Læknablaðið - 15.06.2012, Síða 3
Ný stjórn LR kjörin á aðalfundi
Læknafélag Reykjavíkur hélt árlegan aðalfund sinn í Hlíðasmára 8 fimmtudaginn 24. maí. Dagskrá var
að hefðbundnum sið aðalfundar og að lokinni skýrslu formanns voru reikningar skoðaðir og samþykktir
og síðan gengið til stjórnarkjörs. Þar voru tveir nýir stjórnarmenn sjálfkjörnir en úr stjórn gengu Michael
Clausen varaformaður og Friðný Jóhannesdóttir gjaldkeri. Á myndinni gefur að líta hina nýju stjórn en
á henni eru frá hægri gjaldkeri Jörundur Kristinsson heimilislæknir, formaður, Steinn Jónsson lungna-
sérfræðingur, meðstjórnandi, Ebba Margrét Magnúsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingalæknir, varafor-
maður, Reynir Arngrímsson erfðasjúkdómalæknir og ritari og Jón Gunnar Hannesson heimilislæknir.
Áheyrnarfulltrúi Félags almennra lækna er Ómar Ingi Emilsson.
LISTAMAÐU R MÁNAÐARINS
Á opnun Listahátíðar í maí var mikið um að vera í mynd-
listarlífinu. Sýningin stóra, (l)ndependent People, teygði
sig víða um bæ og undir hatti hennar voru margir sjálf-
stæðir viðburðir. Listatímaritið Endemi
kom út í þriðja sinn og sett var upp
sýning á verkum listamanna blaðsins í
Myndhöggvarafélaginu á Nýlendugötu.
Þar í kjallara leyndist meðal annars
pappírsverk Jónu Hlífar Halldórs-
dóttur (f. 1978) sem sjá má á forsíðu
Læknablaðsins. Sama dag og sýningin
opnaði fékk fjöldi manns nafnlaus smá-
skilaboð í farsímana sína þar sem lesa
mátti sömu setningu og í textaverkinu,
„Yellow is the new black”, skilaboð send
19. maí, 2012, kl 14:25. Skilaboð Jónu
Hlífar ferðast um einka- og almennings-
rými, ýmist eins og leynileg orðsending,
dulmál, auglýsing, upphrópun eða
slagorð. Innihaldið er torskilið út af fyrir
sig því listamaðurinn gefur áhorfendum
ekkert haldreipi að styðjast við og þá fær-
ist áherslan á þær aðferðir sem hún beitir. Tenging vaknar
við kenningar um eðli list- og fjölmiðla og samhengið
á milli þeirra og upplýsinganna sem í þeim felast. Við
greinum jú texta á ólíkan máta eftir því í hvaða samhengi
hann er birtur, í dagblöðum, auglýsingum, persónulegum
samskiptum og þar fram eftir götunum. Jóna Hlíf hefur
undanfarin ár sett fram textaverk á fjöl-
breyttan máta og sýnir viðamikil verk í
Hafnarhúsinu um þessar mundir í sam-
starfi við Hlyn Hallsson. Hún sker bók-
stafina gjarnan út í pappír eða annað
efni þannig að textinn, sem sóttur er
víða að, öðlast efniskennd og verður
að skúlptúr eða lágmynd. (tilviki þess
verks sem hér um ræðir leynist gulur
litur á bak við svartan - þegar skorið er
i svarta pappírinn kemur sá guli í Ijós,
rétt eins og textinn sjálfur segir til um.
Verkið virðist því hverfast algjörlega um
sjálft sig þótt orðaval minni á tungutak
tískuhönnuða sem leggja línurnar fyrir
okkur neytendur. Það er sett fram á vor-
dögum þegarsólarljósið sigrarskamm-
degið og þannig mætti túlka setninguna
á mun Ijóðrænni máta, en Jóna Hlíf lætur
okkur áhorfendum eftir að leggja eigin skilning í verkið.
Markús Þór Andrésson
v F L L 9 W
I *=
- u E
N F W
* L A C •<
Ljósmynd: Hugi Hlynsson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL jOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Tölfraeðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijós-
myndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
10.900,- m. vsk.
Lausasala
1090,- m. vsk.
Prentun, bókband f....N
og pökkun 0//,
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2012/98 327