Læknablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 45
Ú R
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Valgerður
Rúnarsdóttir
lyflæknir
valgerdurr@saa. is
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir,
formaður
Þórarinn Guðnason,
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir,
gjaldkeri
Sigríður Ó. Haraldsdóttir,
ritari
Kristján G. Guðmundsson
Ragnar Gunnarsson
Sigurður Böðvarsson
Valentínus Þór
Valdimarsson
Valgerður Rúnarsdóttir
í pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna LÍ birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
„Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur
en hvernig vitum við hvað við áttum þegar
við höfum misst það...? Skráum!
Miklar aðgerðir ganga yfir landann vegna bágrar
efnahagsstöðu. Yfirvöld gera hvað þau geta til að
lækka ríkisútgjöld og auka tekjur ríkisins. Það fer
ekki fram hjá okkur, hvorki sem einstaklingum
né heilbrigðisstarfsmönnum. Lengi var hljóðið
það að ekki skyldi skerða þjónustu við sjúklinga
í þessum aðgerðum en nú heyrast raunsærri
raddir, að þjónusta minnki en gætt verði að
„öryggismörkum". Margir hafa borið sig vel og
lýst árangri í hagræðingu og sparnaði, sem er
vel, en um leið viðurkennt það að hagræðing
og spamaður hér muni þýða aukin útgjöld þar.
Óhagræði og óþægindi fyrir sjúklinga og jafnvel
síðkomin heilsufarsáhrif er erfiðara að hafa með í
reikningsdæminu.
Hvemig má halda utan um það hvað tapast í
heilbrigðiskerfinu við þessar miklu breytingar?
Okkar embættismenn sinna auðvitað hlutverki
sínu og stofnanir gera áreiðanlega hvað þær
geta til að halda utan um margs konar skráningu
á starfsemi, álagi, fylgikvillum og hvaðeina, og
reyna að koma auga á viðvörunarmerki.
En verðum við læknar í okkar daglegu störfum
varir við breytingar sem vekja ugg og nást að
okkar mati ekki inn í heildarskráninguna? Hvar er
þessum breytingum sem við sjáum sjálf og okkar
hugmyndum um mögulegar afleiðingar haldið
til haga? Getur verið að slæm útkoma á einum
stað náist einungis í skráninguna á öðrum stað í
heilbrigðiskerfinu? Sem dæmi, aukin skilvirkni á
Landspítala með færri eða styttri innlögnum og
færri starfsmönnum fyrir þó veikari sjúklinga,
þýðir líklega þörf fyrir aukna læknisþjónustu
í heilsugæslu. Er hún í stakk búin að taka á sig
aukasnúning? Er breytingin hagkvæm fyrir heil-
brigðiskerfið í heild og heilsu sjúklinganna? Það
má vera að svo sé og þetta sé allt saman til góðs
fyrir okkur þegar upp er staðið. En áhyggjuraddir
heyrast víða.
Er ekki hugmynd að hver og einn finni til
þeirrar ábyrgðar að skrá eftir bestu vitund
breytingar sem koma upp á hans borð? Það
má læra af því síðar og meta í stærra samhengi
hvort þær hafi í raun haft slæm áhrif og svo
framvegis. Ég hef heyrt áhyggjur margra lækna
sem lýsa breytingum eins og töf á inngripi,
lélegri meðferðarheldni vegna aukins kostnaðar
sjúklings, auknu álagi á aðstandendur sjúklinga
(aldraðir, börn), úrræði/þjónustu hætt og breyttu
streymi sjúklingahópa vegna breytinga á þjónustu
annars staðar. Persónulega hef ég til dæmis
áhyggjur af afdrifum veikustu sjúklinganna með
fíknsjúkdóm, nú þegar fækkað verður innlögnum
á sjúkrahúsið Vog og ekki kostur að veita því sem
að berst eins góða þjónustu og áður. Búast má við
því að aðrar heilbrigðisstofnanir, bráðamóttökur
og heilsugæsla verði fyrir meira álagi vegna þessa
þunga hóps sjúklinga.
Það er fljótt að snjóa yfir minninguna um
hvernig hlutirnir voru og ekki víst að við munum
eiga auðvelt með að draga fram eftirá það sem
gengur vel í dag en mun breytast. Enginn veit
hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Höldum vöku
okkar. Við höfum yfirsýn yfir læknisþjónustu sem
veitt er, hvert á okkar starfsstað. Skráum. Ef til vill
verður hagur af því í framtíðinni.
Við vitum líka að hér verður ekki staðar numið
í niðurskurði og við höfum hlutverki að gegna í að
vakta og meta. Þannig getum við jafnvel haft áhrif
til að minnka skaða.
Ég vona að við sem læknar getum sammælst
um að níða ekki niður skóinn hver af öðrum
heldur halda áfram að bæta það sem hver og
einn getur bætt í sínu (nær)umhverfi til að auka
þjónustu, skráningu, forvarnir og lækningu okkar
sjúklinga.
Hugmynd samþykkt á fundi Læknafélags
Reykjavíkur í vetur um „þjóðþing lækna" gæti
verið vettvangur umræðu og skoðanaskipta um
einmitt þessi niðurskurðarmál. Rödd hins almenna
læknis, hvar sem hann nú starfar og hans sýn á
hvar skórinn kreppir eða eldar loga. Hans tillögur
um hvernig meta megi sem hlutlausast það sem
hann telur að fari á verri veg og hugmyndir til
úrbóta.
Orð okkar nýja landlæknis, Geirs Gunnlaugs-
sonar, í morgunútvarpi nýlega, um „. . . jafnan
aðgang að hágæðaþjónustu . . ." hljómuðu vel í
mín eyru. En ég er ekki viss um hvar það passar
svo við þjónustu yfir „öryggismörkum". En „jafn
aðgangur að hágæðaþjónustu" er einmitt sú mynd
sem ég hef haft hingað til (og áreiðanlega margir
aðrir) af okkar ágæta heilbrigðiskerfi. Vonum að
svo verði áfram og þessi orð hvetji okkur lækna
áfram til dáða.
Ágætu læknar og aðrir lesendur Læknablaðsins,
höldum áfram að standa vaktina og verja læknis-
þjónustu við sjúklinga.
LÆKNAblaðið 2010/96 1 1 7