Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 30
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN geðdeildar um geðgreiningu, félagslega stöðu, eftirfylgni og afdrif. Gögn frá gjörgæsludeild og geðdeild voru samþætt til að leita að þáttum sem gætu haft forspárgildi um horfur sjúklinga. Kannað var í þjóðskrá hvort einhverjir innan hópsins hefðu látist á rannsóknartímabilinu. Til að kanna félagslegar aðstæður var fundinn samanburðarhópur í gögnum Hagstofu Islands. Stuðst var við gagnagrunnana „Mannfjöldi eftir kyni, aldri og hjúskaparstétt 1998-2008",14 „Atvinnuþátttaka, atvinnuleysi, vinnutími og fjöldi starfandi - árstölur 1991-2007"15 og „Fjöldi bótaþega og bótagreiðslur vegna félagslegrar aðstoðar 1994-2007".16 Tölfræðileg greining var gerð með forritinu SPSS 12.0 (SPSS Inc.233 South Wacker Drive, llth Floor Chicago, IL 60606-6412). Niðurstöður eru sýndar sem meðaltöl og staðal- frávik (±), eða miðgildi og hæsta og lægsta gildi þar sem við á. Tölfræðileg marktækni var könn- uð með Fischer exact test og miðað við p-gildi <0,05. Aðhvarfsgreining (Cox proportional hazard regression) var notuð til að finna hvaða breytur höfðu forspárgildi varðandi lifun. Var einstakling- um fylgt eftir frá fyrstu komu á gjörgæsludeild til 1. janúar 2007. Niðurstöður Sjúklingahópurinn Á árunum 2000-2004 var 251 innlögn 224 einstaklinga vegna sjálfsvígstilrauna á gjörgæslu- deildir Landspítala. Þetta voru 4% heildarfjölda innlagna eða 6% (185) innlagna í Fossvogi og 2% (66) innlagna á Hringbraut. Meðalfjöldi innlagna á ári vegna sjálfsvígstilrauna er því 50 ±10. Konur voru í meirihluta eða 61% (152), en karlmenn 39% (99). Tíu prósent (22) sjúklinganna voru lagðir inn oftar en einu sinni á tímabilinu (2-4 innlagnir) vegna endurtekinnar sjálfsvígstilraunar. Níu prósent (12) kvennanna stóðu fyrir 25 komum og 11% (10) karlanna stóðu fyrir 23 komum. Meðalaldur hópsins var 36 ár ± 14 og var hann svipaður milli kynja, 37 ár (13-79) fyrir konur en 36 ár (13-73) fyrir karla (p=0,46). Meðaltal APACHE II stigunar var 11,4 ± 7 fyrir hópinn. Stór hluti eða 61% höfðu áður reynt sjálfsvíg, 63% kvenna og 57% karla. Til samanburðar voru á rannsóknartímanum lagðir inn að meðaltali 1213 ± 125 sjúklingar á gjörgæsludeildir Landspítala á ári, 609 ± 38 á Hringbraut og 604 ± 57 í Fossvogi. Öndunarvélarmeðferð þurftu 46% sjúklinga, meðaldur var 56 ± 22 ár, karlar 56% og konur 44% og dánarhlutfall 9,1%. Meðaltal APACHE II stigunar á gjörgæsludeild í Fossvogi var 11,8 ± 8. Teguttd sjálfsáverka Sjálfsvígstilraun var oftast gerð með inntöku lyfja eða í 91% (227) tilfella. Voru bensódíazepín algengustu lyfin (47%), fylgt á eftir með þríhringlaga geðdeyfðarlyfjum (tafla I). Meirihluti sjúklinga eða 67% (151) notuðu fleiri en eitt lyf. Aðrar aðferðir voru notaðar í 9% (23) tilfella, svo sem henging, kolmonóxíðeitrun, fall, drukknun, eggvopn og kemísk efni. Konur tóku lyf í 96% tilfella (145) samanborið við 83% karla (82). Karlar völdu oftar beinskeyttari aðferðir eða í 17% (17) tilfella en konur 4% (6) (p=0,001). Að frátöldum lyfjaeitrunum var henging algengasta aðferðin eða í 3% (7) tilfella. Meirihluti einstaklinga eða 56% (141) var undir áhrifum áfengis þegar sjálfsvígstilraunin var framkvæmd. Meðferð á bráðamóttöku Hjá 29% (72) sjúklinga reyndist koma á bráða- móttöku vera innan einnar klukkustundar frá inntöku lyfja, hjá 44% (110) eftir lengri tíma en eina klukkustund frá inntöku en í 27% (69) tilfella var tími frá inntöku ekki þekktur. Magaskolun ásamt gjöf lyfjakola var framkvæmd í tæplega helmingi tilfella í hverjum þessara þriggja hópa, í 46% (33) tilfella þeirra sem komu innan eirtnar klukkustundar frá inntöku, í 47% (52) tilfella þeirra sem komu seinna en einni klukkustund eftir inntöku og í 39% (27) tilfella þeirra þar sem tími frá inntöku var óþekktur. Barkaþræðing var framkvæmd við komu hjá 23% (57) sjúklinga. Af þeim sem komu innan einnar klukkustundar frá inntöku lyfja voru 26% (19) sjúklinga barkaþræddir en af þeim sem komu seirvna en einni klukkustund eftir inntöku voru 21% (23) barkaþræddir og af þeim sem höfðu óþekktan tíma frá inntöku lyfja voru 22% (15) barkaþræddir við komu. Gjörgæslumeðferð Á gjörgæsludeild voru allir sjúklingar vaktaðir á hefðbundinn hátt með hjartarafsjá, súrefnismettunarmæli og tíðum blóðþrýst- ingsmælingum. Frekari vöktun með stöðugri blóðþrýstingsmælingu og töku blóðgasa gegnum slagæðanál fengu 50% sjúklinga (126), 6% sjúklinga (16) fengu miðbláæðarlegg og 3% (5) lungnaslagæðarlegg. Eftir komu á gjörgæsludeild voru til viðbótar 5% sjúklinga (13) barkaþræddir. Alls þurftu 67 sjúklingar eða 27% meðferð í öndunarvél en 1% (3) sjúklinga önduðu nægjanlega sjálfir eftir barkaþræðingu og þurftu ekki stuðning af öndunarvél. Miðgildi á tíma í öndunarvél var 13 klst (1 klst-32 dagar) en meðaltími í öndunarvél var 56 ± 122 klst. Miðgildi gjörgæsludvalar var 19 102 LÆKNAblaðið 2010/96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.