Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2006, Blaðsíða 25

Læknablaðið - 15.03.2006, Blaðsíða 25
FRÆÐIGREINAR / ANDNAUÐ Brátt andnauðarheilkenni (ARDS) á gjör- gæsludeildum á íslandi 1988-1997 Kristinn Sigvaldason' SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNIR Katrín Þormar1 SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNIR Jón Bragi Bergmann' SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNIR Kristbjörn Reynisson* SÉRFRÆÐINGUR í MYND- OG GEISLAGREININGU Helga Magnúsdóttir2 SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNIR Þorsteinn Svörf- uður Stefánsson1 SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNIR Steinn Jónsson3 LYF-, LUNGNA- OG GJÖRGÆSLULÆKNIR Rannsóknin naut stuðnings Vísindasjóðs Sjúkrahúss Reykjavíkur. ‘Svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítaia, 2svæfinga- og gjörgæsludeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri, 3lyflækningadeild Landspítala, 4röntgendeild Landspítala. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Kristinn Sigvaldason, gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi. krisig@landspitali. is Lykilorð: andnauðarheilkenni, nýgengi, dánarhlutfall, öndunarbilun, öndunar- vélarmeðferð, gjörgœsla. Ágrip Tilgangur: Að kanna nýgengi, orsakir, dánarhlut- fall og öndunarvélarmeðferð sjúklinga með brátt andnauðarheilkenni (BAH) á gjörgæsludeildum á íslandi á 10 ára tímabili. Efniviður og aðferðir: Farið var yfir allar innlagnir á gjörgæsludeildir á íslandi 1988-1997 og sjúklingar með alvarlega öndunarbilun skoðaðir sérstaklega. Safnað var upplýsingum um aldurs- og kynjadreif- ingu, orsakir, legutíma, gjörgæslumeðferð og afdrif þeirra sjúklinga sem féllu undir alþjóðlega skil- greiningu á BAH, það er bráður sjúkdómur með dreifðar íferðir í báðum lungum án merkja um hjartabilun og PaO,/Fi02 hlutfall <200. Borin voru saman árabilin 1988-1992 og 1993-1997. Niðurstöður: Alls reyndust 220 sjúklingar vera með alvarlega öndunarbilun. Af þeim reyndust 155 sjúklingar falla undir alþjóðlegu skilgreininguna á BAH, 82 konur og 73 karlar, og var meðalaldur 52,3 ár. Nýgengi var 15,5 tilfelli á ári, eða 5,9 til- felli/100.000 íbúa/ár. Ef rniðað er við mannfjölda eldri en 15 ára var nýgengi 7,8 tilfelli 100.000/ár. Alls létust 62 sjúklingar, eða 40%. Meðallegutími á gjörgæsludeild var 21 dagur en legutími á sjúkra- húsi 39 dagar. Meðaltími frá áfalli að staðfestum BAH var 3,2 dagar. Tilfellum á hverja 100.000 íbúa fjölgaði seinni hluta tímabilsins, úr 4,8 tilfell- um/100.000 íbúa/ár 1988-1992 í 6,9 tilfelli/100.000 íbúa/ár 1993-1997. Dánarhlutfall lækkaði úr 46,9% í 40,2% en ekki tölfræðilega marktækt. Ef notuð var þrýstingsstýrð öndunarvélarmeðferð var dán- arhlutfall 38,7% en var 45,7% ef rúmmálstýrð meðferð var notuð. Ályktun: Tilfellum af BAH virðist fara fjölgandi á gjörgæsludeildum á íslandi. Um er að ræða fremur ungt fólk og dánarhlutfall er hátt en hefur lækkað svipað og í nágrannalöndunum og bendir flest til þess að framfarir í gjörgæslumeðferð svo sem lungnaverndandi öndunarvélameðferð séu að skila árangri. Inngangur Brátt andnauðarheilkenni (BAH), eða acute respiratory distress syndrome (ARDS), er með- al erfiðustu sjúkdónta sem fengist er við á gjör- gæsludeildum sjúkrahúsa. Heilkennið felur í sér alvarlega öndunarbilun með dreifðum íferðum í báðum lungum í kjölfar annars sjúkdóms, slyss eða skurðaðgerða. Heilkenninu var fyrst gefið þetta ENGLISH SUMMARY Sigvaldason K, Pormar K, Bergmann JB, Reynisson K, Magnúsdóttir H, Stefánsson ÞS, Jónsson S The incidence and mortality of ARDS in lcelandic intensive care units 1988-1997 Læknablaðið 2006; 92: 201-7 Objective: A retrospective analysis of the epidemiology and intensive care treatment of ARDS in lceland during the 10 year period, 1988-1997 with observation of trends within the period. Material and methods: All ICU admissions in lceland 1988-1997 were reviewed according to the American- European consensus conference criteria on ARDS to select patients with the diagnosis of ARDS i.e. bilateral pulmonary infiltrates, Pa.OJF\02 <200 and excluding patients with signs of heart failure or a pulmonary capillary wedge pressure (PCWP) >18 mmHg. Data were collected on age, gender, length of stay, ventilator treatment and ventilatory modes, causes of ARDS and mortality. Results: A total of 220 patients with severe respiratory failure were found and 155 of them were diagnosed as having ARDS or an annual incidence of 15.5 cases/year or 5.9 cases/100.000/year. If reference population >15 years of age is used for calculation the incidence is 7.8 cases/100.000/year. Hospital mortality was 40%, mean length of ICU stay was 21 days, mean hospital length of stay 39 days. The incidence of ARDS increased during the period with a tendency to lower mortality rates. Mortality was significantly lower when pressure controlled ventilation was used, compared to volume controlled ventilation. Conclusion: The incidence of ARDS in a well defined population of lceland is lower than recent studies in USA and Europe have shown or 5.9 cases/100.00/year but is increasing. The mortality is 40% and shows a slight downward trend, which may be due to the use of lung protective ventilation. Keywords: ARDS, ARDS incidence, ARDS mortality, respiratory failure, ventilator treatment. Correspondence: Kristinn Sigvaldason, krisig@landspitali.is nafn árið 1967 (1) en ætla má að læknar hafi farið að sjá meira af BAH í tengslum við betri stuðn- ingsmeðferð sjúklinga sem slösuðust eða urðu alvarlega veikir. Heilkennið er erfitt viðureignar og krefst mikils af starfsfólki gjörgæsludeilda þar sem oft þarf að beita sérhæfðri og kostnaðarsamri meðferð. Dánarhlutfall hefur verið hátt og sam- kvæmt niðurstöðum nokkurra rannsókna hefur það haldist í kringum 40-50% frá því að BAH Læknablaðið 2006/92 201
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.