Læknablaðið - 15.05.2008, Qupperneq 63
U M R Æ Ð
U R
F J
0 G FRÉTTIR
ALLAFERÐIR
Félagar í FÍFL og
jöklarannsóknarfélagi
Landlæknisembxttisins á
tindi Eyjafjallajökuls. Frá
vinstri eru Pétur Ftannesson
röntgenlæknir, Engilbert
Sigurösson geðlæknir,
Áslaug Gunnarsdóttir heim-
ilislæknir, Hjalti Gylfason,
Ingvar Rögnvaldsson,
Hallgrímur Guðjónsson
meltingarlæknir,
Hallgrímur Jónasson, jónas
Þór Jónasson og Tómas
Guðbjartsson brjósthols-
skurðlæknir.
Mynd Dagný Heiðdal.
FIFL á fullri ferð
Laugardaginn 25. apríl stóð FÍFL fyrir árlegri göngu á Eyjafjallajökul. Reyndar stóð upphaflega til að
ganga á jökulinn á sumardaginn fyrsta en vegna veðurs var göngunni frestað um tvo daga. Aðeins 7 af
þeim 20 sem upphaflega höfðu skráð sig gátu tekið þátt. Veður var frábært, sól og gott útsýni en færð í
þyngra lagi vegna nýsnævis og sólbráðar. Gengin var Seljavallaleið með smá útúrdúr á bakaleiðinni.
Alls tók gangan 10 klst. og náðu allir tindinum eftir rúmlega 6 tíma göngu. Á leiðinni urðu sprungur
á leið leiðangursmanna. Á tindinum rákust FÍFLarar á annað göngufélag, Leifar af jöklarannsóknafélagi
Landlæknisembættisins, en í þeim merka félagsskap eru allnokkrir læknar. Reyndar voru landlæknir og
margir kollega hans fjarri góðu gamni en Hallgrímur Guðjónsson meltingarfæralæknir hélt uppi heiðri
félagsins.
FÍFL er með ýmislegt á prjónunum og er stefnt að fjallaskíðaferð á Heklu 4. maí ef veður leyfir og síðar
í sumar gönguferð á Herðubreið og jafnvel Snæfell. Þessar ferðir verðar auglýstar nánar síðar.
Þeir sem hafa áhuga á fjallskíðaferð á Heklu vinsamlega hafið samband við engilbs@landspitali.is eða
tomagud@landspitali.is
LANDSPÍTALI
hAskúlasjúkrahCis
Læknar í starfsnámi
Læknar í starfsnámi óskast á geðsvið frá september eða október 2008 í 4-12 mánuði. Starfshlutfall er 80-100%. Starfið getur nýst sem hluti
af sérnámi í öðrum sérgreinum en geðlæknisfræði og einnig hentað heimilislæknum sem vilja auka þekkingu sína á greiningu og meðferð
geðsjúkdóma. Handleiðsla, fræðsla og vandamálamiðuð hópvinna eru hluti af náminu á geðsviði auk þjálfunar í hvatningarviðtölum og hugrænni
atferlismeðferð. Reynsla af hópmeðferð og þátttaka í rannsóknum stendur áhugasömum umsækjendum einnig til boða. Upplýsingar um stöðurnar
veita Páll Matthíasson, geðlæknir sem hefur umsjón með framhaldsmenntun unglækna á geðsviði, pallmatt@landspitali.is og Engilbert Sigurðsson
yfirlæknir, engilbs@landspitali.is. Umsóknargögn berist fyrir 3. júní 2008 til Páls Matthíassonar, deild 32A við Hringbraut.
Hægt er að nálgast umsókn um lækningaleyfi eða læknisstöðu á heimasíðu LSH. Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og sjúkrahúslækna
og 80-100% starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings við sjúkrahúslækna dags. 02.05.2002, sbr.
breytingu 5. mars 2006. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Landspítali er reyklaus vinnustaður.
LÆKNAblaðið 2008/94 415