Læknablaðið - 15.01.2010, Page 51
UMRÆÐUR 0 G FRETTIR
FÉLAG ALMENNRA LÆKNA
Félag ungra lækna verður
Félag almennra lækna
Þann 6. nóvember síðastliðinn var aðalfundur
Félags ungra lækna haldinn í Þjóðleikhús-
kjallaranum. A fundinum var samþykkt að
breyta nafni félagsins í Félag almennra lækna,
skammstafað FAL. Astæðumar fyrir nafn-
breytingunni em þær helstar að sögn formannsins
Hjördísar Þóreyjar Þorgeirsdóttur, að mikilvægt
sé að hnykkja á því að félagsmenn séu fullgildir
læknar - kandídatar eru ekki með almennt
lækningaleyfi. „Hvatinn var sá misskilningur að
unglæknar væru ekki útskrifaðir og að félagið
væri meira í ætt við ungliðahreyfingu en fullgilt
stéttarfélag. Félagið gengst þó enn við gamla
nafninu þar til nafnabreytingin hefur verið fest í
sessi á aðalfundi Læknafélags íslands."
Hjördís Þórey segir að nafnbreytingin hafi
verið orðin tímabær því margir félagsmanna í FUL
geti tæplega talist unglæknar samkvæmt þeirri
skilgreiningu sem lögð er í hugtakið. „Þetta er
félag lækna sem hafa almennt lækningaleyfi en
hafa ekki lokið sérgreinarnámi auk kandídata.
Það hefur færst í vöxt að læknar stundi sérnám
sitt hér heima og eru þá í félaginu í 5-6 ár, jafnvel
lengur. Aður stöldmðu flestir stutt við í félaginu,
kannski eitt til tvö ár áður en þeir héldu utan
til framhaldsnáms. Einnig eru margir læknar
starfandi með almennt lækningaleyfi án sérgreinar
sem geta tæpast talist ungir en eiga þó heima í
okkar félagi kjósi þeir það."
Mótmæla harðlega Night-Float-
vaktafyrirkomulagi
Að loknum almennum aðalfundarstörfum sendi
fundurinn frá sér tvær ályktanir:
Aðalfundur Félags almennra lækna lýsir yfir ánægju með
að fjármögnun og bygging nýs Háskólasjúkrahúss hafi verið
tryggð. Fundurinn álítur að sameinaður Landspítali spari
fjármuni og tryggi öryggi sjúklinga mun betur en núverandi
fyrirkomulag.
Aðalfundur Félags almennra lækna mótmælir harð-lega
fyrirhuguðum breytingum á vaktafyrirkomulagi á Landspítala.
Fyrirkomulagið, nefnt Night-Float, mun leiða af sér aukið
vinnuálag, minnkaða starfsánægju, skerðingu á kjörum og
aukna hættu á mistökum í starfi.
Hjördís segir þetta fyrirkomulag hreina afturför,
það hafi verið við lýði á Landspítala til ársins
2005 en hafi þá verið lagt af. Hugmyndin með
Night-Float vaktafyrirkomulagi er að skeyta
saman næturvöktum þannig að tekin sé fleiri en
ein vakt í röð. Við það eykst
heildarvinnutími læknanna til
muna, án þess að kaupaukning
komi til. „Þetta stangast á við
vinnutímatilskipanir ESB sem
Island hefur gengist undir og
er því lögbrot hvað varðar
heildarvinnutíma lækna, en
hann skal ekki vera meiri en
48 klukkustundir á viku að
meðaltali. Nú þegar eru þessi
lög brotin á fleiri sviðum.
Þrjár útfærslur eru mögulegar
með mislöngum vaktalotum.
Hefur yfirstjórn spítalans
reifað hugmyndir um sjö daga
lotur sem hefði í för með sér
gríðarmikla vinnu á skömmum
tíma og ógnaði verulega öryggi
sjúklinga og starfsfólks. Slíkt fyrirkomulag er
heldur ekki í samræmi við lög um vinnutíma. Við
höfum ennfremur reiknað út að þetta þýði 20%
kjararýrnun fyrir almenna lækna og kandídata
sem er ekki hægt að sætta sig við.
I upphafi var þessum breytingum lýst sem
faglegri framför því samfella í starfi deildarlækna
yrði meiri. Á sameiginlegum fundi með
umsjónardeildarlæknum hefur þó komið fram
að skortur á samfellu sé einungis bundinn við
tvö svið og á hvorugu þeirra sé fyrirkomulagið
vel fallið til að bæta úr því. Jafnframt lögðu
umsjónardeildarlæknar annars sviðsins fram
tillögur að úrbótum, en þær hugmyndir voru
slegnar af borðinu þar sem þær myndu ekki leiða
til aukins vinnuframlags. Nú hefur yfirstjóm
líka viðurkennt að þetta sé fyrst og fremst
sparnaðarráðstöfun, enda veruleg rýmun á
launakjömm deildarlækna. Útreikningar okkar
sýna hins vegar fram á að spamaður spítalans
í krónum talið verður í raun enginn, það er að
segja ef lög um vinnutíma verða virt, því með því
að nýta starfskrafta deildar- og aðstoðarlækna í
auknum mæli í dagvinnu þarf meiri mannskap
til að manna hverja vaktalínu. Þetta gæti þannig
leitt til aukinnar mönnunarþarfar. Auk þess leiðir
kerfið til þess að vaktaskipti lækna verða einum
fleiri á hverjum sólarhring. Því fylgir aukinn
kostnaður og hætta á mistökum, eins og sýnt hefur
verið fram á með rannsóknum.
Við munum ekki sætta okkur við þetta og höfum
bæði Vinnueftirlitið og Læknafélag íslands með
okkur í þessari baráttu. Það verður að sjálfsögðu
ekki liðið að framin séu lögbrot á stéttinni."
„FAL er félag lækna sem
hafa almennt lækningaleyfi
en hafa ekki lokið sérgreina-
námi kandídata," segir
Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir
formaður.
Stjórn FAL
Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir
formaður
Davíð Þór Þorsteinsson
gjaidkeri
Árdís Björk Ármannsdóttir,
ritari.
Meðstjórnendur:
Eyjólfur Þorkelsson,
Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Óli Hilmar Ólason,
Sigrún Ásgeirsdóttir,
Sigrún Hallgrimsdóttir,
Unnur Guðjónsdóttir
Valentínus Þór Valdimarsson.
Fulltrúar læknanema:
Dagur Ingi Jónsson.
og Katrín Jónsdóttir.
Hávar
Sigurjónsson
LÆKNAblaðið 2010/96 51