Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2006, Qupperneq 48

Læknablaðið - 15.03.2006, Qupperneq 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SIÐFRÆÐI Þegar trúnaður víð skjólstæðing og samfélagsskyldur stangast á Kristín Sigurðardóttir ksp@landspitali. is Fyrsti pistill af nokkrum sem liösmenn Siðfræðiráös LÍ skrifa um trúnað, þagnarskyldu og ný sjónarmið samfélagsins gagnvart þeim málefnum. í Siðfræðiráði sitja: Jón G. Snædal formaður Arna Rún Óskarsdóttir Ástríður Stefánsdóttir Benedikt Ó. Sveinsson Guðlaug Þorsteinsdóttir Kristín Sigurðardóttir Sveinn Kjartansson Höfundur er læknir og fræðslustjóri á slysa- og bráðadeild Landspítala Fossvogi. Þörf umræða hefur átt sér stað undanfarið um trúnaðarskyldu lækna. Læknar, heilbrigðisstarfs- menn og þeir sem við þjónum þurfa að taka þátt í umræðunni. Við búum við ákveðinn skilgreindan lagaramma, bæði sem læknar og borgarar þessa lands, og sem okkur ber að fara eftir. Ljóst er að við læknar sinnum öllum sem til okkar leita óháð því hvað þeir kunna að hafa gert. í mínum huga er trúnaður okkar við skjólstæð- inga okkar heilagur. Langoftast eru málin einföld og vandaræðalaus. Hins vegar finnst mér vandinn koma upp þegar við starfs okkar vegna komumst að upplýsingum sem geta reynst skjólstæðingum okkar eða jafnvel öðrum afdrifaríkar ef ekki er brugðist við. En við erum bundin trúnaði, bæði samkvæmt læknaeiði og einnig þeim lögum og reglum sem við störfum eftir. Þá kemur fram í læknaeiðnum að okkur beri að gæta að almanna- heill og sem almennum borgurum beri okkur að fara að landslögum eins og öðrum. Fyrir kemur að þetta tvennt stangast á og hvað eigum við þá að taka til bragðs? Mér hefur fundist óviðunandi að það sé ekki skýrt hvernig bregðast á við slíkum aðstæðum. Því var það að fyrir tveimur árum vakti ég athygli á vandanum og óskaði eftir svörum og skýrari línum þar sem hægt væri. Ég hélt fræðslufundi á deildinni þar sem ég starfa til að fá fram umræður um þessi mál og sendi fyrirspurnir og leitaði álits á ýmsum snúnum málum til lækna deildarinnar, yfirmanna, lækningaforstjóra og lögfræðings sjúkrahússins, landlæknis, Læknafélags íslands, borgarlæknis og lögreglu þar sem mér fannst álit þessara aðila og sjónarmið varðandi lagaskyldur okkar vera mikilvæg. Eftirfarandi eru nokkrar af þessum fyr- irspurnum. „Burðardýr“ Hvaða stefnu eigum við að hafa á sjúkrahúsinu varðandi burðardýr, (þeim sem hafa gleypt umtalsvert magn af fíkniefnum í umbúðum og eru enn með þau innvortis)? Fyrir nokkrum árum algjörlega óþekkt vandamál en því miður staðreynd í dag. Skiptar skoðanir voru á því hvað gera skyldi við burðardýrin sem komu á deildina. Flestir komu í fylgd lögreglu og ef viðkomandi voru veikir var málið einfalt, þeir fengu meðferð og síðan innlögn með lögreglufylgd og lögreglan fékk þau efni sem skiluðu sér. Hins vegar var óljóst hvað gilti um þá sem voru í lögreglufylgd en voru ekki veikir. Sumir töldu rétt að vísa þeim aftur í fangageymslur sem gekk gegn því sem ég hafði lært í sérfræðinámi erlendis. Því til stuðnings sendi ég fyrrgreindum aðilum grein úr New England Journal of Medicine (2003; 349: 2519- 26.) þar sem mælt er með úthreinsun með „golightly“ og innlögn til eftirlits fyrir þennan hóp. Hins vegar kemur fyrir að fólk leitar sjálft til okkar án vitneskju lögreglu. Þá spurði ég annars vegar hvað við ættum að gera við eiturefnin eftir úthreinsun, hvort okkur bæri að tilkynna málið til lögreglu eða ekki, og hins vegar hvað við ættum að gera ef viðkomandi væri ekki í bráðri lífshættu í augnablikinu, afþakkaði meðferð, en vildi fara frá okkur með efnin innvortis. Þá væri viðkomandi sjálfur í hættu svo og aðrir einstaklingar í þjóð- félaginu vegna eiturefnanna sem færu sennilega í umferð. Þarna hefði ég viljað bregðast við eins og ef ölvaður einstaklingur ætlaði að aka eftir að hafa verið á deildinni. Þar tel ég trúnaði mínum aflétt og segi honum að lögregla verði látin vita að hann setji sig og aðra í hættu og brjóti landslög. Eftir umræðu fékkst sú niðurstaða að við gætum afhent lögreglu efnin en virtum trúnað við skjólstæðinga okkar. Umræða um þátt burðardýra hefur aukist und- anfarið, sérstaklega um trúnað, og sjónarmið lög- reglu og heilbrigðisráðherra eru þau að tilkynna eigi glæpinn. Þetta er nýtt sjónarhorn fyrir mörg okkar og gífurlegt „Pandora’s Box“ sem opn- aðist ef þetta yrði ofan á. Sú hætta gæti skapast að burðardýr þyrðu ekki að leita til okkar eftir hjálp ef koma þeirra yrði tilkynnt til lögreglu. Slíkt gæti hugsanlega dregið einhverja til dauða. Fíkniefnaheimurinn er harður og hrottafenginn. Tryggja þyrfti öryggi og vernd þeirra starfsmanna heilbrigðisstofnana sem kæmust yfir vitneskju og tilkynntu lögreglu. Ökumcnn Við Hjalti Már Björnsson læknir höfum vakið athygli á ábyrgð okkar gagnvart þeim sem eru ekki hæfir til að aka bifreið vegna sjúkleika og kunna að vera hættulegir sjálfum sér og öðrum í umferðinni. Mjög erfitt er við það að fást en fyrir kemur að við greinum fólki frá því að það eigi ekki að keyra en viðkomandi lætur orð okkar sem vind um eyru þjóta. Hvað ber okkur að gera? Hætt er við að ef læknir sjúklings yrði að tilkynna til lögreglu, myndi viðkomandi jafnvel ekki leita með sinn vanda til læknisins, ekki fá þá greiningu og meðferð sem nauðsynleg er. Þá gæti skapast 224 Læknablaðið 2006/92
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.