Læknablaðið - 15.03.2005, Síða 44
ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁGRIP ERINDA
finnst alltaf orsök hennar þrátt fyrir ítarlega uppvinnslu. Eink-
um hafa rannsóknir á mjógirni verið erfiðar. Aðeins lítinn hluta
þess hefur verið hægt að athuga með holsjá, en mögulegt er
að beita öðrum rannsóknaraðferðum, svo sem smágirnismynd
(enteroclysis), æðarannsókn (angiography), blóð sindurritun
(blood pool scintigraphy, tagged red cell scan), Meckels skimun
og tölvusneiðmynd. Þá er beitt IOE (intraoperative endoscopy)
sem er bæði tímafrek og eykur fylgikvilla aðgerðar. Nýrri
rannsóknaraðferð, holsjárhylkisrannsókn (Hhr), er nú beitt
sem gerir kleift að skoða mjógirnið myndrænt. Tvö sjúkratilfelli
verða kynnt til að skýra kosti Hhr.
Sjúkratilfelli 1: Karlmaður, 68 ára, lagðist inn á hjartadeild Land-
spítala vegna yfirliðs. Lýst var sortusaur (melena) síðustu daga
fyrir innlögn og járnskortsblóðleysi (anemía) staðfest. Maga- og
ristilspeglun var eðlileg en tölvusneiðmynd af kviðarholi sýndi
litla fyrirferð í garnahengjurótinni. Hann var rannsakaður 18 mán-
uðum áður vegna járnskortsblóðleysi (anemíu) án niðurstöðu. Hhr
nú sýndi fram á sáraæxli í mjógirni, sjúklingur tekinn til aðgerðar
og meinvörp fundust í garnahengju eitlum. Líffærameinafræðileg
rannsókn (PAD) staðfesti silfurfrumuæxli (carsinoid tumor).
Sjúkratilfelli 2: Karlmaður, 52 ára, leitaði á bráðamóttöku vegna
blóðugs niðurgangs. Þegar hann kom inn féll blóðþrýstingur við
það að hann reis upp og var því lagður á gjörgæslu til vöktunar.
Magaspeglun var eðlileg en ristilspeglun vakti grun um blæð-
ingu frá mjógirni. Blæðingarskann staðfesti blæðingarstað í
hægri efri fjórðungi. Hhr sýndi hvítleita vefjaskemmd í mjó-
girni. Tölvusneiðmynd vakti grun um þrjú meinvörp í lifur. f
kviðarholssjá var gert smágirnisúrnám og sýni tekið úr lifur.
Líffærameinafræðileg rannsókn sýndi blæðandi sárastrómaæxli í
mjógirni og holuæðaræxli (cavernous hemangioma) í lifur.
Alyktun: Holsjárhylkisrannsókn er myndræn aðferð til að rann-
saka mjógirni. Hún getur flýtt fyrir og hjálpað til við nákvæmari
greiningu á sjúkdómum í mjógirni.
E 25 Aðgerðir vegna lifraræxla á íslandi, tíu ára uppgjör
Bergþór Björnsson1, Sigurður Ó. Blöndal', Sigurgeir Kjartansson1, Jónas
Magnússon1-2
'Skurðsviði Landspítala, 2Iæknadeild HÍ
bergthor@lanclspitali. is
Inngangur: Aðgerðum vegna lifraræxla, bæði frumkominna og
meinvarpa, hefur fjölgað. Erlendar rannsóknir hafa sýnt batn-
andi árangur af slíkum aðgerðum hvað varðar meinvörp. Ein
rannsókn hefur verið birt um lifraraðgerðir á íslandi. Tilgangur
þessarar rannsóknar var að kanna aðgerðir vegna lifraræxla á
íslandi á árunum 1994 til 2003.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn. Farið var
yfir sjúkraskrár allra sjúklinga sem gengust undir aðgerðir
vegna æxla í lifur á Landspítala (áður Sjúkrahús Reykjavíkur og
Landspítali) á árunum 1994 til og með 2003.
Niðurstööur: Alls fundust gögn um 69 aðgerðir á 66 sjúklingum
á umræddu tímabili. Ekki var unnt að safna öllum upplýsingum
sem til stóð úr öllum sjúkraskrám. Engar upplýsingar aðrar en
vefjagreining liggja fyrir varðandi fjóra sjúklinga. Meðalaldur
var 57,3 ár, karlar voru 32 en konur 34. í 25 tilfellum var heilt lifr-
arblað fjarlægt. Frumkomin æxli voru 25, lifrarfrumuæxli voru
sjö. Meinvörp voru alls 43; 39 voru frá kirtilfrumuæxlum sem
áttu uppruna í ristli eða endaþarmi í 36 tilfellum. Meðalblæðing
var 2650 ml og meðalblóðgjöf var 4,2 einingar. Þrír sjúklingar
með lifrarfrumuæxli eru á lífi eftir 4,7 ára eftirfylgni en fjórir
eru látnir og var meðallifun þeirra 4,8 ár. Af sjúklingum með
meinvörp frá ristli/endaþarmi eru 17 á lífi eftir 3,8 ára eftirfylgni
en 19 eru látnir og var meðallifun þeirra 2,3 ár. Skurðdauði (30
daga) var enginn.
Ályktanir: 1) Lifraraðgerðum vegna æxla virðist fara fjölgandi.
2) Blæðing í aðgerð og 30 daga dánartíðni er ásættanleg. 3)
Árangur aðgerða vegna meinvarpa frá ristli/endaþarmi fer batn-
andi innan þessa rannsóknartímabils.
E 26 Rauðkirningaæxli (oncocytoma) eru góðkynja nýrna-
æxli. Úttekt hjá heilli þjóð á 30 ára tímabili
Tómas Guöbjartsson1, Sverrir Harðarson2-3, Vigdís Pétursdóttir2, Ásgeir
Thoroddsen1, Jónas Magnússon1-3, Guðmundur V. Einarsson1-3
‘Þvagfæraskurðdeild, 2rannsóknarstofa Háskólans í meinafræði, skurðdeild
Landspítala, 3Læknadeild Háskóla íslands
tomasgudbjartsson@hotmail.com
Inngangur: Rauðkirningaæxli (oncocytoma) voru áður flokkuð
nteð illkynja æxlum í nýrum en samkvæmt nýjum alþjóðlegum
stöðlum eru þau flokkuð með góðkynja nýrnaæxlum. Tilgangur
þessarar rannsóknar var að kanna algengi, dreifingu og horfur
sjúkdómsins hjá heilli þjóð á 30 ára tímabili.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn og er hluti af
stærri íslenskri rannsókn þar sem rannsökuð hafa verið vefja-
sýni allra sjúklinga sem greinst hafa á íslandi með illkynja æxli
í nýrum frá 1971-2000. Stuðst var við sjúkraskrár og skrá rann-
sóknarstofu HÍ í meinafræði. Könnuð voru einkenni sjúklinga,
meinafræði og lífshorfur.
Niðurstöður: Aldursstaðlað nýgengi rauðkirningaæxla fyrir
hvort kyn um sig var 0,3/100.000 á ári og reyndust þau 5,5% af
fjölda nýrnafrumukrabbameina sem greindust á sama tímabili.
Fjórtán sjúklingar greindust við krufingu án þess að hafa haft
þekkt einkenni frá æxlinu. Af 31 sjúklingi sem greindist á lífi
(meðalaldur 71 ár) voru sjö sem greindust fyrir tilviljun. Hinir
sjúklingarnir voru með einkenni þar sem bersæ blóðmiga (32%),
kviðverkir (29%) og megrun (10%) voru algengust. Allir sjúk-
lingarnir gengust undir nýrnabrottnám að einum undanskildum
þar sem framkvæmt var hlutabrottnám á nýra hjá sjúklingi með
æxli í báðum nýrum. Meðalstærð æxlanna var 5,7 cm (bil 0,9-12
cm). Átján sjúklingar (58%) voru greindir á TNM-stigi I (æxli
<7 cm), 10 á stigi II (32%) (æxli >7 cm) og 3 á stigi III (10%),
og voru síðastnefndu sjúklingarnir allir með æxlisíferð í fitu
umhverfis nýrað. Enginn sjúklinganna reyndist hafa meinvörp,
hvorki í önnur líffæri eða eitla. Tveir sjúklingar reyndust einnig
hafa nýrnafrumukrabbamein í sama nýra. Sjúklingunum var
fylgt eftir og eftir 8,3 ár að meðaltali hafði enginn þekkt mein-
vörp frá rauðkirningaæxli og enginn hafði látist úr sjúkdómn-
um. Heildar fimm ára lífshorfur voru 63,2% og létust flestir úr
hjarta- og æðasjúkdómum.
Ályktun: Klínísk hegðun rauðkirningaæxla er góðkynja og
268 Læknablaðið 2005/91