Læknablaðið - 15.10.2012, Blaðsíða 35
Ú R PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Rólegt yfir samningamálum
Steinn
Jónsson
er lungnalæknir
á Landspítala,
formaöur Læknafélags
Reykjavíkur og situr
í stjórn Læknafélags
(slands
I
steinnj@landspitali.is
Þegar þessi grein er skrifuð er liðið nærri
eitt og hálft ár frá því samningur Lækna-
félags Reykjavíkur og Sjúkratrygginga
Islands um sérfræðilæknisþjónustu rann
út, 1. apríl 2011.1 aðdraganda samnings-
slitanna hafði LR boðið SI að samið yrði um
9,4% hækkun á einingaverði í áföngum á
þriggja ára tímabili en það var nákvæmlega
sama prósentuhækkun og LR hafði gefið
eftir án skilyrða árið 2009 þegar afleiðingar
bankahrunsins voru hvað erfiðastar. Þeir
sem fylgdust grannt með þessu máli vissu
að SI vildi gjarnan semja en ríkisstjórnin
stæði í vegi fyrir því. Skýringin var sú að
ekki væri hægt að semja við lækna um
meiri hækkun en samið yrði um á almenn-
um vinnumarkaði. Þegar til kom var samið
við sjúkrahúslækna til 2014 um hækkun á
bilinu 12-15% eftir starfshlutfalli. Ætia má
að stjórnvöld hafi hlaupið alvarlega á sig
þegar þessu tilboði var hafnað og ólíklegt
að annað eins tilboð frá sérfræðilæknum
líti dagsins ljós.
Eins og gert er ráð fyrir í lögum og for-
dæmi voru fyrir, gaf velferðarráðherra út
reglugerð sem hefur gilt frá 1. apríl 2011 um
heimild til endurgreiðslu til sjúklinga sem
leita til sérfræðilækna á grundvelli þess
samnings sem gilti fyrir samningsslitin.
Reglugerðin hefur síðan verið framlengd
í þrígang og gildir nú til loka júní 2013.
Engar raunverulegar samningaviðræður
hafa átt sér stað milli LR og SI, þó að í
lögum segi að endurgreiðsluheimild sé
aðeins tímabundin.
Þrátt fyrir samningsslitin hafa læknar
haldið áfram að sinna sjúklingum og sam-
starfi sínu við SI með margvíslegum hætti.
Unnið er eftir fyrirliggjandi gjaldskrá um
læknisverk og yfirgnæfandi meirihluti sér-
fræðilækna sendir reikninga rafrænt til SI.
Þetta hefur í för með sér að sjúklingar geta
greitt sinn hluta af kostnaði við komu til
læknis og þurfa ekki að leita eftir endur-
greiðslu sjálfir. SI greiðir hlut sjúkratrygg-
inga samkvæmt eldri samningi beint til
lækna eins og verið hefur um árabil. í
þessu felst mikið hagræði fyrir sjúklinga
og SI og má ætla að mikið ófremdarástand
hefði skapast ef hver sjúklingur hefði þurft
að leita eftir endurgreiðslu sjálfur. Sér-
fræðilæknar hafa lagt á komugjöld sem í
flestum tilfellum eru hófleg. Starfsemi sér-
fræðilækna hefur því haldið áfram óbreytt
og litlar kvartanir hafa komið fram frá
sjúklingum.
Starfsemi sérfræðilækna utan sjúkra-
húsa er löngu orðinn mikilvægur þáttur
í heilbrigðiskerfi landsins. Komur til sér-
fræðilækna eru nú um 500.000 á ári, eða
hátt í þriðjungur allra læknisverka í land-
inu, álíka margar og allar komur til lækna
í heilsugæslunni. Þrátt fyrir þetta er kostn-
aður við sérfræðiþjónustu aðeins 6-8% af
kostnaði við heilbrigðisþjónustuna og eru
þá allar aðgerðir og rannsóknir með taldar.
Margar hagfræðilegar úttektir hafa sýnt
að kostnaður við komu til sérfræðilæknis
hefur hingað til verið svipaður og kostn-
aður við komu til heilsugæslulæknis og
umtalsvert lægri en kostnaður við komu á
göngudeild Landspítala.
Við samningsslitin losnuðu læknar
undan ýmsum íþyngjandi ákvæðum samn-
ingsins, svo sem ákvæðum um afslætti og
skerðingar þegar unnið var umfram ákveð-
ið magn eininga. Erfitt er að ímynda sér að
læknar muni aftur semja slík ákvæði yfir
sig enda einsdæmi að þeir sem eftirsótt-
astir eru og vinna mest gefi afslátt af vinnu
sinni. Nú er komin nokkur reynsla á nýja
fyrirkomulagið og eru læknar nokkuð sáttir
við þetta kerfi. Okosturinn er sá að ennþá
hefur SI ekki hækkað endurgreiðsluhlutfall
sitt og bitnar drjúgur hluti hækkana því
á sjúklingum. Hætt er við því að þetta bil
aukist ef ekki verða gerðir nýir samingar og
SI hækkar ekki endurgreiðsluhlutfallið.
Nú er að störfum nefnd á vegum vel-
ferðarráðuneytis til að skoða svokallaða
þjónustustýringu. Þetta er annað og
nýtískulegra orð yfir tilvísanakerfi. Vitað er
að ráðuneytið hefur lengi haft slíkt kerfi í
athugun í samræmi við þá stefnu að heilsu-
gæslan eigi að öllu jöfnu að vera fyrsti við-
komustaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
Fulltrúar LR í þessu nefndarstarfi hafa
verið Magni S. Jónsson fyrrum formaður
LR og Kristján Guðmundsson formaður
samninganefndar LR. LR hefur aldrei stutt
tilvísanakerfi og ávallt haft þá stefnu að
sjúklingar eigi að hafa frelsi til að velja
sér lækni. I störfum nefndarinnar hefur
mest verið rætt um vandann í heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins en eins og vitað er
þyrfti að fjölga heilsugæslulæknum veru-
lega ef taka ætti upp tilvísanakerfi. Ekki
virðist því blása byrlega fyrir þessum hug-
myndum nú frekar en endranær.
Læknar eru orðnir ýmsu vanir frá
hendi stjórnmálamanna en þó held ég að
ekkert hafi ennþá slegið út nýlega sam-
þykkt flokksráðsfundar VG þar sem gert
er ráð fyrir að starfsemi einkafyrirtækja í
heilbrigðisþjónustunni verði bönnuð. Þessi
fáheyrða ályktun var samþykkt þarna með
tilheyrandi fúkyrðaflaumi í garð lækna.
Engu skiptir þótt slík ákvörðun kynni að
brjóta í bága við stjórnarskrárvarin réttindi
lækna til að stunda sín störf á sjálfstæðum
læknastofum. Ef VG fengju að ráða yrðu
sjálfsagt engir samningar gerðir við sér-
fræðilækna. Spyrja má hvað mundi þá taka
við með heilsugæsluna og Landspítala á
hnjánum vegna fjárskorts og stjórnunar-
vanda. Mundu þeir 6-8 milljarðar króna
sem nú fara til sérfræðiþjónustunnar nægja
til að taka við 500.000 komum til lækna hjá
þessum aðilum?
Stjórn LÍ
Þorbjöm Jónsson, formaður
Valgerður Á. Rúnarsdóttir, varaformaður
Magnús Baldvinsson, gjaldkeri
Anna K. Jóhannsdóttir, ritari
Árdís Björk Ármannsdóttir
Orri ÞórOrmarsson
Salome Ásta Arnardóttir
Steinn Jónsson
Þórey Steinarsdóttir
( pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta
þeir sínar eigin skoöanir en ekki félagsins.
LÆKNAblaðið 2012/98 539