Læknablaðið - 15.10.2012, Blaðsíða 3
Þórður Þórkelsson, Jón Steinar Jónsson og Helgi Júlíus Óskarsson léku á als oddi.
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjómarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Tónelskir læknar á Rosenberg
Efnt var til tónleika á Café Rosenberg mánudagskvöldið 10. september þar sem fram komu læknar og
fluttu frumsamda tónlist í bland við lög eftir aðra. Fyrstur steig á svið söngoktett Jóns Steinars Jóns-
sonar, skipaður félögum hans úr karlakórnum Fóstbræðrum. Þá kom fram Þórður Þórkelsson og síðan
jasshljómsveit Guðlaugar Þórsdóttur ásamt Ingólfi Kristjánssyni og Bolla Þórssyni. Næstur var Ragnar
Danielsen og í kjölfarið fylgdi tríó þeirra Jóns Steinars, Þórðar Þórkelssonar og Helga Júlíusar Óskars-
sonar. Helgi kom síðan fram einn en á eftir honum steig Haukur Heiðar Hauksson úr Diktu á sviðið
og flutti frumsamin lög. Michael Clausen rak síðan smiðshöggið á dagskrána er hann kom fram ásamt
hljómsveit.
Að sögn Helga Júlíusar Óskarsson er skipulagði dagskrána er þegar búið að ákveða að gamanið verði
endurtekið þann 24. janúar 2013 á Læknadögum en þó með öðrum flytjendum úr læknastétt. Framboðið
á tónlistarmönnum úr röðum lækna mun slíkt að auðvelt væri að fylla dagskrá þriðja kvöldsins án þess
að til endurtekninga þurfi að koma, segir Helgi.
Blaðamaðurog
Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
10.900,- m. vsk.
Lausasala
1090,- m. vsk.
LISTAMAÐU R MÁNAÐARINS
Myndirnar á forsíðu eru úr röð verka eftir unga listakonu,
Önnu Hrund Másdóttur (f. 1981), sem lærði hér á landi í
Listaháskólanum. Um er að ræða Ijósmyndir sem virðast
sýna einhvers konar abstraktmálverk eða skúlptúr þar
sem litir flæða frjálslega innan sama end-
urtekna formsins. Þegar betur er að gáð
og heiti verkanna liggur fyrir, rennur upp
fyrir manni Ijós: Eyrnatappar (fyrir Roni
Horn), 2010. Hvert verk er 50 x 70 cm að
stærð. Athygli manns er beint að hvers-
dagslegum hlut frá óvæntum sjónarhóli.
Það er leikur í þessum verkum Önnu
Hrundar því þau eru litaglöð og falleg og
það er óvenjulegt að sjá nauðaómerkilegri
fjöldaframleiðslu gert svo hátt undir höfði.
Hún lét sér ekki nægja að Ijósmynda
eyrnatappana, heldur vann með þá á
ýmsan hátt í töluverðan tíma; raðaði þeim,
flokkaði, teiknaði, málaði, gerði eftirmyndir í postulín og
leir og margt fleira. Þegar þessir kunnuglegu brúkshlutir
eru myndaðir og sýndir stórir, vekja þeir furðu og virka
hálfframandi. Hugurinn tekur á rás og maður veitir því
til dæmis athygli að verkfæri sem hefur þá virkni að úti-
loka hljóð er gert myndrænt - einu skynfæri er gert hærra
undir höfði en öðru. Leikurinn nær lengra því verkin eru
sett fram sem núningur og andsvar við listasögunni. Anna
Hrund tileinkar verkið bandarísku listakonunni Roni Horn
sem hefur vanið komir sínar til íslands
undanfarna áratugi. Mörg verka hennar
eru unnin hér á landi, meðal annars Ijós-
myndir hennar af uppstoppuðum fuglum.
Hún tekur mynd aftan á fuglshöfuð þannig
að við fyrstu sýn er ekki augljóst af hverju
myndin er. Strýtulaga form í ýmsum litum
teygir sig upp myndflötinn við hvítan bak-
grunn. Verkin eru án titils þannig að maður
þarf dálítinn tíma til að átta sig á að þetta
eru fjaðrir og hamur fugla. Anna Hrund
tekur nærmynd af ósköp venjulegum
eyrnatöppum úr litríku frauðplasti og
stækkar myndina þannig að tapparnir
minna óneitanlega mjög á fyrrnefndar fuglamyndir Horn.
í verkum listakvennanna er beitt sömu aðferð til þess að
villa um fyrir áhorfandanum og vekja hann til umhugsunar
um hvað hann er að horfa á.
Markús Þór Andrésson
Prentun, bókband
og pökkun ~
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaöiö
Læknablaöið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild, án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2012/98 507