Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.2006, Side 13

Læknablaðið - 15.07.2006, Side 13
FRÆÐIGREINAR / SKIMUN f RISTLI OG ENDAÞARMI Skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi Samvinna milli stjórnmálamanna og vísindamanna er nauðsynleg Michael Bretthauer' MELTINGARLÆKNIR Anders Ekbom2 ALMENNUR SKURÐLÆKNIR Nea Malila3 Lyflæknir Tryggvi Stefánsson4 ALMENNUR SKURÐLÆKNIR Anders Fischer5 meltingarskurðlæknir Geir Hoff' meltingarsérfræðingur Elisabete Weiderpass1,2 Steinar Tretli' TÖLFRÆÐINGUR Laufey Tryggvadóttir6 FARALDSFRÆBINGUR Hans Storm7 LYFLÆKNIR Iben Holten8 MEINAFRÆÐINGUR Hans-OIov Adami2 ALMENNUR SKURÐLÆKNIR NordICC (Nordic Initiative ON COLORECTAL CANCER) 'Kreftregisteret, Ósló, Noregi, 2Karolinska Insti- tuttet, Stokkhólmi, Svíþjóð, •’Finnska krabbameinsskráin, Helsinki, Finnlandi, 4Landspítala, Reykjavík, íslandi, 5Gentofte sykehus, Gentofte, Danmörku, 6Krabbameinsskráin, Reykjavík, íslandi, 7Kræftens Bekæmpelse, Kaupmannahöfn, Danmörku Fyrirspurnir og bréfaskipti: Michael Bretthauer, Kretfregisteret, Montebello, 0310 Oslo. Sími: +47 90132480 michael. bretthauer@ rikshospitalet.no Ágrip Krabbamein í ristli og endaþarmi er eitt af algeng- ustu krabbameinum í hinum vestræna heimi, og sérstaklega er það algengt á Norðurlöndum. í mörgum Evrópulöndum og Bandaríkjunum er ristilspeglun ráðlögð sem skimunaraðferð fyrir þessu krabbameini. Það hafa samt ekki verið gerð- ar slembirannsóknir á áhrifum aðferðarinnar á nýgengi, dánartíðni, mögulega fylgikvilla eða nei- kvæð áhrif á almenning. Þrýstingur almennings á að fá skimun fyrir meininu með ristilspeglun mun líklega aukast mikið á næstu árum. Það er hætta á því að ristilspeglun sem skimunaraðferð verði inn- leidd án nægilegrar vísindalegrar undirstöðu. Þess vegna viljum við færa rök fyrir mikilvægi þess að gerð verði samnorræn slembirannsókn á skimun með ristilspeglun meðal almennings. Krabbamein í ristli og endaþarmi og aðferðir til skimunar Krabbamein í ristli og endaþarmi (KRE) er annað algengasta krabbameinið í Evrópu og á Norðurlöndum (1), með vaxandi tíðni í nokkrum af Norðurlöndunum (mynd 1). Á íslandi er ævi- áhættan að fá KRE um það bil 5%. Horfurnar hjá sjúklingum með staðfestan sjúkdóm eru slæmar, fimm ára lifun er undir 50%. Orsakir fyrir myndun KRE eru aðeins að litlu leyti þekktar, en augljós- lega fjölþættar (2). Flest KRE (70%-90%) verða til í góðkynja sepum (kirtilæxlum), en aðeins Iítill hluti þeirra verður að illkynja æxlum. Það tekur um það bil 10 ár fyrir krabbamein að myndast í slíkum sepum. Þess vegna er fræðilega mögulegt að koma í veg fyrir KRE með því að fjarlægja sepana áður en krabbameinið verður til. Góðkynja separ í ristli eru algengir í íbúum Norðurlanda. í norskri lýð- grundaðri rannsókn fundust slíkir separ hjá 17% fólks á sjötugsaldri (3). Það er auðvelt að finna og fjarlægja sepana í ristilspeglun. Bæði heildarrist- ilspeglun (þar sem allur ristillinn er rannsakaður) og stutt ristilspeglun (þar sem bara neðsti hluti ristils og endaþarmur eru rannsakaðir) eru því áhugaverðar sem skimunaraðferðir fyrir KRE. Önnur viðurkennd aðferð er að leita að blóði í hægðum (Fecal occult blood test; FOBT). Nýjar aðferðir eins og tölvusneiðmynd af ristli og rann- sóknir sem leita uppi stökkbreytt DNA í hægðum eru ekki nægilega þróaðar til að hægt sé að nota þær fyrir stóra hópa í þjóðfélaginu. Skimun fyrir KRE og áróður Áhugasamir læknar og heilbrigðisstarfsfólk í mörgum löndum hafa á síðustu árum beitt sér fyrir miklum áróðri fyrir skimun fyrir KRE með ristilspeglun (4, 5). í nokkrum löndum Evrópu (Þýskalandi, Póllandi, Ítalíu) er nýlega farið að ENGLISH SUMMARY Bretthauer M, Ekbom A, Malila N, Stefánsson T, Fischer A, Hoff G, Weiderpass E, Tretli S, Tryggvadóttir L, Storm H, Holten H, Adami HO - NordlCC (Nordic initiative on Colorectal Cancer) Screening for colorectal cancer Collaboration among politicians and scientists is necessary Læknablaðið 2006; 92: 519-22 Colorectal cancer is one of the most common cancers in the western world. It is especially common in the Nordic countries. In many of the European countries and in the United States colonoscopy is recommended as a screening procedure for CRC. However, there are no randomized studies of the effects of the method on incidence, mortality, possible complications or negative effects on the population. Public pressure to have screening for CRC with colonoscopy will probably increase heavily in the next years to come. We fear that colonoscopy will be introduced as a screening method without proper scientific support. Therefore we want to argue for a common Nordic randomized study on popuiation screening with colonoscopy. Correspondence: michael.bretthauerQrikshospitalet.no Læknablaðið 2006/92 521

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.