Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 11
RITSTJÓRNARGREINAR Vangaveltur skurðlæknis að lokinni vel heppnaðri ráðstefnu HI um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í byrjun árs fór fram í Öskju 13. ráðstefnan unt rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum við Háskóla Islands. Ráðstefna þessi hefur verið hald- in annað hvert ár frá 1981, fyrst á vegum lækna- deildar, en frá árinu 2003 einnig með þátttöku tannlæknadeildar, og lyfjafræðideildar og hjúkr- unarfræðideildar frá árinu 2005. Ég hef aðeins átt þess kost að taka tvisvar þátt í ráðstefnunni, enda lengst af verið fjarri góðu gamni við nám og störf erlendis. Það er óhætt að segja að þessi ráðstefna hafi komið mér þægilega á óvart og hún er að- standendum til sóma, bæði hvað varðar vísindalegt innihald og skipulag. Alls voru kynnt á ráðstefn- unni hátt á þriðja hundrað erinda og voru flest flutt með sjö mínútna löngum erindum og þriggja mínútna umræðna á eftir. Þetta fyrirkomulag reyndist ágætlega. Stutt erindi gerðu fleirum kleift að halda fyrirlestra um rannsóknir sínar en fyr- irlestrar voru yfirleitt mjög vel sóttir. Rúmlega 100 erindi voru kynnt sem veggspjöld og nutu þau sín ágætlega á veggjum Öskju. Þó hefði ekki sakað ef veggspjöld hefðu verið kynnt með formlegri hætti, líkt og algengt er á ráðstefnum erlendis. Þetta er til dæmis hægt að gera með því að skipuleggja göngu á milli áhugaverðustu veggspjaldanna, höf- undar látnir kynna þau og þeir síðan spurðir spjör- unum úr. Skipuleggjendur ráðstefnunnar gætu haft þetta í huga að ári. Gestafyrirlestrar voru einnig áhugaverðir og var komið víða við innan heilbrigðisvísinda, allt frá erfðafræði algengra sjúkdóma til forvarna gegn þunglyndi. Þessi fjöl- breytni fyrirlestra er skemmtileg tilbreyting frá þeirri þróun sem orðið hefur innan læknisfræðinn- ar og leitt hefur af sér sífellt meiri sérhæfingu og þrengingu fræðasviða. Fjölbreytni er einmitt helsti styrkur svona þings og það er ekki á hverjum degi sem okkur spítalalæknum gefst kostur á að kynna rannsóknir okkar fyrir kollegum í óskyldum sér- greinum og grunnrannsóknum, eða að þeir fái að kynna rannsóknir sínar fyrir okkur. Umræður taka á sig fjölbreyttari rnynd og möguleikar opnast á alls konar samslarfi. Ánægjulegast á þinginu var þó að verða vitni að gróskunni í doktorsnámi við þessar deildir Háskólans. Sex doktorsnemar kynntu rann- sóknir sínar en þau höfðu öll hlotið styrki úr Háskólasjóði Eimskipafélags íslands á síðasta ári. Verkefnin voru hvert öðru betra og kynningar nemanna til fyrirmyndar. Læknadeild átti þarna glæsilega fulltrúa og ég þori að fullyrða að þessi rannsóknarvinna gefur doktorsvinnu við háskóla í nágrannalöndum okkar ekkert eftir. Vonandi verður framhald á þessari þróun enda tel ég efl- ingu doktorsnáms vera eitt mikilvægasta verkefni læknadeildar á komandi árum. Að loknu vel heppnuðu þingi vakna þó spurn- ingar. Til dæmis er áberandi hversu þátttaka er breytileg eftir sérgreinum læknisfræðinnar. Lyflækningar, sérstaklega hjarta-, lungna- og smit- sjúkdómalækningar, voru mjög áberandi en minna fór fyrir öðrum stórurn greinum, þar á meðal skurðlækningum. Nú er ekki hægt að álykta sem svo að þátttaka á þessu þingi endurspegli rann- sóknarvirkni lækna. Engu að síður er ljóst að í sér- greinum skurðlækninga er rannsóknavirkni dræm. Þar hefur ekki orðið sama „sprenging" í rannsókn- um og hjá öðrum greinum og spurningin er hvað valdi þessu. Ekki geta margar sérgreinar á Islandi státað af jafn mörgum sérfræðingum sem lokið hafa doktorsprófi við erlenda háskóla. Það er einfaldlega vegna þess að erlendis eru rannsóknir stór og mikilvægur hluti af sérnámi skurðlækna. Eðlilegt er að sömu gildi séu viðhöfð hér á landi og að rannsóknir séu stundaðar bæði fyrir og eftir að sérnámi lýkur. Ljóst er að bæði sérfræðingar og unglæknar verða að taka höndum saman og breyta þessu. Sameining spítalanna er að baki og aðstæð- ur til að sinna rannsóknum hafa sennilega aldrei verið jafn ákjósanlegar. Skurðlæknar og unglæknar á leið í sérnám bera því gjarnan við að þá skorti tíma til að sinna rannsóknum og er mikilvægt að endurskipuleggja vinnu þeirra með þetta í huga. Það er framkvæmanlegt og er augnlæknisfræði þar ágætt dæmi. Um er ræða sérgrein þar sem rann- sóknir bæði yngri og eldri kollega blómstra. Þetta kom berlega í ljós á nýafstöðnu þingi og ætti að verða öðrum sérgreinum til fyrirmyndar. Það er full ástæða til að hvetja lækna innan allra sérgreina að taka þátt í þeirri „uppskeruhátíð" sem Háskólaráðstefnan er. Slíkt styrkir sérgrein- arnar og ekki síst læknadeildina. Um leið er þrýst á kennara deildarinnar að sinna rannsóknum og kynna þær á opinberum vettvangi. Það er eðlileg krafa og mikilvægt skref í þeirri viðleitni að efla enn frekar rannsóknir við læknadeildina. Tómas Guðbjartsson tomasgud@landspitali.is A surgeon’s thoughts on acadenúc activity Tomas Gudbjartsson, MD, PhD. Dept. of Cardiothoracic Surgery, Landspítali University Hospital The Faculty of Medicine, University of Iceland. Tómas Guöbjartsson, sérfræðingur í hjarta- og lungnaskurðlækningum við Landspítala og aðjúnkt við læknadeild HÍ.Tómas er jafnframt formaður Skurðlæknafélags íslands og á sæti í ritstjórn Læknablaðsins. Læknablaðið 2007/93 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.