Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREIN Nýjar aðferðir við meðferð geðsjúkdóma - samvinna og sérhæfing utan spítala Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir og ráðgjafi um geðheilbrigði, Forvarnir ehf, Lágmúla 5, Reykjavík olafurfbstress.is Ef hlaupið er hratt yfir sögu sjúkdóms- greininga geðsjúkdóma og sálrænna með- ferða má segja að fyrst hafi verið um ein- staka frumkvöðla að ræða sem sátu einir á meðferðarstofum sínum. Með aukinni þekkingu og skipulagi heilbrigðisþjón- ustu færðist starfsemin inn á stofnanir og sjúkrahús. Þar fór síðan fram þjálfun geð- heilbrigðisstéttanna og samvinna þeirra þróaðist í teymisvinnu sem líkja mætti við hvert annað teymi nútímasjúkrahúss, til dæmis skurðstofuteymið. Við þessar að- stæður skapaðist ný þekking og sérhæfing í geðheilbrigðisþjónustu og má í þessu sambandi nefna sem dæmi bráðateymi eða teymi sem starfa að endurhæfingu geðsjúkra. Að auki hefur orðið vaxandi sérhæfing í meðferð ákveðinna sjúkdóma, til dæmis geðhvarfa- eða kvíðasjúkdóma, og er þessi þróun hliðstæð við framfarir í öðrum sérgreinum læknisfræðinnar. Fyrir nokkrum áratugum, þegar með- ferðastofnunum var lokað og legudeildum fækkaði, fluttist hin geðræna meðferð aftur út í samfélagið í meira mæli. Nýjungar í meðferðum, sérhæfing í geðheilbrigðis- þjónustu og teymisvinna er því í vaxandi mæli að þróast utan veggja spítala og í ýmsu formi, til dæmis í samfélagsteymi, á endurhæfingarstöðvum og í samvinnu geðlækna, geðhjúkrunarfræðinga, sál- fræðinga, iðjuþjálfa og fleiri starfsstétta við starfsfólk heilsugæslunnar og félags- þjónustunnar og við aðstandendur. Á undanförnum árum hefur verið gert átak í að auka slíka teymisvinnu á heilsugæslu- stöðvum. Sérstaklega má þar nefna aukin störf sálfræðinga í heilsugæslunni sem hefur reynst vel. Aukin samvinna og sér- hæfing af þessu tagi er einnig líkleg til að efla endurmenntun og starfsþjálfun starfs- fólks heilbrigðiskerfisins. Álag í heilsugæslunni er mikið. Lækn- arnir hafa of stuttan tíma til að greina og meðhöndla einstaklinga með flókin vanda- mál eins og geðsjúkdómar eru oft. Þó er það svo að langstærsti hópur sjúklinga með milda og meðaldjúpa þunglyndis- og kvíðasjúkdóma eru greindir og meðhöndl- aðir í heilsugæslunni. Til heilsugæslunnar koma einnig margir með geðræn einkenni þó það sé ekki ástæða heimsóknarinnar. Þar eru því kjörin tækifæri til forvarna og fræðslu og snemmgreiningar varðandi streitutengda geðræna sjúkdóma, áfengis- fíkn og mörg önnur geðræn veikindi. Aukinn stuðningur við heilsugæslu- lækninn með teymisvinnu, sérhæfingu eða vel skipulögðum háþróuðum sálrænum meðferðum er því mjög mikilvæg, hefur reynst vel þar sem hún hefur verið prófuð og mun vonandi þróast enn lengra. I þessu tölublaði Læknablaðsins er áhuga- verð grein þar sem fjallað er um áhrif sérhæfðrar sálrænnar hópmeðferðar og sagt frá nýrri íslenskri rannsókn á áhrifum hópmeðferðar og samspili hennar við hefð- bundnar lyfjameðferðir gegn sjúklegum kvíða og depurð. Umfjöllun höfunda og niðurstöður rannsóknarinnar eru hvetj- andi til þess að efla samvinnu lækna og sál- fræðinga í heilsugæslunni og að nota megi í meira mæli hópmeðferð sem hagkvæmt meðferðarform. Fram kemur að hópmeð- ferðarformið er áhrifaríkt við þessar að- stæður og að lyfjameðferðin styrkir áhrifin. Rannsóknir af þessu tagi, sem meta meðferðarárangur við raunverulegar að- stæður í heilbrigðiskerfi okkar, eru mikil- vægar og hvetja til aukinnar samvinnu og sérhæfingar og eru Iíklegar til að bæta skipulag og meðferðarferla og efla þannig þjónustuna við hinn sjúka. Vitað er að of stór hluti þeirra sem þjást af þunglyndissjúkdómum og sjúklegum kvíða fær ekki sjúkdómsgreiningu og einungis um helmingur þeirra sem fá sjúkdómsgreiningu býðst viðhlítandi með- ferð. Viðbótarmeðferðir og sérhæfðar, svo sem hópmeðferð, styrkja þá meðferð sem í boði er hjá heilsugæslunni og auka líkur á að sjúklingunum bjóðist áhrifamikil með- ferð. Og þegar spurst hefur út að sérhæfð meðferð af þessu tagi er í boði, eykur það eftirspurn eftir greiningu og meðferð og bætir líkur á að fleiri leiti sér meðferðar við geðsjúkdómum og eykur von um bata. Þetta er mikilvægt atriði, því þrátt fyrir að fordómar hafi dvínað er enn talsvert um að einstaklingar með geðsjúkdóma leiti sér ekki aðstoðar, sem er slæmt þegar haft er í huga að til eru áhrifaríkar meðferðir sem stöðugt eru í þróun. Heímildir 1. Grumbach K, Bodenheimer T. Can health care teams improve primary care practice. JAMA 2004; 291:1246-51. 2. Rosenthal TC. The medical home: growing evidence to support a new approach to primary care. J Am Board Fam Med 2008; 21:427-40. 3. Vermani M, Marcus M, Katzman M. Rates of detection of mood and anxiety disorders in primary care: a cescriptive, cross-sectional study. Prim Care Comp CNS Disord 2011; 13. A new approach in treatment of mental disorders. Teamwork and specific treatments Olafur Aevarsson, MD, PhD. Psychiatrist and Consultant in Mental Health. Forvamir-Preventia. Treatment, psychoeducation and rehabilitation, Lágmúla 5,108 Reykjavík. www.forvarnir.net LÆKNAblaðið 2013/99 497
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.