Læknablaðið - 15.02.2010, Page 56
UMRÆÐUR 0 G
LÆKNADAGAR
F R É T T I R
2 0 10
Mikilvægt tækifæri til endurmenntunar
Þátttaka í Læknadögum 2010 var með mesta móti í ár þó ekki lægju
endanlegar tölur fyrir þegar Læknablaðið fór í prentun. Margrét
Aðalsteinsdóttir sagðist telja líklegt að um 800 manns hefðu skráð
sig en erfitt væri að segja til um þátttöku frá einum degi til annars
þar sem langflestir hefðu keypt vikuaðgang. í opnunarræðu
Læknadaganna sagði Arna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri
Fræðslustofnunar Læknafélags íslands að fjárhagur Læknadaganna
væri erfiðari en áður, eigið fé væri minna og framlag stuðningsaðila
einnig. Því hefði verið gripið til þess ráðs að allir þátttakendur
aðrir en erlendir fyrirlesarar skyldu greiða aðgangsgjald. Ekki voru
allir jafnsáttir við þessa ráðstöfun og þótti sumum eplið súrara en
öðrum.
Arna Guðmundsdóttir við
setningu Læknadaganna.
Hávar
Sigurjónsson
Gestafyrirlesari við opnun Læknadaga var Ragnar
Jónsson rartnsóknarlögreglumaður sem sérhæft
hefur sig í blóðferlagreiningu. Hann dró ekkert
undan í fyrirlestri sínum, hvorki í máli né
myndum, og rakti skilmerkilega hvernig hægt er
að endurskapa atburðarás við ofbeldisglæpi með
því að greina blóðferla á glæpavettvangi. Hann
lagði áherslu á mikilvægi samstarfs lögreglunnar
og lækna við þessi störf.
Gagn og ánægja
Þétt dagskrá Læknadaganna stóð alla fimm dag-
ana frá morgni til kvölds og hafi einhver getað
stundað dagskrána að fullu er óhætt að segja að sá
hinn sami hafi fengið aura sinna virði.
Blaðamaður gaf sig á tal við gesti í fyrirlestrar-
hléum og forvitnaðist um hvað þeim þætti
bitastæðast við Læknadagana. Hvorki var um
formlega skoðanakönnun að ræða né vandlega
unnið úrtak þátttakenda.
Magnús Gottfreðsson:
Læknadagar gegna ótví-
rætt mikilvægu hlutverki
endurmenntunar og ekki
síður félagslegu. Það á
kannski sérstaklega við
núna því í því árferði sem
við búum við eru eflaust
margir sem hika við að
fara erlendis og í því ljósi
er samkeppnishæfni Læknadaganna meiri en áður.
Mér finnst líka gaman að kynna mér nýjungar í
öðrum greinum en minni eigin sérgrein. Það er svo
mikil breidd í dagskránni að hér gefst mjög gott
tækifæri til þess.
Einar S. Björnsson: Þetta
er í fyrsta skipti sem ég
tek þátt í Læknadögum
en ég hef verið búsettur
erlendis í 20 ár. Lengst af í
Gautaborg. Nú er ég fluttur
hingað aftur og tekinn við
prófessorsembætti í melt-
ingarlækningum.
Ég hef haft bæði gagn
og ánægju af Lækna-
dögunum. Ég tók sjálfur
þátt í mjög gagnlegu málþingi um lyfjanotkun þar
sem rætt var um hvernig draga mætti úr kostnaði
við lyfjanotkun, um fjöllyfjameðferð og bætta
nýtingu lyfja svo eitthvað sé nefnt.
María Heimisdóttir:
Læknadagarnir eru frá-
bært tækifæri til að hitta
kollegana og kynna sér
hvað er efst á baugi í
hinum ýmsu greinum.
Þetta er bæði lærdómur
og ánægja. Tækifærin
til endurmenntunar eru
eflaust færri núna og
mikilvægi Læknadaganna
því enn meira en áður.
Kosturinn við Læknadaga í samanburði við erlend
þing er einnig sá að hér er maður ekki í burtu
samfellt í marga daga.
Leifur Bárðarson: Lækna-
dagarnir eru mjög gott
tækifæri til að kynna sér
hvað er að gerast almennt
í íslenskri læknisfræði.
Hér gefst tækifæri fyrir
stéttina til að bera saman
bækur sínar og ræða á
almennum nótum um
128 LÆKNAblaðið 2010/96