Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 26
RANNSOKN
Mynd 1. Aldursskipting og rei/kingar.
Myndin sýnir aldursskiptingu ogfjölda
þeirra karla og kvenna sem aldrei hafa
rcykt, eru hættir að reykja eða reykja enn.
Þeim sem höfðu sögu um reykingar (150 manns) var boðið að
koma í blásturspróf. Þau voru framkvæmd með Medikro Spirost-
ar-mæli og Medikro Spirometry software í Windows PC-umhverfi.
Oll prófin voru framkvæmd af einum rannsakanda. Prófin voru
framkvæmd í sitjandi stöðu og voru ekki viðurkennd nema þegar
ströngustu gæðakröfur voru uppfylltar og eftir gjöf berkjuvíkk-
andi lyfs (tvö innsog af salbútamóli)!'6 Alls komu 104 í blásturs-
próf og af þeim voru 97 manns (42 karlar og 55 konur) sem upp-
fylltu ströngustu gæðakröfur. í samræmi við alþjóðaleiðbeiningar
Tafla I. Hefur tæknir einhverntima sagt að þú hefðir eitthvað af eftirfarandi:
Lungnaþembu, langvinna berkjubólgu (króniskan bronkítis) eða iangvinna
lungnateppu (COPD)?
Kyn (ekki marktækt) Fjöldi svara Já (%) Nei (%)
Karlar 99 15,2 84,8
Konur 159 13,8 86,2
Reykingar (Tau-c=-,09, P=0,004)
Aldrei reykt 108 8,3 91,7
Hættur að reykja 114 19,3 80,7
Reykir ennþá 33 15,2 84,8
Blásturspróf (Tau-c=-,18, P=0,027)
Eðlilegt 79 13,9 86,1
LLT 15 46,7 53,3
GOLD-stig (Tau-c=-,18, P=0,025)
Eðlilegt blásturspróf 76 13,9 86,1
Stig I 4 25,0 75,0
Stig II 10 50,0 50,0
Stig III 1 100,0
er óafturkræf loftvegateppa til staðar þegar hlutfall fráblásturs á
fyrstu sekúndu (FEVl) miðað við heildarfráblástur (FVC) er áfram
undir 70% eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfs.2 Er það ástand skilgreint
sem stig I, en við stig II er viðmiðunargildi FEVl því til viðbótar
komið undir 80% af áætluðu gildi og á stigi III er viðmiðunargildi
FEVl undir 50% af áætluðu gildi. Við útreikninga á áætluðum
gildum var stuðst við alþjóðleg viðmið.7
Rannsóknin var gerð með samþykki vísindasiðanefndar (09-
144-Sl) og tilkynnt til Persónuverndar.
Tölfræðileg úrvinnsla fór fram í SPSS (Statistical Package for
the Social Sciences) og voru töflur settar upp í Microsoft Excel. Við
samanburð var notast við KendalTs tau-c (tc) fyrir raðfylgni. Þegar
ekki var um tengsl að ræða var það táknað með skammstöfuninni
e-m (ekki marktækt) en ef tengsl fundust var sýnt alfa-gildi (ct)
fyrir viðkomandi raðfylgnipróf. Marktækt próf er sýnt sem p-gildi
og miðað við s0,05. Einhliða dreifigreining (One Way ANOVA) var
notuð til að bera saman meðaltöl fyrir einkenni mæði, hósta og
uppgangs.
Niðurstöður
Aldursdreifing og reykingasaga er sýnd á mynd 1. Af 262 sem
skiluðu spurningalista svöruðu 259 spurningum um reykingar. Af
þeim höfðu 150 (57,9%) sögu um reykingar. Alls voru 117 (45,2%)
hættir að reykja en 33 (12,7%) voru enn að reykja. Reykingar voru
algengastar í aldurshópnum 40-49 ára. Af þeim 33 sem voru enn
að reykja svöruðu 26% að þeim hefði aldrei verið ráðlagt af lækni
að hætta að reykja. Enginn munur var á aldurssamsetningu eða
kynjaskiptingu þeirra sem enn reyktu og svöruðu því þannig að
þeir hefðu aldrei fengið ráðleggingar hjá lækni um að hætta reyk-
ingum samanborið við þá sem hættir voru reykingum. Sá hópur
sem var hættur að reykja og fékk ráðleggingar um reykleysi hjá
350 LÆKNAblaðið 2012/98