Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2005, Qupperneq 56

Læknablaðið - 15.03.2005, Qupperneq 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNABLAÐIÐ 90 ÁRA Að miðla þekkingu mi lækna Hringborðsumræður um hlutverk og stöðu Læknablaðsins í bráð og lengd Ljósmyndir: Arnaldur Halldórsson, teknar í níræðisafmæli Læknablaðsins í nóvember 2004. í tilefni af níutíu ára afmæli Læknablaðsins var ákveðið að kalla saman þá sem mest hafa unn- ið að útgáfu blaðsins síðasta aldarfjórðunginn og gott betur. Tilgangurinn var að spjalla sam- an um Læknablaðið í fortíð, nútíð og framtíð. Þátttakendur í spjallinu voru Örn Bjarnason sem var ritstjóri blaðsins frá 1976-93, Sigurjón Jóhanns- son sem var fyrsti blaðamaðurinn sem vann við blaðið, Jóhannes Tómasson og Birna Þórðardóttir sem voru ritstjórnarfulltrúar samtals í rúma tvo áratugi og núverandi ritstjóri, Vilhjálmur Rafnsson sem gegnt hefur starfinu frá 1993, og ritstjórn- arfulltrúi, Védís Skarphéðinsdóttir. Umræðum stjórnaði Þröstur Haraldsson og er hann jafnframt skrásetjari. Fyrst var rætt um stöðu blaðsins eins og hún var þegar Örn og Sigurjón komu til skjalanna árið 1976. Hún var heldur bágborin því langt gat liðið á milli blaða. Hvað olli? Örn: Það var tvennt að. Annað var verðbólgan sem var mikil. Það gekk illa að innheimta og krafa sem stofnað var til í janúar en innheimtist ekki fyrr en í desember hafði rýrnað verulega. Hitt var að prentsmiðjan sem skipt hafði verið við frá upp- hafi eða í sextíu ár var orðin illa búin tækjum og í vondu húsnæði. Það var ekki hægt að breyta neinu, myndvinnsla var mjög dýr og takmarkanir á því sem hægt var að gera. Aðstöðuleysið var algert því við fengum ekki skrifstofu hjá félaginu fyrr en sex eða sjö árum síðar. Vinnan við þetta fór yfirleitt þannig fram að við hittumst heima hjá Sigurjóni á laugardögum og lögðum undir okkur stofuborðið. Svo var þetta flutt á milli í umslögum og töskum. Sigurjón: Ég kom þannig til að við Örn erum gamlir bekkjarbræðir og vinir og hann kom til mín í vandræðum sínum og bað mig að aðstoða sig. Ég tók því vel og var ráðinn til að koma honum yfir þá erfiðleika sem hann var að glíma við. Málið var að moka út blöðum því það biðu margar greinar birtingar. Ég virkjaði konuna mína í prófarkalestur og reyndi að bjarga málunum. Örn: Blaðið hafði verið í lægð því fjárhags- örðugleikarnir gerðu okkur erfitt fyrir. Ég lagði málin þannig upp að það væri ekki hægt að gera neitt nema ráða til þess blaðamann. Sigurjón hefði unnið í prentsmiðjum og þekkti vel til. Sigurjón: Ég þekkti sálarlíf prentara. Birna: Já, það sakar ekki. Örn: Á þessum tíma voru tölvurnar að koma til sögunnar og tæknin að breytast. Þess vegna þurfti mann sem kunni til verka. Um þetta leyti verða líka breytingar á stjórnun blaðsins. Skömmu áður hafði verið gerð sú breyting að ráðnir voru tveir ritstjórar og átti annar að sjá um fræðilega efnið en hinn það félagslega. Við Bjarni Þjóðleifsson urðum sammála um að þetta gengi ekki upp því það væri ekki hægt að aðskilja þessa þætti. Við fjölguðum því hratt í ritstjórninni og fengum leyfi til að ráða blaðamann. Danmerkurárin Skömmu eftir að Örn gerðist ritstjóri var ákveðið að flytja vinnslu blaðsins til Danmerkur. Hvernig bar það til? Örn: Nordisk federation for medicinsk under- visning hélt mikla ráðstefnu á Akureyri 1978. Á þeim fundi heyrðum við af vandræðum Dana sem höfðu orðið að stofna eigið forlag og skipta um prentsmiðju vegna þess hversu dýr prentunin var orðin. Þeir fóru að tala utan af samstarfi og við Bjarni áttuðum okkur á að þetta var ágætur kostur. Um haustið sendu þeir okkur tillögur og höfðu þá meðal annars látið búa til letur með öllum íslensku bókstöfunum. Þeir gátu því slegið efnið inn í tölvu úti. Með tímanum fórum við svo að senda þeim efnið á diskum. Jóhannes: Vandinn hér var að halda reglu á útgáfunni. Prentsmiðjan annaði ekki prentuninni, það var erfitt að ná í auglýsingar og fjárhagurinn var þröngur. Þessu var líka sinnt í áhlaupum með- fram öðrum störfum. Með ráðningu blaðamanns komst meiri regla á hlutina og tilboð Dananna féll mjög vel að þessari þróun. Þeir buðust til að sjá um auglýsingaöflunina og gátu auk þess tryggt reglu- lega útgáfu 12 sinnum á ári. Með þessu móti voru tekjurnar tryggðar... Örn: Já, og það í dönskum krónum sem skipti máli á þessum árum. Jóhannes: Þetta tilboð var hagstætt sem sést á því að við létum bjóða í prentun blaðsins hér heima nokkrum sinnum á þessum Danmerkurárum en Danirnir buðu alltaf betur. En svo kom að því að það breyttist. Örn: Hugmyndin var sú strax í byrjun að vinnsl- an yrði flutt heim um leið og aðstæður leyfðu. 280 Læknablaðið 2005/91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.