Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2010, Síða 23

Læknablaðið - 15.01.2010, Síða 23
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN greindust 55 stúlkur á fyrra tímabilinu, nýgengi 11,9 af 100.000 (95% CI; 8,7-15,0) og 68 á síðara tímabilinu, nýgengi 13,7 af 100.000 (95% CI; 10,4- 16,9). Heildarnýgengi krabbameina hjá drengjum var 16,1 af 100.000 (95% CI; 13,6-18,6) og hjá stúlkum 12,8 af 100.000 (95% CI; 10,5-15,0) en munurinn reyndist ekki marktækur.. Æxli í miðtaugakerfi (78 tilvik) og hvítblæði (72 tilvik) voru algengustu krabbameinstegundimar, samtals 150 tilvik af 288 eða 52,1% tilvika (mynd 2). Bráðaeitilfrumuhvítblæði var algengasta hvítblæðistegundin, 58 af 72 tilvikum, en síðan kom bráðamergfrumuhvítblæði, 12 af 72. í þremur tilvikum að auki var ekki hægt að flokka á milli bráðaeitilfrumu- og mergfmmuhvítblæðis. Þrjú tilvik af langvinnu hvítblæði greindust og tvö af myelodysplastic syndrome (MDS). Eitil- fmmukrabbameinin (32 tilvik) skiptust nokkuð jafnt á milli Hodgkins og Non-Hodgkins gerða, 18 af 32 og 14 af 32. Æxli í miðtaugakerfi greindust hjá 78 einstaklingum og af þeim voru stjarnfrumna- æxli (astrocytoma) algengust 38 af 78. Níu af 78 æxlum í miðtaugakerfi voru í undirflokknum Intracranial and intraspinal embryonal tumors en af þeim voru sex primitive neuroectodermal tumor (PNET) og þrjú mænukímfrumnaæxli (medulloblastoma). Tólf tilvik greindust af tauga- kímfrumnaæxlum, fimm sjónukímfrumnaæxli og 11 æxli í nýrum, öll nýrnakímfrumnaæxli. Tvö tilvik greindust af lifrarkrabbameini, eitt lifrarþekjuvefsæxli (hepatocellular carcinoma) og annað lifrarkímfrumnaæxli (hepatoblastoma). Af 18 tilvikum með illkynja krabbamein í beinum voru 13 með beinsarkmein (osteosarcoma) og fimm með Ewing's sarkmein. Mjúkvefjasarkmein greindust í 21 tilviki, 13 með rákvöðvasarkmein (rhabdomyosarcoma) og af þeim voru níu af embryonal gerð, tvö af alveolar gerð en í tveimur tilvikum var ekki greint á milli embryonal og alveolar gerðar. Þrettán tilvik greindust af kímfrumuæxlum (germ-cell neoplasms) og 24 af þekjufrumuæxlum. Ekkert tilvik greindist i ICCC- 3 flokki XII „Other and unspecified malignant neoplasms". Góðkynja æxli í kynkirtlum og beinum voru 24 talsins og voru undanskilin frá rannsókninni. Að auki voru tvö meðferðartengd MDS tilvik ekki tilkynnt til Krabbameinsskrár íslands. Almennt var samræmi milli Krabbameinsskrár íslands og sjúkraskráa sjúkrahúsanna mjög gott. A mynd 3 má sjá nýgengi krabbameina eftir ICCC-3 flokkum og kynjaskiptingu þeirra. Þar sést að drengir greinast marktækt oftar með eitilfrumukrabbamein en stúlkur. Nýgengi eitilfrumukrabbameina hjá drengjum var 2,5 af 100.000 (95% CI; 1,5-3,4) en hjá stúlkum var nýgengið 0,5 af 100.000 (95% CI; 0,1-0,9). Ekki var marktækur munur á milli kynja hjá öðrum krabbameinstegundum. Krabbamein voru algengust á aldrinum 1-2 ára og 16-17 ára. Nýgengið í aldurshópnum 0-4 ára var 17,3 af 100.000 (95% CI; 13,8-20,7), 5-9 ára 10,2 af 100.000 (95% CI; 7,6-12,9), 10-14 ára 12,4 af 100.000 (95% CI; 9,5-15,4) og 15-17 ára 19,6 af 100.000 (95% CI; 14,8-24,3). Yngstu börnin voru með hæsta nýgengið af hvítblæði, taugakímfrumnaæxlum, sjónukímfrumnaæxlum og nýrnaæxlum. Hins vegar var nýgengi eitilfrumukrabbameina, illkynja krabbameina í beinum, kímfrumuæxla og þekjufrumukrabbameina hæst hjá unglingunum (mynd 4). Nýgengi var flokkað eftir búsetu við greiningu. Vegna smæðar þýðisins reyndist ekki mögulegt Mynd 3. Aldursstaölaö nýgengi illkynja sjúkdóma hjá börnum (miðaö við 100.000 börn <18 ára) í heild og eftir kynjum samkvæmt aðalflokkum ICCC-3. I s E | 1 > 1 5 | I S 1 £ I 1 1 5 Mynd 4. Aldursstaðlað nýgengi illkynja sjúkdóma hjá börnum (miðað við 100.000 börn <18 ára) eftir aldurshópum, 0-4 ára, 5-9 ára, 10-14 ára og 15-17 ára. LÆKNAblaðið 2010/96 23

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.