Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2011, Síða 37

Læknablaðið - 15.07.2011, Síða 37
UMFJÖLLUN O G GREINAR sjúkling. Þannig getur einstaklingur fengið lyf hjá tveimur eða fleiri læknum og þeir hafa ekki hugmynd hvor um annan nema sjúklingurinn segi þeim frá því. Og ef um misnotkun er að ræða þá gerist það ekki. Við sem störfum í apótekunum sjáum aðeins þá rafrænu lyfseðla sem einstaklingur á óútleysta í rafrænu lyfjagáttinni en um leið og lyfseðill hefur verið leystur út hverfur hann úr gáttinni. Lyfjasagan fylgir ekki sjúklingnum. Við getum ekki og megum hreinlega ekki fylgjast með því hvaða lyf sjúklingar hafa verið leysa út í öðrum apótekum. Við getum þó séð hvort einstaklingur er að misnota rafræna fjölnotalyfseðla ef hann reynir að leysa út sama skammt oftar en einu sinni eða virðir ekki tímamörk milli útleysinga." Þegar spurt er hvers vegna apótekin hafi ekki aðgang að þessum upplýsingum um lyfjasögu einstaklings segir Ólafur að persónuverndarsjónarmið hindri það. „Ef allir væru heiðarlegir þá væri þetta kerfi mjög vel nothæft. En það er tiltölulega auðvelt að spila á það og notfæra sér þær hindranir sem persónusvernd setur til að svíkja út lyf. Samkeppnisjónarmið koma einnig til sögunnar í ákveðnum tilfellum og hindra apótekin í að hafa aðgang að upplýsingum hvers annars." Rauntímaaðgangur nauðsynlegur Ólafur segir að vissulega sé hægt að koma í veg fyrir misferli með lyf og lyfseðla með áhrifaríkari hætti en nú er. „Það er hins vegar ekki hægt án þess að það hafi íþyngjandi áhrif á þá sem eru ekki að gera neitt rangt og ennfremur væri ekki raunhæft að setja upp kerfi sem tefur lækna verulega í þeirra í störfum. Við höfum ágætan lyfjagagnagrunn með nánast öllum þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að hindra mistök og misferli. Þessi grunnur uppfærist daglega með upplýsingum úr öllum apótekum landsins. Allnokkur apótek eru farin að sækja upplýsingar beint „Núvertmdifyrirkomulag er hins vegar engum í hag nema þá helsl þeim sem vilja svindla á því," segir Ólafur Adolfsson lyfjafræðingur. frá Sjúkratryggingum íslands um tryggingalega stöðu sjúklinga við verðlagningu lyfja til þeirra. Það væri hægt að hugsa sér einföldun á þessu kerfi þar sem aðeins væri einn upplýsingagrunnur sem bæði læknar og apótek hefðu aðgang að. í dag hafa hvorki læknar né apótek aðgang að lyfjasögu sjúklings (lyfjagrunni Landlæknis) en eiga engu að síður að taka ákvarðanir um meðferð eða kanna milliverkanir lyfja án þess að hafa heildarmyndina fyrir framan sig. Upplýsingarnar nýtast því engum nema landlæknisembættinu til eftirlits og rannsókna. Það eftirlit virðist hins vegar vera þungt og svifaseint. Að mínu mati munu þessi mál ekki komast í viðunandi horf fyrr en læknar hafa rauntímaaðgang að lyfjagagnagrunni sjúklingsins með ítarlegum upplýsingum um lyfjasögu hans og geta þannig ávísað lyfjum með hliðsjón af því. Apótekin gætu einnig tekið mun virkari þátt í eftirlitinu ef þau hefðu aðgang að þessum upplýsingum að minnsta kosti hvað varðar ákveðna lyfjaflokka. Með þetta tvennt í góðu horfi sé ég ekki annað en hægt væri að ná utan um stóran hluta vandans. Núverandi fyrirkomulag er hins vegar engum í hag, nema þá helst þeim sem vilja svindla á því," segir Ólafur Adolfsson lyfjafræðingur. LÆKNAblaðið 2011/97 433

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.