Læknablaðið - 15.07.2006, Síða 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐTAL VIÐ ÓLAF ÁRNA SVEINSSON
Hugsunin er kóróna sköpunarverksins
Hávar
Sigurjónsson
Heimspekin er gjarnan sögð upphaf allra vísinda,
hvort sem er hug- eða raunvísinda. Ekki er víst að
allir harðir raunvísindamenn vilji samþykkja þessa
fullyrðingu en dagljóst er að í störfum sínum þurfa
læknar að fást við siðferðilegar spurningar og
kunna við þeim svör, oft án mikils tíma til umhugs-
unar og ríður þá á að þekkja hugtökin og kunna
að beita þeim.
Ólafur Árni Sveinsson lauk kandídatsprófi í
læknisfræði fyrir fjórum árum. Hann hefur síðan
stundað framhaldsnám í lyf- og taugalækningum
hér heima og jafnframt tekið BA-próf í heim-
speki við HI og vinnur nú að meistaraprófsverk-
efni í heimspeki. Hann hyggur á framhaldsnám
erlendis í taugalækningum og starfar á taugadeild
Landspítala.
Hjálpar heimspeki lœknisfrœðinni?
Tengsl heimspeki og læknisfræði eru margvísleg
og ég held að það blundi í mörgum læknum að
kynna sér heimspeki nánar, þeir átta sig flestir á
mikilvægi hennar. Hún er eitthvað sem flestir vilja
kynna sér nánar en komast ekki í það. Fyrir mér er
hugsunin kóróna sköpunarverksins og heimspekin
fjallar um hugsunina. Hún kennir okkur að hugsa
og slípar þetta tæki sem hugsunin er, til að mynda
getuna til að fylgja röksemdafærslu, greina rökvill-
ur, sjá viðfangsefni frá mörgum sjónarhornum svo
eitthvað sé nefnt. Það má setja spurningarmerki
hvort heimspekin hjálpi læknisfræðinni sérstak-
lega, umfram aðrar fræðigreinar, en bersýnilega
hjálpar þessi tækni öllum vísindamönnum, sér-
staklega ef viðfangsefnið er mjög flókið og taka
þarf tillit til margra þátta við úrlausn þeirra. Það
má líka spyrja hvort læknisfræðin hjálpi ekki heim-
spekinni, sem mér finnst hún gera. Hún hjálpar
mér að minnsta kosti að rauntengja heimspekina.
Þó heimspekin sé góð er hún engin allsherjarlausn
og svarar alls ekki alltaf eigin spurningum, enda
erfiðar en tæknin sem menn læra í heimspeki getur
nýst mjög vel í öðrum greinum. Með því að greina
rökin og varpa ljósi á vandamálið er svarið oftast
augljóst.
Hvers konar vandamál ertu þá með í huga?
Hugsum okkur að læknir standi frammi fyrir
því að þurfa að ráðleggja sjúklingi ákveðna með-
ferð sem hefur bæði kosti og galla í för með sér.
Auðvitað er það klínísk reynsla og þekking sem
hjálpar mönnum mest við slíkar aðstæður en heim-
spekin skerpir hugsunina og hjálpar mikið við að
greina vandann. Hún hjálpar manni að finna út
hverjir eru persónur og leikendur vandans ef svo
má segja. En eins og ég sagði áðan þá er heim-
spekin engin allsherjarlausn. Hún hefur sín hugtök
og það getur verið erfitt að komast inn í hugs-
unarhátt hennar. Það tekur langan tíma að verða
læs á heimspeki og ég veit ekki hvort ég er orðinn
það fyllilega ennþá.
Hvað með heimspeki á íslandi?
Segja má að Islendingar séu almennt lítið læsir
á heimspeki miðað við aðrar bókmenntagreinar.
Lítil hefð er fyrir heimspekilegri umræðu hér á
landi. Víða á meginlandi Evrópu er heimspeki
hluti af menningunni en það hefur verið sagt að
hér á Islandi hafi þjóðin alist upp við einræður,
mónólóg, í formi frásagna og ljóðalesturs en lítið
um samræður, díalóg, en þann hæfileika þroskar
heimspekin einna mest. En samræðan er að mínu
mati lykillinn að því að leysa vandamál. Maðurinn
er ekki eyland og þarf aðstoð. En til þess að
samræðan beri árangur verður hún að fara rétt
fram. Menn verða að hafa samræðuhæfileika og
samræðuvilja annars gagnast hún lítið. Hvort sem
samræðan á sér stað við aðra lækna eða sjúkling-
inn er samræðan leiðin til að nálgast vandann að
mínu mati. Góð samræða er þar sem tveir aðilar
mætast af heilindum í sjálfu viðfangsefninu með
það að markmiði að leysa það. Jafnvel þó annar
aðilinn hafi meiri fræðilega þekkingu á efninu eins
og læknirinn þá er það engu að síður sjúklingurinn
sem upplifir vandamálið og þekkir sinn líkama
best. Þarna mætist því tvenns konar þekking,
fræðileg þekking læknisins og huglæg þekking
sjúklingsins.
Það er geysilega gaman og menntandi að nálg-
ast manninn frá mismunandi sjónarhornum og
beita við það mismunandi aðferðum og hugtökum.
Sjálfur lít ég á læknisfræði sem hluta af húmanisma
í þeim skilningi að bæði heimspeki og læknisfræði
fjalla um manninn frá ólíkum hliðum og með því
að tileinka sér sem flest sjónarhorn fær maður
fyllri sýn á manneskjuna. Þessi sýn á líka við um
hinar mörgu greinar læknisfræðinnar. Þó lækn-
isfræðin skiptist oft mjög skýrt í ákveðnar greinar
þá eru skilin á milli sjúkdóma ekki alltaf jafn skýr.
Skil milli sjúkdóma eru mannanna verk og oft
festast læknar á sérsviði sínu og loka á allt annað.
Þó maður geti aldrei kunnað allt er nauðsynlegt
að nálgast sjúklinginn í víðum skilningi. Ég held
að heimspekin hjálpi manni við það. Það sem ég
er að reyna að segja er að finna verður ákveðinn
milliveg, bræðing úr tveim skólum, læknisfræði og
heimspeki. Þar sem fögin hjálpa hvort öðru.
Afhverju hefurþú áhuga á heimspeki?
Mér finnst í rauninni erfitt að skilja hvernig fólk
552 Læknablaðið 2006/92