Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 43
UMRÆÐUR OG FRÉTTIR ÚR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Um vitsmunaflótta íslenskra lækna Valentínus Þór Valdimarsson unglæknir valentva@gmail.com I pistlunum Úrpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Brain drain er ellefta plata pönksveitarinnar Ramones. Á þeirri plötu má finna lagið: „all screwed up". Það má segja að þeir Ramones- menn hafi hitt naglann á höfuðið með þessu lagi því þegar svokallaður vitsmunaflótti (e. brain drain) á sér stað stefnir í óefni. Hvar ætla læknar í sémámi að starfa? í nýlegri könnun á vegum Læknafélags íslands kom í ljós að einungis þriðjungur af þeim sem em í sémámi erlendis em ákveðnir í því að snúa aftur til Islands að loknu námi. Erfiðlega gengur að ráða í stöður lækna sem auglýstar em hér á landi. Á síðum Læknablaðsins streyma inn auglýsingar um atvinnutilboð að utan og fréttir berast um æ fleiri lækna sem em á leið til útlanda í vinnu. Vitsmunaflótti er því orðinn staðreynd á meðal stéttarinnar. Af hverju á vitsmunaflótti sér stað? Það er athyglisvert að vera að stíga sín fyrstu skref sem læknir á þessum tímum. Okkur yngri læknum finnst eins og mörg spjót standi á okkur. Ráðningartímar em styttri en áður og engin vissa um hvað nánasta framtíð ber í skauti sér. Spamaðaráform eiga sér stað í læstum bakherbergjum innan heilbrigðisráðuneytis og í stjórnum heilbrigðisstofnana. Vilji til þess að ræða um spamaðarákvarðanir er lítill af hálfu stjómenda. Laun nýútskrifaðra lækna em orðin lægri en sambærilegra starfsstétta. Þrátt fyrir þetta ætla forsvarsmenn Landspítala að umbylta vaktakerfi yngri lækna og krefja okkur um talsvert fleiri unna tíma í hverjum mánuði á sömu laimum. Þannig er ætlun forsvarsmanna Landspítala að rýra starfsskilyrði okkar, félagsleg gæði og kjör. Tilraunir okkar til þess að koma til móts við Landspítala hafa reynst vonlitlar og erfitt hefur verið að ná eyrum forsvarsmanna. Þessi glíma okkar við spítalann hefur því verið erfið. Hvernig getum við reynt að hindra vits- munaflótta á Islandi? Sú speki að mannauður fyrirtækis sé það sem heldur því uppi er ekki ný af nálinni. I heilbrigðisþjónustu á þetta jafnvel betur við en á flestum öðrum sviðum. Því er það mjög mikilvægt í allri stjómun að laða að hæft starfsfólk og halda því ánægðu svo starfsmenn hverfi ekki jafnskjótt á brott. Ríkissjóði íslands ber að spara umtalsverðar fjárhæðir á næstu misserum - á því leikur enginn vafi. Spamaður í heilbrigðiskerfinu er óhjákvæmilegur. f þessum spamaði er eina leið Landspítala og íslenska ríkisins til þess að forðast vitsmunaflótta að fá vel menntað starfsfólk með sér í lið. Hvemig er best að spara? Hvar má spara og hvar skyldi síst spara? Ef stjómendur stærstu heilbrigðisstofnananna á íslandi og stjórnendur heilbrigðismála halda áfram starfi sínu óbreyttu þá verðum við „all screwed up". Stjórn Læknafélags íslands árið 2010 Birna Jónsdóttir, röntgenlæknir, formaður Þórarinn Guðnason, hjartalæknir, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, bæklunarlæknir, gjaldkeri Sigríður Ó. Haraldsdóttir, lungnalæknir, ritari Kristján G. Guðmundsson heilsugæslulæknir Ragnar Gunnarsson barnalæknir Sigurður Böðvarsson krabbameinslæknir Valentínus Þór Valdimarsson unglæknir Valgerður Rúnarsdóttir fíknlæknir LÆKNAblaðið 2010/96 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.