Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 12
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Tafla I. Flokkun eftir tilefni mergsýnatöku og tíðni járnleysis í merg i hverjum fiokki. PV = sjálfvakið rauðkornabiæði (polycythemia vera), ET = sjálfvakið blóðflagnablæði (essential thrombocythemia). Fjöldi % með járnskort Grunur um eða eftirlit með illkynja sjúkdómi í merg 32 6 Orsakagreining blóðleysis 20 15 Grunur um járnskort 24 38 Grunur um PV eða ET 4 25 Grunur um mergrangvaxtarheilkenni (myelodysplastic syndrome) 7 0 Önnur ástæða eða illa skilgreind ástæða 2 0 járnskort hjá sjúklingum með bólgusvörun.4-5 Fleiri rannsóknir hafa komið til álita í sama tilgangi, til dæmis sTfR-ferritín-vísir, sem er reiknaður út frá sTfR og ferritíni, CHr (meðalblóðrauðamagn í netfrumum, einnig nefnt RET-He) og aðferð C. Thomas og L. Thomas. Síðastnefnda aðferðin, sem hér er vísað til sem Tómasartöflu, skiptir sjúklingum í fjóra flokka eftir sTfR-ferritín- vísi og CHr og tekur líka mið af CRP til þess að vega upp á móti áhrifum bólgusvörunar á ferritín eins og sést á mynd 1. Tómasartaflan hefur þann kost að geta greint á milli starfræns járnskorts, það er ófullnægjandi framboðs á járni til rauðkornskímfrumna þó að járnbirgðir séu nægar, og raunverulegs járnskorts og hún getur komið að gagni við val á meðferð við blóðleysi og við mat á árangri af þeirri meðferð.M CHr lækkar við járnskort eins og MCV en mun hraðar og eykst aftur í eðlilegt gildi á örfáum dögum þegar rauðkomskímfrumurnar fá aftur nægt járn.9 sTfR- ferritín-vísir hefur verið talinn betri mælikvarði á járnhag en sTfR.3 4 Sú könnun sem hér er greint frá var gerð til þess að meta gildi sTfR við greiningu járnskorts samanborið við gildi annarra blóðrannsókna. Notaðar voru niðurstöður úr mergskoðxmum sem voru gerðar af öðru tilefni hjá óvöldum hópi sjúklinga með margvíslega sjúkdóma. Jámskortur var talinn til staðar ef ekkert járn sást í mergnum. Mat á járnbirgðum í merg með smásjárskoðun CHr pg s 1 Nægar járnbirgölr og eðlilegt járnflnöl tll rauökornsklmfruma 2 Þrotnarjárnbirgölr en eölilegt járnflæði til rauökornsklmfruma 4 Nægar járnbirgðir en skert Járnflæöltll rauðkornsklmfruma 3 Þrotnar járnbirgöir og skert járnflæöl tll rauökornsklmfruma 11 ef CRP > Gmg/L J— 15 ef CRP < 6 mg/L 3 E sTfR-ferritín-visir Mynd 1. Tónmsnrtafla. Flokkun C. Thomas og L. Thomas á járnhag eftir niðurstöðum úr mælingum á CHr, sTfR- ferritín-vísi og CRP. hefur almennt verið talinn góður mælikvarði á járnhag og hefur áður verið notað sem viðmið í hliðstæðum könnunum.3'10-18 Efniviður og aðferðir Þýði: Allir sjúklingar sem fljótandi mergsýni var tekið úr á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) á tímabilinu frá nóvember 1999 til október 2003, voru hlutgengir í könnunina, óháð tilefni til mergsýnitökunnar. Könnunin var skýrð fyrir þátttakendum sem staðfestu þátttöku sína með undirskrift. Alls tóku 113 þátt í könnuninni en við úrvinnslu voru 24 ekki teknir með af eftirtöldum ástæðum: Fjórtán vegna þess að mergsýni var ófullnægjandi til mats á járnbirgðum, sjö vegna þess að niðurstöður úr mælingu á sTfR vantaði og þrír vegna þess að upplýst samþykki sjúklings vantaði. A tímabilinu sem könnunin stóð yfir voru tekin 170 fljótandi mergsýni á FSA þannig að 66% af mögulegum þátttakendum tóku þátt. Orsök þess að ekki tóku fleiri þátt var oftast sú að viðkomandi lækni yfirsást að bjóða þátttöku. I fáeinum tilvikum var þátttaka ekki boðin vegna þess að sami sjúklingur hafði skömmu áður verið þátttakandi eða vegna þess að ekki reyndist unnt að fá fastandi blóðsýni innan þriggja sólarhringa frá töku mergsýnis. Engirtn sjúklingur hafnaði þátttöku. Gildir þátttakendur voru 89, 56 konur og 33 karlar. Meðalaldur þátttakenda var 67,4 ár og aldursbil 20-95 ára. Tilefni mergsýnitöku og tíðni járnskorts í hverjum flokki koma fram í töflu I. Aldur, kyn og niðurstöður mergskoðunar og blóðrannsókna hvers þátttakanda voru skráðar en skráning sjúkdómsgreininga og lyfjameðferðar var ekki stöðluð. Blóðrannsóknir: Blóðsýni voru dregin klukkan 08-10 eftir næturföstu innan þriggja sólarhringa fyrir eða eftir töku mergsýnis. Sermi í mælingu á sTfR var geymt við -70°C þar til að mælingin var framkvæmd. Aðrar rannsóknir voru að jafnaði framkvæmdar innan sólarhrings. Talning rauðra blóðkorna (RBK) og netfrumna og mælingar á blóðrauða (Hb), meðalstærð rauðra blóðkorna (MCV), stærðardreifingu rauðra blóðkorna (RDW, Red cell Distribution Width) og meðalblóðrauða- magni í netfrumum (CHr) voru gerðar með H1 eða H-3 blóðkornateljurum (Bayer Diagnostics, Danmörk) samkvæmt forskrift framleiðanda. CRP (C reactive protein) var mælt með RA- XT efnamæli (Bayer Diagnostics, Danmörk) frá upphafi til nóvember 2000 en síðan með Hitachi 912 efnamæli (Roche Diagnostics, Þýskaland). Prófefni og stýrilausnir frá viðkomandi framleiðendum voru notaðar. Báðar aðferðirnar voru staðlaðar gagnvart sama alþjóðlega staðli og jafngildar. 12 LÆKNAblaðið 2010/96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.