Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2005, Síða 52

Læknablaðið - 15.03.2005, Síða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Konur í stjórnum, skiptir það máli? Hulda Hjartardóttir Höfundur er varaformaður stjórnar LÍ. í pistlunum Af sjónarhóli stjómar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Undanfarið hefur verið talsvert í umræðunni hvort það skipti máli að konur sitji í stjórnum félaga og sjóða, til dæmis lífeyrissjóða. Flestar konur eru sammála um að þetta skipti máli en hvert er raunverulegt gildi þess fyrir þjóðfélagið? Þótt okkur finnist að það ætti að vera sjálfsagt að konur séu til jafns við karla við stjórnvölinn á fyrirtækjum, á þingi og í bæjarstjórnum, nefndum, ráðum og stjórnum hinna ýmsu félaga og samtaka þá er það ekki raunin. Konur eru núorðið jafn vel menntaðar og karlar og ætti því að vera sjálfsagt að þær taki sinn skerf af ábyrgðarstöðum í þjóð- félaginu, hvort sem um er að ræða í stjórnmálum, félagsmálum eða á vinnumarkaði. En sækjast þær í raun eftir því og ef þeim eru boðin hin ýmsu trúnaðarstörf eru þær viljugar að taka slíkt að sér? Ég er minnug ræðu sem banda- rísk starfssystir mín hélt á eftirminnilegri ráðstefnu í Hveradölum fyrir um 15 árum og margir kven- kyns læknar sjálfsagt muna. Hún hvatti okkur til að segja alltaf já ef okkur byðist að taka þátt í félags- málum, síðan gætum við velt því fyrir okkur hvern- ig við færum að því að bæta þessu nýja starfi við öll hin sem við höfum tekið að okkur. Hún sagði nefnilega að alltof margar konur höfnuðu boðum um að taka að sér trúnaðarstörf og að starfa í félagsmálum því að þeim fyndist þær ekki hafa tíma. Það er auðvitað rétt, við vinnum krefjandi störf og vinnutíminn er oft langur og við eigum þar að auki flestar fjölskyldur sem mest allur frítími okkar fer í að sinna. En fordæmisgildið fyrir kom- andi kynslóðir er kannski það allra mikilvægasta. Ég fór meðal annars að hugleiða þetta þegar ég var á þorrablóti nýverið og ein frænka mín hélt því þar fram að það væri hálfgert tabú hér á landi að segja að það sé mikilvægt að konur komist í æðstu stöður þjóðfélagsins. Hún var afar ósátt við þetta og vildi að konur væru ákveðnari og stoltari af þessum skrefum sem við erum smátt og smátt að ná. Konur sem komast í áhrifastöður, jafnvel orðnar forstjórar stærstu fyrirtækja landsins, svara því gjarnan til þegar þær eru spurðar að þessu að það skipti engu máli að þær séu konur, aðalatriðið sé bara að besti maðurinn veljist til starfsins. Sú staðreynd liggur samt í augum uppi, konan hefði ekki fengið stöðuna nema hún væri best til þess fallin en það er augljóst að þetta skiptir máli til að styrkja ímynd kvenna í hugum ungra stúlkna og kvenna almennt. Við vitum að stúlkur standa sig jafnvel betur í skóla núorðið en drengir og er þessi munur meira að segja farinn að valda áhyggjum um framtíð drengja í menntakerfinu. En hvað verður svo um stúlkurnar, hvenær gerist það að þær missa sjálfstraustið og fara að draga sig í hlé þrátt fyrir velgengni í námi? Senni- lega í efstu bekkjum grunnskóla, drengirnir þurfa að sýna sig og sanna með gassagangi og látum til að ganga í augun á stelpunum og hinum strákun- um. í framhaldsskólunum heldur þetta munstur áfram, hvernig stendur til dæmis á því að í spurn- ingakeppni framhaldsskólanna eru nær undan- tekningarlaust þrír strákar í liðunum? Ein og ein stelpa sést þar innan um en nær aldrei tvær í liði, hvað þá þrjár. Getur verið að þarna skorti stelp- urnar sjálfstraust til að trana sér fram, þær séu of hræddar við að mistakast og gata og koma þannig upp um fávisku sína? Þetta virðist ekkert vefjast fyrir strákunum. Hvaða fyrirmyndir er svo stelpum boðið upp á í fjölmiðlum? Endalausa sjónvarpsþætti sem ganga út á það hvernig hægt sé að sníða ímynd- aða vankanta af fallegum stúlkum og helst láta þær keppa um það hver sé sætust eða best greidd eða með flottasta göngulagið. Æðsti frami ungrar stúlku eftir því sem maður gæti ímyndað sér af því að horfa á þessa þætti hlýtur að vera að verða heimsfræg fyrirsæta og giftast ríkum manni. Ég held að það sé ekki þetta sem við sjálfar óskum dætrum okkar. Okkur er því óhætt að hampa þeim konum sem komast langt á vinnumarkaði eða í stjórnmálum og félagsmálum. Þær eru hvetjandi fordæmi fyrir okkur hinar og eftir því sem þeim fjölgar verður það sjálfsagðara að konur stefni á slík störf. Ég minni á að það eru ekki nema nokkrir ára- tugir síðan konur í læknisfræði voru álíka fáséðar og konur í stjórnunarstöðum í landinu eru enn þann dag í dag. í níu manna stjórn LÍ sitjum við nú fjórar konur og hefur það meðal annars verið haft að leiðarljósi þegar verið er að huga að vali á nýjum stjórnarmönnum að reynt verði að jafna hlut kynjanna innan stjórnar og sama gildir um val á læknum í ýmsar nefndir og ráð innan félagsins. Jafnréttisstefna félagasamtaka er vel framkvæm- anleg og nauðsynleg þó að einhvern tímann komi vonandi að því að hún verði óþörf. 276 Læknablaðið 2005/91
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.