Læknablaðið - 15.05.2008, Side 59
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
SJÚKRASKRÁR
Fjármögnun afnám þjóðnýtingar
Séð frá sjónarhóli sjálfstætt starfandi læknis er
gagnagrunnnur sjúkraskrár verðmæti sem á að
meta í fjármunum og taka tillit til við samninga.
Sjúkraskráin er höfundaverk og á að falla undir
STEF-gjöld. Það yrði til þess að vandaðri skráning
verður ekki bara metnaðarmál heldur fjárhagslega
eftirsóknarvert.
Samstarf
Sameiginleg markmið læknastéttarinnar og tækni-
fólks verður að endumýja sífellt varðandi meg-
inþarfir sem uppfylla skal svo rafræn sjúkraskrá
staðni ekki í formi og innihaldi. Tæknin á að þjóna
sem verkfæri. Það á að móta verkfærið eftir starf-
seminni án mikillar fyrirhafnar og tilkostnaðar.
Niðurstaða
Rafræn framtíð okkar er í mótun og þar með
möguleiki til að hafa áhrif á hana. Almenningur
hefur háar hugmyndir um rafrænar sjúkra-
skrár í samskiptum innan heilbrigðiskerfisins.
Samkvæmt hefð telur sami almenningur það vera
hlutverk lækna að koma væntingum sínum í móti.
Það er aldagamalt traust sem stéttinni hefur verið
falið við geymslu og ráðstöfun viðkvæmra gagna
sem er í húfi. Ef ætlunin er að láta skeika að sköp-
uðu hafa læknar misst meira en frumkvæðið.
1. Marteinsson V. Sagan og 55 ára læknar á vakt. Læknablaðið
2005; 91: 286-7.
2. Kjeld M. Undarlegar tilhneigingar í heilbrigðisgeiranum. Um
óseðjandi miðstýringarhungur embættismanna. Læknablaðið
2005; 91: 465-6.
'fca
Stöður við myndgreiningardeild
Sjúkrahússins á Akureyri
Sérfræðingur í myndgreiningu við myndgreiningardeild
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í myndgreiningu á myndgreiningardeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða 100% stöðu með vaktaskyldu og
þátttöku í kennslu heilbrigðisstétta. Staðan er laus nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
Umsækjendur skulu hafa lækningaleyfi á íslandi og fullgild réttindi í myndgreiningu (röntgen/geislagreiningu). Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega
þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Deildarlæknir á myndgreiningardeild
Laus er til umsóknar 100% staða deildarlæknis á myndgreiningardeild Sjúkrahússins á Akureyri. Staðan getur nýst til sérfræðináms í myndgreiningu. Starfinu
fylgir vaktaskylda. Staðan er laus nú þegar eða samkvæmt samkomulagi. Deildarlæknirinn fær í starfi sínu leiðsögn og kennslu hjá fjórum sérfræðingum
deildarinnar og auk þess kost á að sækja fræðslufundi og námskeið á starfstimanum. Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á
sviði samskipta og samvinnu. Næsti yfirmaður er Orri Einarsson, forstöðulæknir.
Starfskjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags íslands.
Myndgreiningardeild FSA veitir fjölþætta þjónustu og nær þjónustusvæðið til Norður- og Austurlands. Deildin er vel tækjum búin. Við erum með nýlegt
segulómtæki (Siemens Avanto 1,5Ts) og fáum á þessu ári nýjan DR röntgenbúnað, nýtt ómtæki (Siemens S-2000) og nýtt 64 sneiða tölvusneiðmyndatæki
sem verður meðal annars notað til kransæðarannsókna. Verið er að setja upp nýjan beinþéttnimæli og nýr stafrænn búnaður fyrir brjóstamyndatökur er
væntanlegur á árinu. Deildin er stafræn (filmulaus) og stendur til að uppfæra RIS/PACS hugbúnað með vorinu. Þá eru gerðar ísótóparannsóknir. Starfsandi er
góður og viðmót hlýlegt. Nánari upplýsingar um stöðurnar veitir Orri Einarsson forstöðulæknir í síma 463 0100 orrie@fsa.is
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 15. maí 2008
Umsóknir um ofangreind störf skulu sendar starfsmannaþjónustu FSA, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri bjarnij@fsa.is á þartilgerðum eyðubiöðum sem fást hjá landlæknisembættinu.
Umsóknum skulu fylgja ítarlega upplýsingar um nám og starfsferil ásamt með upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf, auk kennslustarfa. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf við FSA er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. FSA er reyklaus vinnustaður.
LÆKNAblaðið 2008/94 41 1