Læknablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 78
MINNISBLAÐIÐ
Frágangur
fræðilegra greina
Ráðstefnur og fundir
Höfundar sendi tvær gerðir
handrita til ritstjórnar Lækna-
blaðsins, Hlíðasmára 8,201
Kópavogi. Annað án nafna
höfunda, stofnana og án þakka
sé um þær að ræða. Greininni
fylgi yfirlýsing þess efnis að
allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir
afsali sér birtingarrétti lil
blaðsins.
Handriti skal skilað með tvö-
földu línubili á A-4 blöðum.
Hver hluti skal byrja á nýrri
blaðsíðu í eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og niyndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar myndir og gröf
komi á rafrænu formi ásamt
útprenti.Tölvugögn (data) að
baki gröfum fylgi með, ekki
er hægt að nýta myndir úr
PowerPoint eða af netinu.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi með
útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
www.laeknabladid.is/bladid
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi mánaðar
nema annað sé tekið fram.
2.-3. apríl
London.
Institute of Psychiatry , King’s College í Lond-
on heldur þing: Depression:
Brain causes - Body consequences. Skrán-
ing til 14. febrúar. Sjá nánar:
www.iop.kcl.ac.uk/depression
11-13 maí
Nyborg á Fjóni.
Árlegt þing Scandinavian Society for the
study of Diabetes verður haldið í
Danmörku að þessu sinni, sjá nánar:
www.ouh.dk/sssd2007
30. maí - 1. júní
Grand Hótel, Reykjavík.
5. norræna ráðstefnan um rannsóknir
á einhverfu. Upplýsingar og skráning:
www.yourhost.is/nocra2007
13.-16. júní
Reykjavík.
15. þing norrænna heimilislækna, undir heit-
inu: „The human face of medicine in a hi-tech
world“. Sjá nánar:
www.meetingiceland.com/gp2007
27.-30. júní
Reykjavík.
46. ársfundur International Spinal Cord
Society (ISCoS) og samhliða því er 10. þing
Nordic Spinal Cord Society (NoSCoS).
Allar upplýsingar: www.sci-reykjavik2007.org
21.-23. september
Vín, Austurríki.
5. heimsþingið um heilsu karlmanna: world
congress on men’s health & gender.
Sjá nánar www.wcmh.info
Svar við tilfelli mánaðarins (febrúar 2007)
Hér er um að ræða nieöfæddan lungnahluta (pulmonary sequestration) í neðri hluta brjóst-
hols vinstra megin. Greiningin fæst á mynd 2, en þar sést slagæðagrein sem liggur til neð-
anverðs vinstra lunga. Upptök æðarinnar eru frá ósæð í kviðarholi (í stað lungnaslagæðar),
rétt ofan við vinstri nýrnaslagæð.
Meðfæddur lungnahluti er sjaldgæfur meðfæddur galli þar sem hluti lungna er án tengsla
við lungnaberkjur og lungnablóðrás. Lungnahlutinn tekur þvf ekki þátt í loftskiptum. Oftar
en ekki veldur lungnahlutinn einkennum, oftast lungnasýkingum, en sjúklingarnir geta verið
einkennalausir og greinast stundum fyrir tilviljun.
Oft vaknar grunur á tölvusneiðmynd en greininguna er hægt að staðfesta með
annaðhvort segulómun eða slagæðamyndatöku. Skurðaðgerð, þar sem lungnahlutinn er
fjarlægður í heild sinni, er yfirleitt sú meðferð sem mælt er með. Slíkt var gert í þessu tilfelli
með góðum árangri.
ítarefni
1. Gudbjartsson T, Gyllstedt E, Jonsson P. Aðskilinn lungnahluti (pulmonary sequestration) - sjúkratilfelli.
Læknablaðið 2003; 89:949-52.
2. Pikwer A, Gyllstedt E, Lillo-Gil R, Jonsson P, Gudbjartsson T. Pulmonary sequestration-a review of
8 cases treated with lobectomy. Scand J Surg 2006; 95:190-4.
Andreas Pikwer, stud. med.
læknadeild háskólans í Lundi
Tómas Guðbjartsson, læknir
hjarta- og lungnaskurðdeild, Landspítala
tomasgud@landspitali. is
170 Læknablaðið 2007/93