Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2006, Síða 46

Læknablaðið - 15.07.2006, Síða 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR Á HLAUPUM Læknar á hlaupum Hávar Sigurjónsson Fyrirsögn þessarar greinar bendir nú tæplega til þess að stórfrétt sé í burðarliðnum því hvenær hafa læknar ekki verið á hlaupum í einhverjum skilningi. Myndin sem almenningur hefur af læknisstarfinu hefur einmitt þróast í þá átt að starf læknisins sé eilíft kapphlaup við tímann og mannslífum sé helst ekki bjargað nema þrír bráðaliðar séu á harðaspretti með sjúklinginn dauðveikan á ambúlantinum og læknateymið brokki andstutt við hlið hans, hrópi skipanir í allar áttir og fremji kraftaverk um leið. Örstutt könnun á dagskrá sjónvarpsstöðvanna leiðir í ljós að minnsta kosti þrjá þætti sem birta þessa mynd af læknunum og eru þá ótaldir allir þeir þættir sem byggja á starfi meinafræðinga þar sem krukkað er í misjafnlega á sig komin lík með gríðarlega góðum árangri fyrir réttvísina. En það eru aðrar sögur sem kalla bara á venjulegan gönguhraða. Flópurinn sem stundar langhlaup með góðum árangri og skýrum markmiðum fer sífellt stækkandi hérlendis sem annars staðar og þó engin vísindaleg rannsókn hafi farið fram á því hvort ein stétt um- fram aðrar stundi hlaup sér til heilsubótar þá er ljóst að allmargir læknar eru öflugir hlauparar. Skemmst er minnast frétta af því að Höskuldur Kristvinsson skurðlæknir lauk Ironman þríþrautinni í Arizona í Bandaríkjunum nú í mars með góðum árangri, en þrautin felst í því að synda 3,8 km, hjóla 180 km og hlaupa síðan eitt maraþon 42,2 km. Þessu lauk Höskuldur á rúmum 16 klukkutímum og geri aðrir betur. Sannkallaður járnkarl hann Höskuldur. Þá er rétt að halda því til haga að fyrsta skráða árangur hérlendis í maraþonhlaupi á Högni Óskarsson geðlæknir er hann hljóp í New York maraþoninu 1976. Þarna á milli hafa fjölmargir fráir læknar komið við sögu enda öðrum betur upplýstir um gildi góðrar hreyfingar og tengsl hinna gömlu en ávallt gildu sanninda um heilbrigða sál í hraustum líkama. Brœðurnir Oddgeir og Kjartan Gylfasynir unnu það einstœða afrek í Kaupmannahöfn þann 21. maí sl. að hlaupa báðir heilt maraþon. Petta vœri kannski ekki í frásögur fœrandi nema afþví að Oddgeir þáði nýra af bróður sínum Kjartani og mun þetta vera eins- dœmi í veröldinni að nýrnaþegi og nýrnagjafi hlaupi saman maraþon. Peir brœður eru báðir starfandi tannlæknar í Reykjavík. 554 Læknablaðið 2006/92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.