldrei tvær í liði,
hvað þá þrjár. Getur verið að þarna skorti stelp-
urnar sjálfstraust til að trana sér fram, þær séu of
hræddar við að mistakast og gata og koma þannig
upp um fávisku sína? Þetta virðist ekkert vefjast
fyrir strákunum.
Hvaða fyrirmyndir er svo stelpum boðið upp
á í fjölmiðlum? Endalausa sjónvarpsþætti sem
ganga út á það hvernig hægt sé að sníða ímynd-
aða vankanta af fallegum stúlkum og helst láta
þær keppa um það hver sé sætust eða best greidd
eða með flottasta göngulagið. Æðsti frami ungrar
stúlku eftir því sem maður gæti ímyndað sér af
því að horfa á þessa þætti hlýtur að vera að verða
heimsfræg fyrirsæta og giftast ríkum manni. Ég
held að það sé ekki þetta sem við sjálfar óskum
dætrum okkar. Okkur er því óhætt að hampa þeim
konum sem komast langt á vinnumarkaði eða í
stjórnmálum og félagsmálum. Þær eru hvetjandi
fordæmi fyrir okkur hinar og eftir því sem þeim
fjölgar verður það sjálfsagðara að konur stefni á
slík störf.
Ég minni á að það eru ekki nema nokkrir ára-
tugir síðan konur í læknisfræði voru álíka fáséðar
og konur í stjórnunarstöðum í landinu eru enn
þann dag í dag. í níu manna stjórn LÍ sitjum við
nú fjórar konur og hefur það meðal annars verið
haft að leiðarljósi þegar verið er að huga að vali
á nýjum stjórnarmönnum að reynt verði að jafna
hlut kynjanna innan stjórnar og sama gildir um val
á læknum í ýmsar nefndir og ráð innan félagsins.
Jafnréttisstefna félagasamtaka er vel framkvæm-
anleg og nauðsynleg þó að einhvern tímann komi
vonandi að því að hún verði óþörf.
276 Læknablaðið 2005/91