Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 43
Hvað er þetta með lækna og tónlist? Þröstur Haraldsson fyrrverandi blaðamaður Læknablaðsins og ritstjóri Bændablaðsins throsth@simnet.is Hér er kórinn Söngfjelagið á æfingu í Listasafni fslands á dögunum undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, undirleikari er Vignir Þór Stefánsson og Kristjana Stefánsdótlir er einsöngvari meðþeim. íþessum kór eru alla vega þrír læknar, Trausti Valdimarsson, Sveinn Rúnar Hauksson og Kristín Andersen. Eins og sést berlega á mynd Árna Möller af söngfélögum sínum skín brakandi lífsgleði og þróttur afkórnum öllum. Eftir að tónlistarhúsið Harpa reis á rústum Faxaskála og kolakranans ákváðum við hjónin að fara að stunda sinfóníutónleika og keyptum okkur miða í gulri röð. Það vakti athygli mína þegar tónleikatíðin hófst að á öllum konsertum var meirihluti þeirra tónleikagesta sem ég kannaðist við úr læknastétt. Allra handa læknar, ungir og gamlir, hjartaskurðlæknar sem kven- sjúkdómalæknar, geðlæknar og lýtalæknar, að ótöldum öllum heimilislæknunum. Hvað veldur? hugsaði ég en það var ekki fyrr en á nýliðnu sumri sem ég fékk þessa tilfinningu staðfesta, að hluta til í það minnsta. Þá rakst ég á grein í norska læknablaðinu um listfengi lækna.1 Hún var eftir tvo þarlenda lækna, Magne Nylenna og Olaf Gjerlow Aasland, en þeim fyrr- nefnda kynntist ég þegar hann var ritstjóri norska læknablaðsins um aldamótin. Hann heimsótti okkur í Hlíðasmáranum og ég tók viðtal við hann um nýtt skipulag heimilis- lækninga í Noregi. Mikið lesið og margvislegt Þeir félagar endurtóku rannsókn sem gerð var árið 1993 en þá voru lagðar sömu spurningar fyrir úrtak úr hópi virkra lækna í Noregi. í fyrra skiptið svöruðu tæplega 500 læknar spurningunum en árið 2010 hafði þeim fjölgað um helming, losuðu þús- undið. Spurt var um menningarneyslu og -virkni þátttakenda, hvort þeir hefðu lesið eitthvað annað en læknisfræði og þá hvað, hvort þeir hefðu sótt bíó, leikhús, óperu, tónleika - klassíska eða popp - síðasta árið. Einnig var spurt hvort þeir syngju í kór eða lékju reglulega á hljóðfæri, einir eða í hljómsveit. Niðurstöður þessarar könnunar voru bornar saman við rannsóknina frá 1993 og menningarneysla lækna við samsvarandi neyslu og virkni annarra háskólastétta eins og hún mælist í lýðfræðirannsóknum norsku hagstofunnar. Útkoman var ansi sláandi. Könnunin frá 1993 leiddi í ljós mikla menningarneyslu og -virkni lækna og samkvæmt niðurstöðum seinni rann- sóknarinnar hefur hún aukist umtalsvert á síðustu árum. Ef við byrjum á lestrinum var niðurstaðan sú að árið 1993 höfðu 48,2% aðspurðra nýlega lesið skáldsögu eða smásagnasafn en árið 2010 hafði hlutfallið hækkað í 69,9%. Á móti hafði dregið veru- lega úr lestri hópsins á bókum um sam- félagsmálefni (pólitík, listir, sagnfræði) og trúmál. Þá kom í ljós að blaðalestur lækna hafði minnkað talsvert minna en raunin var hjá öðrum stéttum. Ljóst er að lestrar- hestarnir lesa jöfnum höndum læknisfræði og aðrar bókmenntir. Önnur menningarneysla var einnig mikil. 81% aðspurðra höfðu brugðið sér í bíó á síðustu 12 mánuðum, 78% í leikhús og 47% í óperuna. Þarna hafði líka orðið aukning frá 1993 og reyndust karlarnir hafa aukið menningarneysluna heldur meira en konur í læknastétt. Samanborið við aðra hópa háskólafólks höfðu læknar verið heldur óduglegir við að fara í bíó en mun duglegri við leikhúsferðir og þeir voru næstum þrefalt líklegri til að fara í óperuna en aðrir háskólamenn. Þar er komið að tónlistinni og þar eru niðurstöðurnar ekki síður athyglisverðar. Þegar spurt var hvort fólk kynni á hljóðfæri svöruðu 58% þátttakenda því játandi og 21% kváðust spila reglulega en 13% að þeir syngju í kór eða lékju í hljómsveit. Tölur fyrir aðra hópa háskólamanna eru í sömu röð: 44%, 11% og 9%. Tónlistariðkun lækna hafði aukist verulega frá fyrri rannsókninni. Árið 1993 sögðust 8% aðspurðra vera virkir í tónlist en 13% árið 2010. Konur höfðu aukið virkni sína meira en karlar, fleiri konur en karlar sögðust kunna á hljóðfæri þótt fleiri karlar spiluðu reglulega á þau. Sé litið á einstaka hópa lækna eru geðlæknar virkastir í tónlist en 18% þeirra syngja í kór eða spila í bandi. Skurðlæknar virðast hafa minnstan tíma eða áhuga á tónlist því einungis 9% þeirra sögðust sinna henni reglulega sem iðkendur. Vörn gegn útbruna f báðum könnunum var einnig spurt um starfsánægju, heilsufar (að eigin mati) og streitu í starfi. í fyrri könnuninni var engin marktæk fylgni milli þessara þátta og menningarneyslu en það hafði breyst 17 árum seinna. Niðurstaða þeirra Nylenna og Aasland er sú að því duglegri sem læknar eru við að iðka og njóta menningar og tón- listar þeim mun meiri er starfsánægjan og minni hætta á útbruna. Þetta styðja aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið meðal heilbrigðisstarfsfólks á áhrifum menningar- virkni á starfsánægju þess og heilsufar. Þeir félagar taka það fram að enn skortir verulega á að tengsl menningarvirkni og vellíðunar hafi verið könnuð til hlítar. Þeir geti þó með góðri samvisku mælt með menningarlegri tómstundaiðkun, það sé alla vega ekki hægt að sjá í fljótu bragði að hún geti verið til óþurftar. Það er því ljóst að goðsögnin um hinn tónelska lækni er engin goðsögn. Enn á þó eftir að svara þeim spurningum sem vöknuðu með mér í Hörpunni. Hver er ástæðan fyrir því að hlutfall lækna meðal tónleika- og óperugesta er svona hátt? Af hverju kunna hlutfallslega fleiri læknar á hljóðfæri en aðrar stéttir menntamanna? Þarna er kjörið verkefni fyrir rannsakendur og ég efa ekki að Læknablaðið standi þeim opið til að greina frá niðurstöðunum. 1. Nylenna M, Aasland OG. Kulturell og musikalsk aktivitet blant norske leger. Tidsskr Nor Legeforen 2013; 133:1307-9. LÆKNAblaðið 2013/99 531
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.