Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 43
UMFJÖLLUN O G GREINAR
„Framþróun krabba-
meins í líkamanum
getur tekið tnörg
ár og þeirri þróun
getum við hraðað
í rannsóknar-
stofunni," segir
Sævar Ingþórsson
doktorsnemi.
sig að breytingum og þá byrjar boltinn að
rúlla í áttina að verri formgerð"
Bremsan eða bensínið
Þetta eru þó aðeins forsendur rannsóknar-
verkefnis Sævars en hann hefur einbeitt
sér að rannsókn á hlutverki yfirborðs-
prótína sem þekjufrumurnar tjá á yfir-
borði sínu. Þessi prótín nefnast tíró-
sínkínasaviðtakar. Sérstaklega hefur
Sævar verið að skoða EGFR-viðtakafjöl-
skylduna.
„Þetta eru fjórir viðtakar sem gegna
mjög mikilvægu hlutverki í þroskun og
viðhaldi þekjuvefja og hefur verið mikið
skoðað í mörgum krabbameinum, sérstak-
lega í brjóstaæxlum sem hafa magnanir á
EGFR2 sem er yfirleitt kallaður HER2. Ef
mikil tjáning á þessum viðtaka greinist
er hægt að miða meðferð við að óvirkja
hann og það hefur áhrif á æxlisvöxtinn.
Brjóstaæxli eru flokkuð í margar mismun-
andi undirgerðir og meðferð miðast við
greiningu á undirgerðinni, oft með góðum
árangri. Við svokölluðum þríneikvæðum
æxlum sem greinast helst hjá yngri konum
eru ekki til sérstaklega góð meðferðarúr-
ræði. Á síðustu árum hafa rannsóknir leitt
í ljós að ef þessi æxli tjá mikið af EGFRl
eru horfurnar verri fyrir sjúklinginn. Enn-
fremur að þessi æxli geta átt uppruna í
stofnfrumum brjóstþekjuvefsins og þá
komum við að því hversu gagnlegt er að
nota D492 frumulínuna við þessar rann-
sóknir. Það sem við gerðum var að yfirtjá
EGFRl í frumulínunni og höfum fylgst
með því hvað áhrif það hefur. Það er ljóst
að vöxturinn verður mun hraðari og frum-
urnar eru ekki eins háðar umhverfinu um
vöxt sinn, en þetta tvennt er eitt af mikil-
vægustu forsendum krabbameinsvaxtar.
Við sjáum líka að frumulínan skríður
hraðar og þroskast ekki eðlilega miðað
við ómeðhöndlaðar frumur. Vefjagerðin
verður flóknari og greinóttari og einnig
myndar hún bandvefslíkar þyrpingar, sem
er merkilegt því bandvefsfrumur og þekju-
frumur eru í rauninni gerólíkar og þegar
krabbameinsfrumur gera þetta er það
sérstaklega slæmt. Æxli sem hafa undir-
gengist bandvefsumbreytingu eru oft ill-
viðráðanleg."
Sævar hefur einnig rannsakað hlutverk
sprouty-prótína í frumuvextinum og segir
að komið hafi í ljós að dempun á tjáningu
þeirra hafi mjög svipuð áhrif á frumu-
vöxtinn og yfirtjáning kínasanna. „Þetta
er einsog að fjarlægja bremsuna eða stíga
bensínið í botn. Þetta erum við að skoða
núna og munum á næstunni birta grein
sem skilgreinir hlutverk þessara prótína."
Aðspurður um hagnýtt gildi þess-
ara rannsókna segir Sævar að vissulega
megi leyfa sér að vona að í framtíðinni
verði hægt að nýta þessar upplýsingar til
bættrar meðferðar krabbameina en leiðin
frá grunnrannsóknum af þessu tagi til
lyfja á markaði sé bæði löng og gríðarlega
kostnaðarsöm. „Þetta hefur lítið verið
rannsakað ennþá í rauninni en getur að
sjálfsögðu nýst við rannsóknir á mun fleiri
krabbameinum en eingöngu í brjósti."
ÓSKA EFTIR ÍBÚÐ í STOKKHÓLMI
Óska eftir íbúð í Stokkhólmi til lengri eða skemmri tíma.
Allt kemur til greina. Reykleysi og góð umgengni.
Vinsamlegast hafið samband í tölvupósti til viktors@islandia.is
eða 895-7721. Viktor Sighvatsson
LÆKNAblaðið 2012/98 367