Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2010, Page 39

Læknablaðið - 15.01.2010, Page 39
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN á blóðgjöf, lengdar sængurlegu, hita í sængurlegu eða sýkingar í skurðsári, legi eða þvagfærum. Ekki var marktæk fylgni með hækkandi þyngdarstuðli samhliða hækkandi aldri þó viss tilhneiging væri í þá átt (p=0,055). Fylgjufæöing. Þegar fylgjan var látin fæðast sjálfkrafa voru meiri líkur á sýkingu í skurðsár (3,1%, n=12) samanborið við þau tilfelli þar sem fylgjan var sótt (0,3%, n=l), p=0,02. Þegar fylgjan var sótt voru oftar gefin sýklalyf samanborið við þann hóp þar sem fylgjan var látin fæðast sjálf- krafa, p=0,0043 og gæti það skýrt þennan mun að einhverju leyti. Ekki kom fram marktækur munur á blóðtapi, þörf á blóðgjöf eða sýkingu í legi eftir því hvernig fylgjan fæddist. Meðhöndlun legs. Hjá 28,1% kvennanna var leg tekið út úr kvið á meðan það var saumað. Ekki var tölfræðilega marktækur munur á hita í sæng- urlegu (p=0,68), sýkingu í skurðsári (p=0,55) eða legi (p=0,52), þvagfærasýkingu (p=0,34), áætluðu blóðtapi (p=0,10), blóðtapi alOOOml (p=0,07) eða lækkun í blóðrauða (p=0,58) eftir því hvort leg var tekið út í aðgerð eða ekki. Enduraðgerð. Þær konur sem þurftu að fara í enduraðgerð lækkuðu meira í blóðrauða heldur en aðrar konur (p=0,02) og þurftu frekar á blóðgjöf að halda (p<0,01). Það kemur ekki á óvart í ljósi þess að blæðing sem ekki stöðvaðist sjálfkrafa var helsta ástæða enduraðgerðar. Ekki var tölfræði- lega marktækur munur á áætluðu blóðtapi í upphaflegri aðgerð (p=0,96) samanborið við aðrar konur né heldur voru fleiri sem voru taldar blæða >1000ml (p=0,99) í aðgerð. T-skurður í leg. Þegar T-skurður var gerður í leg (n=7) var aðgerðartími lengri (p=0,03). Einn sjúklingur fékk sýkingu í skurðsár en þar sem um fáa einstaklinga er að ræða er vart hægt að reikna tíðni né marktækni. Konur sem hlutu T-skurð í leg voru með tölfræðilega marktækt hærri líkams- þyngdarstuðul en aðrar konur (p<0,01). Ekki var tölfræðilega marktækur munur á meðgöngulengd Tafla III. Tíðni fylgikvilla við keisaraskurði. Fjöldi / heildarfjöldi Tíðni (%) Blóðtap &1000 ml 124 / 733 16,9 Hiti í sængurlegu (2 38°C) 89 / 729 12,2 Rifa frá legskurði niður 55 / 759 7,2 Þörf á blóðgjöf 33 / 761 4,3 Sýking í skurðsári 14/729 1,9 Höfuðverkur í kjölfar mænudeyfingar 12/730 1,6 Enduraðgerð 11/734 1,5 Garnalömun (ileus) 7/730 1 T-skurður (leg 7/730 1 Sýking í legi 7/729 1 Þvagfærasýking 4/729 0,5 Væg garnalömun (subileus) 2/730 0,3 Lungnabólga 2/730 0,3 Legnám eftir aðgerð 1 /730 0,1 Skaði á þvagblöðru 1 /730 0,1 Sumar konur luku sængurlegu annars staðar en á Landspítala og einnig kom fyrir að aðgerðarlýsingu eða svæfingarblað vantaði, því eru mismunandi nefnarar eftir því hversu margar konur höfðu fullnægjandi gögn til að meta viðkomandi fylgikvilla. Vert er að hafa í huga að hver kona getur haft fleiri en einn fylgikvilla. (p=0,21) eftir því hvort gera þurfti T-skurð í leg eða ekki. Lengd aðgerðar. Aðgerð tók lengri tíma hjá þeim konum sem höfðu áður farið í keisaraskurð en meðalaðgerðartími var 37,5 mínútur en 33,9 mínútur hjá þeim sem fóru í sinn fyrsta keisara- skurð. (Kendall's fylgni marktæk við 0,01 stig), hjá þeim konum sem fengu rifu niður frá leg- skurði (Kendall's fylgni marktæk við 0,01 stig) og hjá þeim sem þurftu á blóðgjöf að halda í kjölfar aðgerðar (KendalTs fylgni marktæk við 0,05 stig). Legnám. Ein kona í rannsókninni þurfti að fara í legnám í kjölfar keisaraskurðar. Stjómlaus blæðing varð í aðgerðinni sem leiddi til storkutruflana sem kröfðust blóð- og blóðhlutagjafa og reyndist legnám óhjákvæmilegt til að stöðva blæðingu. Segavörn. Engin kona í rannókninni fékk bláæðasega. Alls fengu 744 konur af 761 (97,8%) blóðþynningu eftir aðgerðina. Tafla IV. Tíðni fylgikvilla eftir flokkum keisaraskurða. Valaðgerð n=274 (36,0%)* Aðgerð á 1. stigi fæðingar n=424 (55,7%)* Aðgerð á 2. stigi fæðingar án tilraunar til áhaldafæðingar n=36 (4,7%)* Aðgerð á 2. stigi fæðingar eftir tilraun til áhaldafæðingar.n=20 (2,6%)* Neyðar aðgerð n=7 (0,9%)* p-gildi Blóðgjöf 2.6% (n=7/274) 4,5% (n=19/424) 5,6% (n=2/36) 20.0% (n=4/20) 14,3% (n=1/7) 0,003 Hiti í sængurlegu 3.5% (n=9/257) 16,8% (n=69/410) 19.4% (n=7/36) 15,0% (n=3/20) 16,7% (n=1/6) <0,001 Rifa frá legskurði 2.6% (n=7/273) 8,3% (n=35/423) 22.2% (n=8/361 20,0% (n=4/20) 14,3% (n=1/7) <0,001 Meðallækkun í blóðrauða (g/L) 12.6 16,5 23,3 24.2 17,7 <0,001 Blóðtap 21000 ml 15,2% (n=41/270) 17,9% (n=72/403) 11,8% (n=4/34) 26,3% (n=5/19) 28,9% (n=2/7) 0,842 Enduraðgerð 1,5% (n=4/261) 1,7% (n=7/411) 0% (n=0/36) 0% (n=0/20) 0% (n=0/6) 0,9 Marktækur munur var á þeim flokkum þar sem undirstrikað er. Fyrir neðan tíðnitölu viðkomandi fylgikvilla sést hversu margir fengu hann af þeim fjölda þar sem upplýsingar um gang í aðgerð og sængurlegu lágu fyrir. *Tíðni viðkomandi flokks af heildarfjölda keisaraskurða. LÆKNAblaðið 2010/96 39

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.