Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2007, Síða 13

Læknablaðið - 15.02.2007, Síða 13
FRÆÐIGREINAR / SARKLÍKI Sarklíki á íslandi 1981-2003 Sigríður Ólína Haraldsdóttir1 SÉRFRÆÐINGUR í LYF- OG LUNGNALÆKNINGUM Kristín Bára Jörundsdóttir1 HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Friðrik Yngvason2 SÉRFRÆÐINGUR í LUNGNA- LÆKNINGUM Jóhannes Björnsson3 SÉRFRÆÐINGUR f LÍFFÆRAMEINAFRÆÐI Þórarinn Gíslason1 SÉRFRÆÐINGUR í LUNGNA- LÆKNINGUM ‘Lungnadeild Landspítala, 2Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, Vannsóknastofa Háskólans í meinafræði. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Sigríður Ólína Haraldsdóttir, lungnadeild Landspítala Fossvogi, 108 Reykjavík. Sími: 543 1000. sigrohar@landspitali. is Lvkilorð: sarklíki, faralds- frœði, kynjatnunur, svipgerð. Ágrip Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni sarklíkis á Islandi, birtingarform sjúkdómsins og mögulega áhrifaþætti umhverfis. Efniviður og aðferðir: Allar vefjagreiningar á ár- unum 1981-2003 á hnúðabólgu á rannsóknastofum í ineinafræði voru kannaðar og sarklíkitilfelli vinsuð frá. Utskriftargreiningar á Landspítala og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri voru kannaðar með tilliti til sarklíkis og athugað hvort vefjagrein- ing lægi fyrir. Peir sem greindust með sarklíki sam- kvæmt vefjasýni mynda rannsóknarhópinn. Niðurstöður: AIls fundust 235 sjúklingar með sarklíki og var nýgengið 3,84/100 þús/ári. Á fyrri hluta rannsóknartímabilsins var nýgengið 2,8/100 þús/ári, en hlutfallslega hærra, 5/100 þús/ári, á seinni helmingi tímabilsins. Nýgengi sarklíkis var lægra en annars staðar á Norðurlöndunum. Konur voru 122 (52%) og karlar 113 (48%). Meðalaldur kvenna við greiningu var 50,8 ár, en meðalaldur karla 47,5 ár. Meðalaldur var hærri við greiningu hér á landi en víðast annars staðar. Algengust voru einkenni frá öndunarfærum. Augneinkenni og hnútarós var sjaldgæft í þessum hópi og lífs- hættuleg einkenni frá hjarta eða taugakerfi voru afar sjaldgæf meðal íslenskra sarklíkissjúklinga. Ályktun: Lægra nýgengi má líklega rekja til strangari inntökuskilyrða í þessari rannsókn en í öðrum faraldsfræðilegum rannsóknum. Skýring á hærri meðalaldri við greiningu liggur ekki ljós fyrir. Skráning mögulegra áhrifaþátta sarklíkis og uppvinnsla sjúklinga þyrfti að vera markvissari. Inngangur Árið 1877 lýsti breskur læknir, Jonathan Hutchinson (1828-1913), sjúklingi með útbrot á húð, bólgu í fingurlið og nýrnabilun. Talið er að þetta sé eitt fyrsta sarklíkistilfelli sem lýst hefur verið (1). Norðmaðurinn Caesar Boeck lýsti fyrst- ur manna vefjafræði sarklíkis og nefndi „sarcoid" þar eð hann taldi smásætt útlit líkjast mjúkvefja- æxli (sarcoma) (1). Nú á dögum er greining sark- líkis byggð á sjúkdómsmynd og myndgreiningu að viðbættri vefjagreiningu sem bendir til sarklíkis, það er að segja hnúðabólga (granuloma) án yst- ingsdreps (2) og hafa þá aðrar orsakir hnúðabólgu verið útilokaðar. Sarklíki er bólgusjúkdómur af óþekktum or- sökum. Oþekktur mótefnavaki ræsir ónæmissvar og hnúðabólga myndast. Hnúðabólgur geta komið fram í öllum líffærum mannsins. Á röntgenmynd- um sjást eitlastækkanir í miðmæti hjá allt að 90% sjúklinga, sarklíki finnst í augum hjá 20-30% og í húð hjá fjórðungi tilfella. Liðeinkenni eru hjá 25- ENGLISH SUMMARY Haraldsdóttir SÓ, Jörundsdóttir KB, Yngvason F, Björnsson J, Gíslason Þ Sarcoidosis in lceland 1981-2003 Læknablaöiö 2007; 93: 103-7 Objective: To investigate the incidence of sarcoidosis in lceland, its clinical manifestations and pontential environmental influences. Materials and methods: All histopathological diagnoses of non-necrotizing granulomas generated in lceland during the period 1981-2003 were reviewed with respect to a diagnosis of sarcoidosis. Further, patients were identified by searching hospital discharge diagnoses at the University Hospital in Reykjavik and the Regional Hospital in Northern lceland. Only histologically verified cases were included. Results: A total of 235 patients were found with histopathologically proven sarcoidosis. Limited to patients verified by tissue diagnosis, the annual incidence of sarcoidosis is 3,84/100.000/year. The incidence was found to be 2,8/100 000/year during the first half of the investigation period and 5,0/100 000/year during the second. This rate is lower than in other Nordic countries. There were 122 women and 113 men. The mean age at diagnosis was 50,8 years for women and 47,5 for men. The mean age at diagnosis was higher in lceland than elsewhere. Clinically, respiratory symptoms predominated. Ocular symptoms and erythema nodosum are rare, and life-threatening cardiovascular and neurological manifestations are distinctly unusual. Conclusion: The low incidence is undoubtedly due to the strict inclusion criteria in the present study, i.e. only those with a tissue diagnosis were included. We have no explanation as to the higher age at diagnosis in lceland than elsewhere. Registration of possible environmental factors and clinical evaluation may be improved. Key words: sarcoidosis, epidemiology, gender differences, phenotype. Correspondence: Sigríður Ó. Haraldsdóttir, sigrohar@iandspitati.is Læknablaðið 2007/93 105

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.