Læknablaðið - 15.07.2011, Page 46
Hópurinn við Brandenborgarhliðið árla morguns. Ljósmyndarinn var Sergé bílstjóri á myndvél PÁ.
Perlur Austur-Þýskalands skoðaðar
í júníbyrjun gerðu nokkrir félagar ásamt
mökum, alls 47, för sína til Austur-Þýska-
lands. Dvalist var í Berlín 4-5 daga og
annað eins í Leipzig. Skoðast var um svo
sem tíminn leyfði, en að auki var komið
til Potsdam og Dresden, stjakað um síki
í Spreewald og siglt á Elbu frá bænum
Pirna til Königstein Festung.
Þetta mundi vera sú sjöunda af utan-
landsferðum Öldunga, en skráðar heimildir
vantar. Eftir því sem næst verður komist,
eru ferðirnar þessar:
2003 K.höfn, Borgundarhólmur
2004 Eistland, Lettland, Litháen
2006 Slóvenía
2007 Suður-England
2008 Norður-Frakkland
2010 Spánn, Madrid
2011 Austur-Þýskaland
Gunnar Biering barnalæknir var hvata-
maður að fyrstu ferðunum og fararstjóri en
fararstjórinn í Berlín var Kristín Jóhanns-
dóttir.
Ferðimar hafa þótt takast með ágætum.
Vissulega er hönnun þeirra ekki frábrugðin
öðrum slíkum hópferðum, gjarnan þó með
sögulegu ívafi og svo kemur einnig til að
hópurinn er hómógen, eldri læknar, sem
um áratuga skeið hafa starfað í landinu
og að auki allir útskrifast úr sama
læknaskólanum. Það fer varla hjá því að
þetta veki samkennd og ekki að undra,
þótt skrafdrjúgt verði mönnum á ferð í rútu
og á síðkvöldum. Óskandi er að framhald
verði á og fleiri fái notið.
Jón Hilmar Alfreðsson ritari
0ldungadeild
Laeknafélags fslands
Stjórn Öldungadeildar:
Sigurður E. Þorvaldsson, formaður, Jón Hilmar
Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri,
Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson
Öldungaráð Umsjón síðu: Páll Ásmundsson
Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar
Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín
Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson
442 LÆKNAblaðið 2011/97