Læknablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 55
U M R Æ Ð U R
O G
L Æ
F R É T T I R
K N A L E Y F I
Nýjar reglur um erlenda lækna í Bretlandi
Katrín Fjeldsted
katrinf@simnet.is
Ákveðnar hafa verið nýjar reglur fyrir þá erlendu
lækna sem starfa vilja í Bretlandi og tóku þær gildi
16. nóvember 2009. Frá og með þeim tíma verða
læknar að vera
a) með lækningaleyfi (registered) hjá General
Medical Council þar í landi og
b) vera með starfsleyfi (licence to practice) frá sömu
stofnun ef þeir hyggjast starfa í landinu sem
læknar.
Mér sýnist óljóst hvort þetta hafi nokkur áhrif
á þá íslenzku lækna sem vilja starfa í Bretlandi,
þar sem EES-samningurinn nær yfir starfsleyfi og
gagnkvæma viðurkenningu á lækningaleyfi eins
og gildir milli Evrópusambandsríkjanna.
I tilkynningu frá GMC kemur fram yfirlit
yfir þær breytingar sem gerðar hafa verið á
kröfum til lækna og hvaða upplýsingar, skjöl
og þjónustu hægt er að nálgast hjá GMC og til
frekari glöggvunar vísað á intel@gmc-uk.org og
heimasíðuna www.gmc-uk.org.
Nýjar reglur um starfsleyfi eru fyrsta skrefið í
átt að endurmati sem hefur ekki verið fyrir hendi í
Bretlandi. Markmiðið er að tryggja sjúklingum að
læknar sem meðhöndla þá hafi fylgzt með í fagi
sínu og séu færir um að starfa. Fyrsta endurmat
mun ekki fara fram fyrr en árið 2011.
Lagabreyting þessi táknar að starfsemi sem
áður var takmörkuð við lækna með lækningaleysi
verður nú takmörkuð við lækna með lækningaleyfi
og starfsleyfi. Þetta innifelur leyfi til að skrifa
lyfseðla, gera dánarvottorð og líkbrennsluvottorð
og ráða sig í vissar stöður, svo sem innan
heilbrigðisþjónustunnar, National Health Service,
NHS.
Eftirfarandi gildir um þá lækna sem uppfylla
ofannefnd tvö skilyrði:
• Þeir mega starfa sem læknar í Bretlandi.
• Þeir mega takast á hendur verkefni svo sem að
skrifa lyfseðla og undirrita dánarvottorð.
• Verða að sæta því að undirgangast endurmat
þegar reglur taka gildi.
• Þeim er skylt að fylgja gæðareglum GMC eins
og þær birtast í Good Medical Practice.
• Þeir heyra undir þær reglur sem GMC beitir til
að meta hvort þeir séu hæfir til að starfa sem
læknar.
Eftirfarandi gildir um lækna með lækningaleyfi en
ekki starfsleyfi:
• Þeir hafa ekki lögformlegt leyfi til að starfa sem
læknar í Bretlandi.
• Þeir hafa ekki leyfi til að skrifa lyfseðla,
dánarvottorð eða taka að sér verkefni sem
takmarkast við lækna með lækningaleyfi.
• Þeim er ekki skylt að undirgangast endurmat
þegar það tekur gildi.
• Þeir þurfa að fylgja gæðareglum GMC: Good
Medical Practice
• Þeir heyra undir þær reglur sem GMC beitir til
að meta hvort þeir séu hæfir til að starfa.
Rekstrarnámskeið lækna
1. Mismunandi rekstrarform
a. Tekið tillit til nýlegra breytinga á lögum um tekjuskatt
1. Einkahlutafélag
ii. Samlagsfélag
iii. Praktískt atriði/Skattalegur mismunur
b. Faersla einstaklingsrekstrar í einkahlutafélag
2. Að hefja rekstur og bókhaldsleg atriði:
a. Tilkynningar til yfirvalda við upphaf rekstrar
b. Reiknað endurgjald
c. Arðgreiðslur/úttekt úr rekstri
d. Tengsl rekstrartekna og útgjalda/rekstrarkostnaður.
3. Fyrirspurnir
Námskeiðið er haldið hjá Deloitte hf. Smáratorgi 3, 9. hæð, föstudaginn 8. janúar kl. 16:30 (áætlaður tími er 2 tímar).
Þátttöku skal tilkynna í síma 580 3000.
Þátttökugjald kr. 4.000-
LÆKNAblaðið 2010/96 55