Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 15.06.2012, Blaðsíða 46
UMFJÖLLUN O G GREINAR Þessi lýtalæknir leitaði ráða hjá Lækna- félaginu og vildi vita hvort honum væri heimilt að afhenda landlæknisembættinu listann. Læknafélagið taldi rétt að bæta við fyrri fyrirspurn til Persónuverndar og því var sent nýtt erindi til Persónuverndar varðandi þetta atriði. Með þessu vildi Læknafélagið einfaldlega tryggja það að leiðbeiningar félagsins til læknanna væru í samræmi við lagaskyldur lækna og rétt- indi sjúklinga. Staðreyndin er nefnilega sú að ef lýtalæknar hefðu afhent landlækni þessar upplýsingar og einhver kvennanna hefði síðan leitað álits Persónuverndar og fengið þá niðurstöðu sem síðar kom um að upplýsingagjöfin hefði verið ólögmæt, hefðu lýtalæknarnir setið uppi með afleiðingar þess og líklega bakað sér bóta- skyldu gagnvart konunum. Ábyrgðin í þessu er læknanna en ekki landlæknis. Því má heldur ekki gleyma að þó að sá sem skipaður er í embætti landlæknis sé læknir er hann í öllum sínum störfum stjórnvald. Það er því aldrei hægt að líta á óskir hans um upplýsingar frá læknum sem samskipti á milli lækna. Þetta er mjög mikilvæg staðreynd varðandi öll sam- skipti lækna og landlæknis. Persónuvernd afgreiddi erindi LÍ með tveimur leiðbeinandi niðurstöðum. Niðurstaða Persónuverndar er ótvíræð varðandi bæði erindin og mjög afdráttar- laus. Vísað er í 71. grein stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífsins en bent á að hana megi þó takmarka með sérstakri laga- heimild. Persónuvernd fer í niðurstöðum sínum vandlega yfir allt lagaumhverfið og kemst að þeirri afdráttarlausu niður- stöðu að hvergi sé lagaheimild fyrir því að lýtalæknar megi afhenda landlækni þær persónugreinanlegu upplýsingar sem hann óskaði eftir vegna PlP-málsins. Landlæknir byggði kröfu sína um að fá persónugreinanlegar upplýsingar um konurnar á 7. grein laga um landlækni og lýðheilsu, þar sem segir m.a.: „Land- læknir hefur heimild til að krefja heil- brigðisstarfsmenn, heilbrigðisstofnanir og aðra sem veita heilbrigðisþjónustu um upplýsingar og gögn sem hann telur nauð- synleg til að sinna eftirlitshlutverki sínu og er þeim skylt að verða við slíkri kröfu." Afstaða Læknafélagsins er að það væri fráleitt að í svo almennu orðalagi fælist heimild til að kalla eftir persónugreinan- legum upplýsingum. I þessu sambandi benti Læknafélagið einnig á það að í 8. grein laga um landlækni og lýðheilsu eru mjög skýrt orðaðar heimildir varðandi persónugreinanlegar skrár sem Embætti landlæknis er heimilt að halda. 1 lögskýr- ingargögnum með 8. grein kemur fram að þar séu tæmandi taldar þær persónugrein- anlegu skrár sem embættið megi halda. Það lá hins vegar fyrir í erindi landlæknis til lýtalækna að embættið ætlaði tíma- bundið að útbúa persónugreinanlega skrá yfir allar konur sem gengist höfðu undir brjóstastækkunaraðgerð á tilteknu árabili. Fleiri lagagreinar voru tíndar til af hálfu landlæknis en í fyrra áliti Persónuverndar er afdráttarlaust að þagnarskylda lækna sé svo rík að þeir megi ekki veita persónu- greinanlegar upplýsingar án samþykkis viðkomandi sjúklings, nema lagaákvæði heimili annað og að slíkum lagaákvæðum sé ekki til að dreifa. Álit Persónuverndar gat því ekki verið afdráttarlausara en raun bar vitni. I máli hins einstaka læknis taldi Læknafélagið að málið gæti hugsanlega horft öðruvísi við, þar sem fyrir lá að PIP- brjóstapúðarnir reyndust vera svikin vara og gætu haft heilsufarslegar afleiðingar fyrir konurnar sem fengu þá púða í sig í aðgerð. Engu að síður taldi Læknafélagið að það yrði að vera afdráttarlaust að um- beðin upplýsingagjöf væri lýtalækninum heimil, það er að þessar sérstöku aðstæður gæfu lýtalækninum heimild til að rjúfa þagnarskyldu gagnvart sjúklingum sínum og afhenda landlækni persónugreinan- legan lista. Álit Persónuverndar er á sömu Iund. Lýtalækninum er ekki heimilt að veita umbeðnar upplýsingar, til þess liggi engin lagaheimild. Það er athyglisvert að í áliti Persónuverndar er á það bent að heil- brigðisyfirvöld á hinum Norðurlöndunum hafi ekki talið sig þurfa persónugreinan- legar upplýsingar til að ná til kvenna sem fengu setta í sig PlP-púða. Læknafélagið átti alveg eins von á því að niðurstaðan yrði á annan veg en i hinu stærra máli og þá útfrá heilsufarslegri áhættu vegna PIP- púðanna. Af hálfu Læknafélagsins stóð þetta mál aldrei um það að „vinna" eða „tapa" þessum málum. Málið snerist um það að fá leiðbeiningu um það hvaða pers- ónugreinanlega upplýsingagjöf læknum er heimit að veita. Læknafélagið taldi mjög vafasamt að lýtalæknum væri heimil sú umfangsmikla persónugreinanlega upplýsingagjöf sem landlæknir óskaði eftir og taldi ekki annað fært í stöðunni en að leita til þess stjórnvalds sem fer með persónuverndarmál. Niðurstaða Persónuverndar er skýr og afdráttarlaus. Það þarf skýr lagaákvæði til að unnt sé að víkja til hliðar þagnar- og trúnaðarskyldu lækna gagnvart sjúklingum. Það skiptir máli fyrir lækna og sjúklinga að vita þetta. Þess vegna er niðurstaða Persónuverndar mikilvæg, bæði fyrir lækna og sjúklinga," segir Dögg Pálsdóttir lögfræðingur hjá Læknafélagi íslands. 370 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.