Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2005, Síða 79

Læknablaðið - 15.03.2005, Síða 79
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 174 Málfarsnöldur Eitt orð eða tvö Þaö er farið að valda undirrituðum verulegum áhyggjum hvernig farið er með ýmis samsett fræði- orð á glærum sem sýndar eru í tengslum við annars vandaða fyrirlestra lækna. Nýleg dæmi um slíkt eru orðin: lyfja notkun í stað lyfjanotkun, gall gangar í stað gallgangar, meðal slœmur í stað meðalslæmur og krampa meðferð í stað krampameðferð. I fljótu bragði virðast menn apa tvískiptingu orðanna eftir ensku. Standa þarf vörð gegn þessu. Eintala, fleirtala Sömuleiðis virðast margir eiga í erfiðleikum hvort nota eigi eintölu eða fleirtölu í fyrri orðhlutanum í ýmsum samsettum orðum. Nýleg dærni um þetta eru fœðingahjálp í stað fæðingarhjálp, meltinga- fœri í stað meltingarfæri, mismunagreining í stað mismunargreining og loks nœringavandamál í stað næringarvandmál. Vera má þó að þetta sé í ein- hverjum tilfellum misritun vegna þess að eignarfalls- „r-ið“ er orðið svo lint í framburði að það heyrist varla. Undirritaður hefur þó talsverðar áhyggjur af því að tilfinningin fyrir málinu hafi dofnað. Farið vatn! Fyrst nöldrið er komið á flug: Hvernig getur þunguð kona „verið með“ farið vatn? Klyftaskol Víglundur Þór Þorsteinsson, kvensjúkdómalæknir, hringdi og vildi koma á framfæri íslenska heit- inu klyftaskol. Hann vísaði til þess að kven- sjúkdómalæknar gefa stundum ábendingu eða fyrirmæli um að kynfærasvæðið skuli skolað eða þvegið. Víglundur hafði rekist á heitin neðanskol og botnskol, sem honum líkaði ekki, og heitið klof- skol, sem hann taldi þó skömminni skárra. Fleir- töluorðið klyftir er samheiti á klofi manna og orðið botn er af sumum notað til að vísa í rassinn. Áður en lengra er haldið vill undirritaður hvetja til þess að öll þessi heiti séu varðveitt og notuð þegar við á. Nauðsynlegt er að læknar hafi á tak- teinum fleiri en eitt heiti á ýmsum fyrirbærum og að þeir geti notað þau heiti sem sjúklingum þeirra eru tömust, sérstaklega þegar rætt er um viðkvæm mál. í 94. pistli (Læknablaðið 1997; 83: 768) var einmitt rætt urn samheiti og tekið dæmi um penis, sem á að minnsta kosti 40 íslensk heiti. Þar var bent á að Iðorðasafn lækna tilgreindi einungis íslenska orðið reður, en að heitin typpi, tilli, getnaðarlimur, limur eða besefi gæti hentað betur í ákveðnum ald- ursflokkum sjúklinga. Á sama hátt vill undirritaður varðveita heitið neðanskol fyrir þá siðprúðu ein- staklinga sem ekki vilja vísa ótvírætt í kynfæri eða rass. Bidet Sagan segir að salernistækið bidet hafi verið búið til í Frakklandi seint á 17. eða snemma á 18. öld. Um er að ræða skál, ekki ósvipaða klósettskál, með útbúnaði til að þvo kynfæra- og endaþarmssvæðið. Franska orðið bidet hafði verið notað um smáhesta, dregið af sögninni bider, sem táknar að brokka. Salernistækið var þannig hannað og notað, að yfir því varð að standa klofvega og líkingin við smáhest var augljós. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs tilgreinir íslensku heitin skolskál og skol. Erlenda heitið bidet vísar því annars vegar í tækið sem notað er og hins vegar í aðferðina við að skola umrætt svæði. Því má við bæta að íslenska orðið klyftaskál er ágætis heiti á salernistækinu. Örvi Fyrir milligöngu orðabanka íslenskrar málstöðvar barst tölvupóstur frá almennum notanda sem stakk upp á heitinu viðtakaörvi til að nota um lyf eða efni, agonist, sem leiðir til verkunar með því að bindast viðtaka (receptor). Örvi og viðtakaörvi virðast ágæt heiti, en hyggja þarf þá strax að heiti á antagonist. Agonist Heitið agonist er notað um vöðva sem kemur af stað tiltekinni hreyfingu (til dæmis beygju) í liða- mótum og er þá frumhreyfir (prime mover). Vöðvi sem kemur af stað andstæðri hreyfingu (réttingu) er nefndur antagonist. Sömu almennu heitin eru notuð um lyf eða efni sem leiða til verkunar (agonist) eða hindrunar (antagonist). í íðorðasafni lækna er að finna hin stirðlegu heiti: 1. gerandvöðvi og 2. gerandefni. Verki Fyrir nokkrum árum var sett fram tillaga (Lækna- blaðið 1997; 83: 340 og 456) sem lýst var þannig: „í stað heitisins beta-nýrilviðtaka-gerandefni konti heitið beta-nýrilverki, þ.e. efni sem verkar á beta- nýrilviðtaka.“ Sett var því fram sú hugmynd að agonist verði verki og antagonist verði andverki eða mótverki. Undirrituðum er ekki kunnugt um að þessi heiti hafi náð neinni útbreiðslu. Geta má þess að Verki er gamalt heiti á úlfi Óðins og merkir hinn gráðugi. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landsphaIi.is Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2005/91 303
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.