Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 38
UMFJÖLLUN OG GREINAR
Heilbrigðisráðherra tekur við yfirlýsingu frá 141 lækni starfandi erlendis um
þungar áhyggjur afástandi íslenska heilbrigðiskerfisins.
Barnalæknarnir Michael Clausen og Ingólfur Einarsson leita í
smiðju til Jóhanns Heiðars Jóhannssonar meinafræðings og íðorða-
smiðs.
Frummælendur á mál-
þinginu Læknarfimm
árum eftir hrun: Kristján
Guðmundsson háls-, nef-
og eyrnalæknir, Friðbjörn
R. Sigurðsson krabba-
meinslæknir, Þórarinn
Ingólfsson heimilislæknir,
Eyjólfur Þorkelsson
læknir á Egilsstöðum og
Hrönn Ólafsdóttir læknir
á Landspítala.
Auknar fjárveitingar fremur en fögur orð
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Aðalfundur Læknafélags íslands fór
fram í Hlíðasmára dagana 10. og 11.
október. Þrátt fyrir tvísýnt útlit um
framtíð heilbrigðisþjónustu á landinu
var ekki búist við miklum átakafundi;
læknar sammála að mestu um ástandið
og fljótlegt að koma sér saman um álykt-
anir þess efnis. Nokkur eftirvænting
var vegna ávarps hins nýja heilbrigðis-
ráðherra, Kristjáns Þórs Júlíusssonar,
ekki síst í ljósi nýframkomins fjárlaga-
frumvarps. Þá var einnig búist við því að
nokkrar umræður yrðu um ályktun varð-
andi framtíð Lækningaminjasafnsins í
Nesi en þar eru ekki allir sammála um
hvert hlutverk Læknafélaganna tveggja
skuli vera.
Heilbrigðisráðherrann
kom víða við í ávarpi
sínu (velferdarrad-
uneyti.is/raedur-
og-greinar-KTHJ-
radherra/nr/34166)
og boðaði frestun
framkvæmda við
nýjan Landspítala, en
kvaðst vongóður um
að sá niðurskurður
til Landspítalans sem
fyrirliggjandi fjárlaga-
frumvarp leggur til
yrði að einhverju leyti
dreginn til baka áður en frumvarpið yrði
að lögum. Hann gerði einnig að umtals-
efni möguleika á aukinni einkavæðingu
ákveðinna þátta heilbrigðisþjónustunnar
í formi verktöku en sagði jafnframt: „Ég
ætla mér ekki að opna fyrir einhverja
krana með handahófskenndri verktöku.
Það verður að vera einhver skynsemi í
framkvæmdinni. Ríkið á að bera ábyrgð
á heilbrigðisþjónustu í landinu líkt og lög
kveða á um en það er alveg hægt að fela
einstaklingum og fyrirtækjum að sinna
ákveðnum þáttum fyrir hönd ríkisins."
Orð ráðherrans vöktu vonir um að í
heilsugæslunni yrði einnig opnað fyrir
möguleika til einkareksturs: „Fjölbreyttari
rekstrarform koma einnig til greina þar
sem við sjáum að rekstur einkarekinna
heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu
hefur gefið góða raun, sömuleiðis starf-
semi sjálfstætt starfandi heimilislækna og
eins virðist vel hafa tekist til með rekstur
þessarar þjónustu í höndum sveitarfélaga
líkt og á Akureyri og á Hornafirði."
Þórarínn Ingólfsson formaður Félags íslenskra heimilislækna í ræðuslóli.
526 LÆKNAblaðið 2013/99