Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 11
RANNSÓKN
Mynd 1. Lifrarfruitiukrabbamei)! meðhöndlað með ÍKSS: 53 ára karlmaður með stórafyrirferð ílifursem hleður ríkulega upp skuggaefni á Ti-viktaðri mynd íslagæðarfasa eftir
skuggaefnisgjöf (mynd la) sem kom í IKSS-meðferð. Hefðbundin æðamyndataka sýnir ríkulegt blóðflæðifrá greinum hægri lifrarslagæðar (mynd lb) en þessar greinar voru síðan
þræddar með æðalegg (mynd lc) og IKSS-meðferð veitt. Segulómun fjórum vikum eftir meöferð sýnir nánast enga upphleðslu ífyrirferðinni á Tl-viktaðri mynd í slagæðafasa eftir
gjöf skuggaefnis (mynd ld).
rannsóknar var að kanna árangur staðbundinna krabbameins-
meðferða á Islandi og skoða tíðni fylgikvilla sem koma upp í kjöl-
far inngripanna.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var gerð á röntgendeild Landspítala í Fossvogi og náði
til allra IKSS, slagæðastíflna og innæðakrabbameinslyfjagjafa sem
gerðar voru á Islandi frá 1. maí 2007 til 1. mars 2011. Rannsóknin
var afturskyggn klínísk rannsókn og voru upplýsingar fengnar úr
sjúkraskrárkerfi og myndgeymslukerfi Landspítala. Rannsóknin
var samþykkt af vísindasiðanefnd og Persónuvernd.
Safnað var saman upplýsingum um aldur sjúklinga, kyn,
lengd innlagnar eftir inngrip og um hugsanlega lifrarsjúkdóma
og áhættuþætti fyrir lifrarfrumukrabbamein. Skoðuð var stærð
stærsta æxlisins í lifrinni, fjöldi æxla og samanlagt þvermál æxl-
isvefjar og kannað hvort kominn væri ífarandi vöxtur í æðar, eitil-
meinvörp eða fjarmeinvörp. Lifun sjúklinga og tími án versnunar
sjúkdóms (progession free survival) voru skilgreind frá greiningu
til andláts eða frá greiningu til 1. mars 2011, þegar rannsóknar-
tímabilinu lauk. Sjúklingunum var skipt í tvo hópa, þá sem voru
með lifrarfrumukrabbamein og þá sem höfðu meinvörp í lifur frá
krabbalíki. Þessi aðgreining var viðhöfð þar sem mikill munur er
á hegðun þessara krabbameina, horfum sjúklinga og klínískum
ábendingum.
Sjúklingar með lifrarfrumukrabbamein voru stigaðir sam-
kvæmt CLIP-stigunarkerfinu fyrir fyrsta inngrip sem spáir fyrir
horfum sjúklinga með lifrarfrumukrabbamein.9 Lifrarstarfemi
sjúklinga var metin fyrir fyrsta inngrip og svo fjórum vikum eftir
hvert inngrip samkvæmt ChildPugh-skori (Child's) og MELD-
skori (Model of End-stage Liver Disease) sem spáir fyrir horfum
sjúklinga með skorpulifur.10'11 Svörun æxlisins við inngripinu var
metin með segulómun (MRI) eða tölvusneiðmynd (CT) fjórum
vikum eftir hvert inngrip með hliðsjón af mRECIST (tafla I).12 Til
LÆKNAblaðið 2012/98 335