Læknablaðið - 15.06.2012, Side 49
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Mynd 1. Búnaður til Scldinger-
þræðingar; 1. ástungunál; 2.„Kraga-
járn", 3. leiðavír, 4. plastefni íæðaleggi.
1 og 1,5 mm í þvermál, og afgreitt í litlum
rúllum.
Alla leggi gerðum við sjálfir með hjálp
mjög einfalds tækjabúnaðar; gatara, spritt-
lampa og stálnaggs til að móta „kraga" á
leggina (mynd 1).
Með beittu eggjárni var skorinn
hæfilega Iangur bútur af plastrúllunni,
og hófst svo sjálf „smíðin": Kveikt var á
litlum sprittlampa og í loga hans hitaður
upp ryðfrír stálteinn með keilulaga enda.
Þessi upphitaði endi var síðan borinn að
rörinu með varúð og búinn til kragi sem
síðan átti að slúta þétt að skrúfuhylki með
Luer-sprautukrana. I hinn enda rörsins
var síðan þræddur leiðaravír af þeirri gerð
sem lýst var fyrr; sá var misgildur eftir
ummálsopi æðaleggsins. Æðaleggsrörið
var nú hitað yfir sprittloganum eða í heitu
vatni á nokkurra sentimetra svæði, örstutt,
en síðan var rörið dregið út yfir leiðarann,
þannig að þarna myndaðist aflöng mjódd
sem skyldi auðvelda innrennsli æðaleggs-
ins í æðina eftir ástungu. Þessu var dýft
í kalt vatn (eða spritt) og skilið á milli
með hvössu eggjárni, venjulega skurð-
hníf. Nú var leggurinn í raun tilbúinn,
en þó voru oftast sett 4-6 hliðargöt rétt
ofan við ástunguþrenginguna. Til þess
var notuð sérstök ástungunál með stíl
í, sem þá rak hið örlitla plaststykki útúr
nálinni eftir hverja götun. Lokasmíðin var
síðan að þræða áðurnefnda „múffu" upp
að hálsinum og Ijúka verkinu með því að
skrúfa krana með Luer-festingu á hana.
Nú var ieggurinn tilbúinn og þá var hann
lagður í sérstakan sótthreinsilög eða þurr-
steriliserað. Alltaf voru nokkrir æðaleggir
tilbúnir fyrir hverja rannsókn. Þegar ætl-
unin var að gera „selektivar" inndælingar,
til dæmis í nýrnaæð, truncus coeliacus eða
annars staðar, voru gerðar fyrirframbeygj-
ur á æðaleggina með því að setja leiðara í
þá og halda þeim síðan með þeirri beygju,
sem ætti við í það skipti, í heitu vatni um
stund og svo snöggkæla. Fyrir aðgerðina
voru leggirnir fiskaðir sterilt uppúr sótt-
hreinsunarvökvanum og kirfilega skolaðir
með steriiu vatni, oft með svolitlu heparíni
í, þegar við átti, annars teknir úr steriliser-
ingsumbúðum.
Mynd 2.
Æðarann-
sókn af
nýrna- og
kviðarliols-
æðum; um
1969 (Á.B.).
Mynd 3.
Vinstri
kransæð,
2010
(Einar
Jónmunds-
son).
LÆKNAblaðið 2012/98 373