Læknablaðið - 15.10.2012, Blaðsíða 38
UMFJÖLLUN O G GREINAR
„Stefnum fram af bjargbrúninni”
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Læknafélag Reykjavíkur og Félag
almennra lækna stóðu fyrir almennum
félagsfundi fimmtudaginn 20. septem-
ber þar sem rædd voru kjaramál lækna
og var tilefnið launahækkun velferðar-
ráðherra til handa forstjóra Landspítala.
Fundinn sóttu um 50 manns og voru flutt
fjögur framsöguerindi og síðan urðu al-
mennar umræður og samþykkt ályktun
til fjölmiðla.
Það dró óneitanlega mesta hitann úr
fundarmönnum að daginn fyrir fund-
inn hafði velferðarráðherra dregið hina
umdeildu launahækkun til baka en rétt
fyrir fundinn kom ráðherrann hins vegar
fram í Kastljósþætti Rúv og fullyrti þar að
meðallaun sérfræðings á Landspítala væru
í kringum 2 milljónir króna. Var mörgum
fundarmönnum heitt í hamsi vegna þessa
og urðu snörp skoðanaskipti á fundinum
um hvort og hvernig bregðast skyldi við
þessum ummælum sem menn vildu meina
að væru hrein ósannindi.
Þrátt fyrir að launahækkunin marg-
nefnda hefði verið dregin til baka var ljóst
af framsöguerindum að tilefni til að ræða
kjaramál lækna var ærið og þungur tónn í
frummælendum og þeim er tóku til máls
í kjölfarið.
Hættulegt að fá enga aðlögun
Gunnlaugur Sigmundsson sérfræðingur í
heimilislækningum ræddi vanda heilsu-
gæslunnar og benti á að dagvinnulaun
íslenskra heimilislækna eru um helmingi
lakari en í Svíþjóð. „í Noregi eru dag-
vinnulaunin 4-6 sinnum hærri en á ís-
landi." Hann gerði ennfremur samanburð
á vinnuálagi, fjölda sjúklinga í samlagi
hvers læknis, ræddi mönnunar- og ný-
liðunarvandann og setti í samhengi við
vinnuaðstæður og launakjör í íslensku
heilsugæslunni. Rekstrarform íslensku
heilsugæslunnar væri þar takmarkandi
þáttur en fjölbreytt rekstrarform í Svíþjóð
hafa aukið ásókn í heimilislækningar
meðal ungra lækna.
Gunnlaugur lauk máli sínu með þeim
orðum að hægt sé að vinna helmingi
542 LÆKNAblaðið 2012/98
minna í Noregi eða Svíþjóð fyrir helmingi
hærri laun.
Næst tóku til máls fyrir hönd almennra
lækna Hrönn Ólafsdóttir formaður hags-
munanefndar FAL og Ómar Sigurvin
Gunnarsson formaður félagsins. Þau birtu
launatöflur almennra lækna en þar kemur
fram að grunnlaun þeirra eru rúmlega 300
þúsund krónur. Síðar á fundinum kom
reyndar fram að við gerð síðustu kjara-
samninga lækna við ríkið var tekin sú
ákvörðun að „skilja almenna lækna eftir"
og leggja áherslu á hækkun launa sér-
fræðinga. Við þetta voru almennir læknar
mjög ósáttir en rök samninganefndar
voru þau að ekki hefði verið hægt að ná
fram hækkunum fyrir báða hópa í sama
samningi. Formaður samninganefndar
sagði það ákvörðun stjórna félaganna
hverjar áherslur yrðu helstar við næstu
kjarasamningagerð.
En þau Hrönn og Ómar bentu jafn-
framt á að til viðbótar hinum lágu launum
þyrftu almennir læknar að standa í
stöðugu stríði við yfirstjórn Landspítala
um að fá samningsbundin réttindi sín
virt og viðurkennd. „Það er mjög stirt að
fá fram samningsbundnar launaflokka-
hækkanir og námsferðir, enda sjáum við
að almennir læknar staldra mun styttra
við í starfi nú en áður og reyna að koma
sér sem fyrst í sérnám erlendis. Það eru
mjög fáir sem eru lengur en tvö ár í starfi
sem almennir læknar. Aðlögun í starfi
og kennsla í námsstöðum er algerlega
ófullnægjandi og almennir læknar eru
notaðir sem vinnudýr á spítalanum til
að halda hlutum gangandi. Þetta er auð-
vitað algerlega óásættanlegt. Það verður
að tryggja tíma til kennslu. Skortur á
aðlögun í starfi er ógn við öryggi sjúklinga
og dregur úr afköstum og starfsánægju.
Atvinnurekanda ber skýr lagaleg skylda
til að tryggja starfsmönnum aðlögun í
starfi og það sér hver maður hvað það
getur þýtt þegar ungur læknir sem hefur
aldrei komið í húsið er strax settur í vinnu
á gólfinu. Þetta er hættulegt og ógnar
öryggi sjúklinga. Vinnuveitandinn ætti að
sýna þessu áhuga. Allar aðrar starfsstéttir
innan spítalans fá greidda starfsaðlögun
nema unglæknar. Mikilvægt er einnig að
skilgreina mönnunarþörfina en stjórn spít-
alans hefur aldrei fengist til þess. Ástæða
þess að Félag almennra lækna fór að vinna
í þessum málum er mikil óánægja meðal
félagsmanna með starfsaðstöðu og kjör sín
og það er mjög óeðlilegt að þeir sem eru að
byrja feril sinn séu strax orðnir óánægðir
með hlutskipti sitt. Óánægjan nær einnig
til sérfræðinga og þetta er sannarlega
eitthvað sem stjórn stofnunarinnar ætti
að hafa áhyggjur af og einbeita sér að
úrbótum."
Ekkert útlit fyrir samninga
Næstur tók til máls Kristján Guðmunds-
son á Læknastöðinni í Glæsibæ. Hann
benti á að sérfræðingar hafa verið að
vinna á sama einingaverði í krónum
talið í fjögur ár. „Á sama tíma hefur allur
kostnaður hækkað, þannig að staðan er
einfaldlega sú að í dag eru færri krónur
eftir þegar búið er að greiða allan kostnað
en var áður. Við áttum fund með stjórn
Sjúkratrygginga á dögunum þar sem við
fórum fram á hækkun einingaverðsins.
Við bentum á að ef einingaverðið hefði
fylgt lögbundnum hækkunum væri hækk-
unin nokkurn veginn sú sama og fyrir-
huguð launahækkun forstjórans, eða um
25%. Við höfum verið mjög þolinmóð í
kreppunni en nú eru liðin fjögur ár."
Kristján varpaði síðan þeirri spurningu
út í salinn hvort þar væri einhver sérfræði-
menntaður sem hefði komið heim til starfa
frá 2008 og fékk engin viðbrögð. Kristján
sagði að lokum að í vetur stefndi í að sér-
fræðilæknar yrðu að brýna sig og seilast
enn frekar í vasa sjúklinga. „Einsog það
er nú skemmtilegt, en það er því miður
ekkert útlit fyrir að bryddað verði upp á
samningum við okkur í bráð."
Sigurður Guðmundsson sérfræðingur á
lyflækningadeild Landspítala og fyrrver-
andi landlæknir og forseti heilbrigðisvís-
indasviðs HI var síðastur frummælanda.
Hann ræddi um forgangsröðun í heil-
brigðismálum og í ríkisfjármálum almennt
og varpaði fram nokkrum spurningum
í upphafi máls síns. „Er niðurskurður