Læknablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 60
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
Húsavík
Heilsugæslulækni vantar á Húsavík
Laus er staða læknis við heilsugæsluna á Húsavík.
Heilbrigðisstofnun Pingeyinga rekur heilsugæslustöðvar á Húsavík, Laugum, Mývatnssveit, Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn. Á Húsavík eru
einnig sjúkradeild og öldrunardeild. Um er að ræða fjölbreytt starf við almenna heilsugæslu og heimilislækningar á Heilsugæslustöðinni á Húsavík,
Mývatnssveit og á Laugum, auk þess að starfa á deildum sjúkrahússins. Þannig gefst kostur á að fylgja sjúklingum vel eftir með flest vandamál.
Á Húsavík eru starfræktar göngudeildir sykursjúkra og offeitra, einnig eru hjartaþolpróf framkvæmd á staðnum.
Á Húsavík eru fjórar stöður heimilislækna, einn sérfræðingur er í meltingarsjúkdómum og einn skurðlæknir, og er samstarf og samvinnan með
ágætum og góður andi á stofnuninni.
Óskað er eftir áhugasömum lækni sem er tilbúinn til starfa utan höfuðborgarsvæðisins, með öllum þeim kostum sem því fylgja.
Húsavík er vinalegur bær í fögru umhverfi. Þar er auk góðrar heilbrigðisþjónustu grunnskóli, tónlistarskóli, framhaldsskóli og öll nauðsynleg
þjónusta. Á sumrin kemur mikill fjöldi ferðamanna í heimsókn til bæjarins sem hefur skapað sér sérstöðu á sviði hvalaskoðunar. Auðugar veiðilendur
í næsta nágrenni.
Áhugasamir hafi samband við Unnstein Júlíusson, yfirlækni heilsugæslunnar í síma 860 7748, unnsteinnjul@heilthing.is eða Jón Helga Björnsson,
framkvæmdastjóra í síma 464 0525 eða 893-3778, jonheigi@heiithing.is
Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar
hjá Heilbrigðisstofnuninni Vestmannaeyjum
Svæfingalæknir
Óskum eftir að ráða sérfræðing í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Um er að ræða fulla stöðu auk bakvakta. Staðan er laus nú þegar
eða eftir nánara samkomulagi. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands og fjármálaráðherra. Nánari upplýsingar veitir Gunnar
K. Gunnarsson forstjóri í síma 4811955, gghiv@eyjar.is
Lyflæknir
Óskum eftir að ráða sérfræðing í lyflækningum. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs frá og með 4 janúar 2010 eða eftir nánara
samkomulagi. Starfshlutfall er 100% auk bakvakta. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags íslands og fjármálaráðherra. Nánari
upplýsingar veitir Gunnar K. Gunnarsson forstjóri í síma 4811955, gghiv@eyjar.is
60 LÆKNAblaðið 2010/96