Læknablaðið - 15.02.2007, Page 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐ UTAN
Hver er X-factor
læknastéttarinnar?
Kamran Abbasi, ritstjóri Journal of the Royal
Society of Medicine, skrifaði beinskeyttan leið-
ara í upphafi ársins um það hvert læknar stefna
sem fagstétt. Hann dregur líkingu af sjónvarps-
þættinum X-factor (ísl. óþekkta stærðin) þar sem
sigur snýst um að hafa þetta „eitthvað” umfram
hina keppendurna, hvort heldur það er kunnátta,
útgeislun eða eitthvað annað sem vekur athygli
á einum umfram hina. Algengir frasar dómara
X-factor-keppninnar eru á þessa leið: „Miklir hæfi-
leikar vinur, en þig vantar sannfæringuna um hvert
þú stefnir.” „Breytt ímynd myndi hafa frábær
áhrif”, og „Þú hljómar ágætlega á þínu afmarkaða
sviði en geturðu eitthvað þar fyrir utan?”
Og Abbasi spyr í framhaldinu hvernig túlka eigi
sívaxandi óánægju læknastéttarinnar með stöðu
sína innan breska heilbrigðiskerfisins - takið eftir
að hér er alls ekki verið að tala um íslenska heil-
brigðiskerfið og kannski á ekkert af þessu við
íslenska læknastétt. „Rómantíkin er löngu horfin
og ungir Iæknar eru svartsýnir og síkvartandi.
Þetta hefur reyndar alltaf verið svo. Læknar hafa
tamið sér hugarfar umsátursástands til að ráða
við vinnuálag sem þeir hafa alls ekki verið und-
irbúnir fyrir og það veldur álagi við skipulagningu
og ákvarðanatöku. Þó virðist meinið ná dýpra á
sjúkradeildum vorum. Læknum finnst þeir van-
metnir og ofstjórnað. Lítill X-factor fólginn í því,”
segir Abbasi.
Og hann heldur áfram: „Rómantíkin - í sínum
víðasta skilningi - sem Kildare sjónvarpslæknir
naut í ríkum mæli, er á hröðu undanhaldi úr lækn-
isstarfinu. Óánægja er af hinu góða og vissulega
mikilvæg þegar hún snýst um eitthvað sem skiptir
máli, eins og til dæmis hugmyndafræði heilbrigð-
isþjónustu. En þegar læknar kvarta undan launa-
kjörum sínum þá hljómar það eins og þingmenn
sem heimta milljón á mánuði í lágmarkslaun.
X-factorinn sem heillaði ungmenni að starfsgrein
sem var sveipuð dýrðarljóma, naut virðingar og
bauð upp á að bjarga mannslífum að auki (ekki
endilega í þessari röð) er hins vegar erfiðara að
koma auga á.”
Abbasi spyr hvort læknar vilji verða vélmenni,
tæknimenn eða upplýsingamiðlarar. „Heilbrigð-
isþjónustan yrði örugglega hagkvæmari í rekstri
ef vélmenni kærnu í stað lækna sem eru í stöð-
ugri baráttu fyrir klínísku frelsi. Kannski ekki
vélmenni, en hvað um tæknimenn? Verðurn við
áfram alvitrir leiðtogar klínískra teyma eða verð-
um við tæknimenn sem gera sitt og hverfa svo af
vettvangi? Tveir hjartaskurðlæknar nefndu þetta
við mig á dögunum. Framtíð hjáveituaðgerða, að
þeirra sögn, er að skurðlæknirinn rétt lætur sjá
sig til að framkvæma tengingarnar og lætur hina
meðlimi hjartaaðgerðateymisins sjá um allt hitt.
Einhverjum kann að finnast þetta helgispjöll en
kannski er þetta betra fyrir sjúklinginn og hag-
kvæmara fyrir heilbrigðisþjónustuna.”
Og Abbasi heldur ótrauður áfrarn að leita X-
factornum og spyr hvernig læknum eigi að takasl
að finna þann X-factor sem nær til og laðar ungt
fólk að starfinu. „Það verður kannski ekki töfra-
meðalið sem læknar þekktu svo vel áður; VALD.
Satt að segja eru mjög góðar ástæðar fyrir því að
þannig eigi þetta ekki að vera. Miðaldurskrísa
læknastéttarinnar er kannski einkenni um barátt-
una samfara því að breytast úr karlstýrðri stétt yfir
í stétt beggja kynja sem hefur rými fyrir ákvarð-
anatöku. Læknar nýja tímans verða safnarar upp-
lýsinga sem koma sjúklingum til góða - hinn end-
anlegi upplýsingamiðlari - í stað veiðimannsins
sem reiðir sig á fáfræði sjúklingsins til að viðhalda
völdum sínunt og stöðu. Aðdráttarafl þekking-
armiðlarans verður sterkt í hinum nýja heimi sem
þjáist af offlæði upplýsinga. Þekking eins og við
vitum er vald, en miðlun hennar er verðmætari en
varsla hennar. Gæti þetta verið X-factorinn sern
stétt okkar leitar eftir?”
Hávar
Sigurjónsson
Heimasíða blaðsins
Journal ofthe Royal
Society of Medicine,
www.jrsm.org
Læknablaðið 2007/93 139