Læknablaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LYFJAMÁL / ARFUR JÓNS STEFFENSEN
ei verið rannsakað. Petta er þó aukaverkun sem
hefur ágætt forspárgildi og ætti ekki að koma nein-
um á óvart. Það gæti tekið áratugi að koma í ljós.
Mér segir svo hugur að þessum fyrstu kynslóðar
„ekki-stera bólgueyðandi" lyfjum muni innan 10
ára verða rutt af markaði af lyfjum sem sannanlega
hafa ekki krabbameinsvaldandi samverkun við
húð og ónæmiskerfi.
Ég ætla ekki að valda áhyggjum en okkur má
vera umhugað um langtíma afleiðingar meðferðar
sem í dag virðist ósköp lítið mál. Hvað ætli mörg
börn fái Elidel krem á bráðavaktinni? Hver á
svo að fylgja þeim eftir? Hvaða upplýsingar eru
foreldrar fá? Er allt í lagi að nota þessi krem í sól-
skini? Sjálfur hef ég gjarnan ráðlagt notkun slíkra
lyfja í andlit en ekki á vorin og sumrin. Já senni-
lega er það í lagi í hófi. En er það ekki læknisins
að benda á það hóf og vera aðgætinn sjúklinganna
vegna? Já það hefur áhrif á ábendingarnar. Þær
verða þrengri. Það er ekkert því miður. Það er eins-
og það á að vera.
Að lokum: þegar nýir flokkar húðlyfja koma
á markað er sjálfsagt að húðsjúkdómalæknar fari
einir með ávísanir á þau um sinn. Við það getur
skapast aðhald fyrir ábendingavenjur sem koma
flestum að gagni þegar fram líða stundir.
Menning og meinsemdir
- aldarminning Jóns Steffensen prófessors 1905-2005
Um miðjan febrúar síðastliðinn var
haldið tveggja daga málþing í Þjóðarbók-
hlöðunni í minningu Jóns Steffensen
og endurspeglaði það afar fjölbreytt og
víðfeðm viðfangsefni og áhugamál hans.
Jafnframt var opnuð í anddyri safnsins
sýning til heiðurs Jóni og konu hans,
Kristínu Björnsdóttur. Myndir, bréf, bæk-
ur og ýmsir munir úr eigu hjónanna prýða
sýninguna, skrifborð hans og útsaumað-
ur stóll, koffort og ýmis mælingatæki.
Jafnframt lánaði Þjóðminjasafn gripi til
Bókhlöðunnar sem tengjast mannfræði-
rannsóknum Steffensens. Sýningin stend-
ur til 10. apríl og er öllum opin.
Menning og meinsemdir: rýnt í bein,
farsóttir, lœknisfrœði og lýðsögu íslendinga
hét málþingið. Fyrri dag þingsins rakti
Hrafnkell Helgason ævi og störf Jóns, for-
maður LÍ ræddi meðal annars gjöf Jóns til
félagsins og Andy Cliff, gestafyrirlesari í
landafræði í Cambridge, benti meðal ann-
ars á nýjar skilgreiningar samtíðarinnar á
fjarlægðum og tíma sem kölluðu á ný landa-
kort vitundarinnar í það minnsta.
Á laugardegi var messað allan dag-
inn, læknar, sagnfræðingar, fréttamaður,
bókmenntafræðingur, fornleifafræðing-
ur, mannfræðingur og tannlæknar - allir
höfðu einhvern snertiflöt við Steffensen,
þennan feiknalega risa í fræðunum sem
hefur greinilega þegar í lifanda lífi
gnæft yfir samtímamenn sína í einurð og
festu vísindamannsins og í fjölbreytileika
rannsóknarefna sinna sem er nær því af
nýrómantískum ofmenna-toga.
Hrafnkell Helgason lungnalœknir rakti œvi-
feril Jóns og minntist með nokkrum hryllingi
Gray’s Anatomy sem liggur opin á skrifborði
Jóns hér að neðan til vinstri.
Aðundirbúningiþessamerkilegaþings
unnu Kristín Bragadóttir, Örn Bjarnason,
Gísli Pálsson, Agnar Helgason, Jökull
Sævarsson, Emilía Sigmarsdóttir og Sig-
urður Örn Guðbjartsson. VS
Læknablaðið 2005/91 299