Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2012, Side 10

Læknablaðið - 15.06.2012, Side 10
RANNSÓKN Innæðalyfjagjöf með slagæðastíflun: árangur staðbundinnar krabbameinsmeðferðar á Islandi Þórarinn Árni Bjarnason' læknanemi, Haraldur Bjarnason, 2læknir, Óttar Már Bergmann3 læknir, Hjalti Már Þórisson, A5 læknir ÁGRIP Inngangur: Innæðakrabbameinslyfjameðferð með slagæðastiflun er staðbundin krabbameinsmeðferð til að meðhöndla krabbamein í lifur. Meðferðin er líknandi en getur einnig nýst með skurðaðgerð og/eða raf- brennslu. Hún getur einnig nýst til að halda sjúklingum á lifrarígræðslulista eða niðurstiga sjúkdóminn svo þeir komist á slíkan lista. Markmið rann- sóknarinnar var að kanna árangur staðbundinnar krabbameinsmeðferðar og tíðni fylgikvilla á Islandi. Efni og aðferðir: Gerð var afturskyggn klínisk rannsókn sem náði til allra sem fengu innæðakrabbameinslyfjameðferð með slagæðastíflun, slagæðastíflanir og innæðakrabbameinslyfjagjafir á íslandi frá 1. maí 2007 til 1. mars 2011. Upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskrárkerfi og mynd- geymslukerfi Landspítala. Niðurstöður: Það hafa verið framkvæmdar 18 innæðakrabbameins- lyfjameðferðir með slagæðastíflun, 6 slagæðastíflanir og tvær svæðis- bundnar krabbameinslyfjameðferðir til að meðhöndla 9 sjúklinga með lifrarfrumukrabbamein og þrjá með meinvörp frá krabbaliki. Meðallifun sjúklinga með lifrarfrumukrabbamein var 15,2 mánuðir og hjá sjúklingum með krabbalíkismeinvörp 61 til 180 mánuðir. Alger svörun varð tvisvar og hlutasvörun fjórum sinnum. Sjúkdómurinn hélst stöðugur 111 skipti en versnaði í þremur tilvikum. Minniháttar fylgikvillar greindust eftir 6 af 26 inngripum. Einu sinni kom upp meiriháttar fylgikvilli. Enginn fékk lifrarbilun sem rekja má til inngripsins. Einn sjúklingur með lifrarfrumukrabbamein var á lifrarígræðslulista fyrir meðferð og tókst að halda honum á lista fram að ígræðslu. Þá tókst að niðurstiga þrjá svo þeir komust á listann. Ályktun: Árangur staðbundinnar krabbameinsmeðferðar er viðunandi hér á landi og eru fylgikvillar í kjölfar inngripsins innan marka. 'Læknadeild Háskóla íslands, ''Department of Radiology, Mayo Clinic, Rochester MN “meltingarfæradeild, 4röntgendeild Landspítala, ’Vale School of Medicine, New Haven CT Fyrirspurnir: Hjalti Már Þórisson hjaltimt@landspitali.is Greinin barst: 17. október 2011, samþykkt til birtingar: 15. mai 2012. Engin hagsmunatengsl gefin upp. Inngangur Innæðakrabbameinslyfjameðferð með slagæðastíflun, IKSS (Transcatheter arterial chemoembolization, TACE), er ein tegund staðbundinnar krabbameinsmeðferðar (logo- regional therapy) og er meðferðarmöguleiki við krabba- mein í lifur. Inngripið felur í sér að æðaleggur er þrædd- ur um náraslagæð og þaðan um lifrarslagæð að þeirri slagæðagrein sem nærir æxlið. Þá er blöndu af krabba- meinslyfjum, með eða án joðs í olíufasa (ethiodized oil), og æðastíflandi efnum gefið í slagæðina sem nærir krabba- meinið.1 í IKSS á Islandi er gefið doxurubicin og mito- mycin ásamt joði í olíufasa og pólývinýl-alkóhólagnir. Til eru aðrar tegundir staðbundinnar krabbameinsmeð- ferðar eins og innæðakrabbameinslyfjagjöf (trans-arterial chemotherapy) og slagæðastíflun (bland embolization). Markmið IKSS er að ná háum styrk frumudrepandi krabbameinslyfja í krabbameininu og stuðla að blóð- þurrð í æxlinu. Á sama tíma er magni krabbameins- lyfja sem fer út í almennu blóðrásina haldið í lágmarki (mynd l).2 IKSS er líknandi meðferð sem hefur að mark- miði að meðhöndla óskurðtæk krabbamein og meinvörp í lifur, einkum lifrarfrumukrabbamein (hepatocellular carcinoma, HCC) og meinvörp frá krabbalíki (carcinoid)?A Inngripið getur einnig nýst með skurðaðgerð og raf- brennslu (radiofrequency ablation) og stuðlað að niðurstig- un krabbameinsins og þar af leiðandi gert lifrarígræðslu að möguleika fyrir þessa sjúklinga.5 Þá hafa rannsóknir bent til þess að IKSS geti gagnast sjúklingum með gall- gangakrabbamein (cholangiocarcinoma) og meinvörp í lifur frá briseyjaæxlum og stoðvefjaæxlum.6’7 Ekki geta allir sjúklingar með óskurðtæk krabba- mein í lifur gengist undir IKSS. Helstu frábendingar við IKSS eru léleg lifrarstarfemi (Child s-flokkur C) með lélegu blóðflæði til lifrarinnar, illvíg sýking og ef hægt er að fjarlægja æxlið með skurðaðgerð. Einnig verður að sýna sérstaka varúð ef sjúklingur er með bilirúbín hærra en 40 mg/L, þrengsli í portal-bláæðinni, galla í blóðstorkukerfi, slag- og bláæða-æðatengingu (arterio- venous shunt) um æxlið og lifrarheilakvilla. IKSS var fyrst lýst 1977 en um síðustu aldamót komu fram rannsóknir sem sýndu fram á betri lifun sjúklinga með lifrarfrumukrabbamein sem meðhöndlaðir voru með IKSS miðað við sjúklinga sem gengust undir hefð- bundna meðferð.3-8 Síðastliðin 15 ár hefur IKSS verið helsta meðferð við óskurðtækum krabbameinum í lifur. I maí 2007 var gerð fyrsta slagæðastíflunin á Islandi til að meðhöndla lifraræxli og fyrsta IKSS var gerð í október 2009. Núna gangast allir sjúklingar sem fara í staðbundna krabbameinsmeðferð til meðhöndlunar á krabbameini í lifur, undir IKSS. Árangur IKSS og annarra staðbundinna krabba- meinsmeðferða til að meðhöndla æxli í lifrinni hefur ekki verið skoðaður á Islandi. Megintilgangur þessarar 334 LÆKNAblaðið 2012/98

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.