Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN
Aldur og kjör sjálfstætt
starfandi sérfræðilækna
Kristján
Guðmundsson
háls-, nef- og eymalæknir,
formaður samninganefndar LR
kristjang@centrum.is
Gera má ráð fyrir að hver íslendingur
hitti lækni 5 sinnum á ári. Þetta eru svo-
nefndar klínískar heimsóknir (mynd-
greininga- og rannsóknaþjónusta undan-
skilin) í heilsugæslu, sérfræðiþjónustu og
á göngudeildum sjúkrahúsa, þar með talið
læknavaktir og bráðamóttökur. Um 30%
þessara heimsókna er sinnt af svokölluðum
sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum. Sú
starfsemi hefur líka verið kölluð „opinn
krani". Frá apríl 2011 hafa engir samningar
verið í gildi milli Læknafélags Reykjavíkur
og Sjúkratrygginga íslands og á þeim tíma
hafa engar „bremsur" verið á starfseminni,
engir kvótar, afslættir eða takmarkanir
á gjaldliðanotkun. Fjöldi heimsókna og
heildarvelta hefur þó verið nánast óbreytt
árin 2010, 2011 og 2012, þó hefur tiltölu-
lega dýrum verkum fjölgað undanfarið,
meðal annars með lokun St. Jósefsspítala í
Flafnarfirði.
Sá hópur sem sinnir sérfræðilækningum
á stofu telur um 340 lækna og hefur staðið
nánast óbreyttur árum saman. Af þessum
hópi er áætlað að um 140 læknar starfi ein-
göngu utan sjúkrahúsa en um 200 læknar
séu líka í hlutastarfi á sjúkrahúsi.
Undirritaður skoðaði nýlega aldurssam-
setningu sjálfstætt starfandi sérfræðilækna
árin 2007 og 2012. Meðalaldur þessa hóps
hefur hækkað um 5 ár á þessum tíma, sem
þýðir á mannamáli að þar hefur engin
endurnýjun átt sér stað. Ef litið er til svo-
kallaðra verkeininga og skoðað hvernig
þær skiptast eftir aldri sérfræðinga, kemur
í ljós að árið 2012 var 33% starfseminnar
sinnt af læknum 60 ára og eldri en 2007
var þetta hlutfall aðeins 19%. Sama er að
gerast á hinum endanum. Árið 2007 voru
42% starfseminnar á hendi lækna 49 ára og
yngri en þetta hlutfall er dottið niður í 25%
árið 2012. í töflu I má sjá skiptingu verkein-
inga eftir aldursflokkum árin 2007 og 2012.
Samkvæmt upplýsingum frá Læknafélagi
íslands hafa mál þróast á svipaðan veg
annars staðar. Þannig hefur meðalaldur
heilsugæslulækna farið úr 50 árum í 54 og
sjúkrahúslækna úr 49 í 52 ár, reyndar frá
2007 til 2013. Þessi þróun er afleit, hvernig
sem á hana er litið. Ekki skal gert lítið úr
starfi reyndra lækna, en þegar nýliðunin er
svona léleg verður að bregðast við. Við vit-
um að sérfræðiþjónustan hérlendis er mun
ódýrari en sama þjónusta í nágrannalönd-
unum, löndunum þar sem ungir læknar
stunda sitt sérnám. Þar bjóðast þeim miklu
betri kjör, ekki bara á sjúkrastofnunum
heldur einnig í einkarekstri.
Svo lengi sem elstu menn muna hefur
aðgengi ungra sérfræðilækna að samningi
við Sjúkratryggingar, áður Trygginga-
stofnun, verið opið eða því sem næst.
Læknasamtökin hafa reynt að standa vörð
um þetta ákvæði gegnum tíðina enda talið
skipta miklu fyrir heimkomu lækna erlend-
is frá. Þeir hafa þá getað starfað á stofu og
jafnframt verið í hlutastarfi á stofnun. Þessi
hópur sem nú telur um 200 lækna á nokkuð
undir högg að sækja. Kjarasamningar eru
með þeim hætti að læknar í hlutastarfi
á sjúkrahúsi eru á lægra tímakaupi en
læknar í fullu starfi vegna svokallaðs helg-
unarálags og munar þá oft tugum prósenta.
Svona hefur þetta verið í á annan áratug og
er farið að torvelda mönnun á hlutastöð-
um. Svipuðu máli gegnir um laun yngstu
læknanna, þau eru nú satt best að segja
býsna lág miðað við námslengd og gera það
meðal annars að verkum að ungir læknar
koma sér nú sem fyrst úr landi. Þegar vandi
steðjar að heilbrigðiskerfinu er erfiðara að
leysa hann með vitlaust gefið frá byrjun.
Tafla I.
% af heildareiningum
Aldur 2007 2012
<40 5,21 0,91
40-44 9,93 11,80
45-49 27,07 11,91
50-54 17,33 26,34
55-59 21,77 15,83
60-64 10,31 19,15
65-69 5,71 9,09
70+ 2,68 4,79
Age and earnings of specialists
Kristjan Gudmundsson ENT-specialist, Medical Clinic,
Álfheimum 74, Reykjavík
Chairman, ambulatory services reimbursement committee
LÆKNAblaðið 2013/99 495