Læknablaðið - 15.11.2013, Blaðsíða 32
UMFJOLLUN O G GREINAR
Complement C3
Complement
Boctertum
Macroptxage
Periosteum (P)
Höfuðkúpubrot. Birtist í Tlie Journal of Cranio-
Maxillofacial Trauma 1999; 5: tölublað 4.
Lifur. Birtist í Tlie Journal ofPractical Hygiene,
júli/ágúst 1999.
Temporal resuspension. Birtist íThe Journal
of Cranio-Maxillofacial Trauma 1999; 5:
tölublað 3.
þurfa að forgangsraða. Ég settist niður og
reiknaði út hve miklum tíma ég gæti varið
með dóttur minni fram að því að hún yrði
tvítug, byggi ég í Bandaríkjunum eða á fs-
landi. Munurinn hljóp á árum, hann var
svo mikill að það var aldrei nein spurning
- ég varð að fara heim. Þegar ég svo kom
heim var ég ekki með kúnnahóp sem ég
gat snúið mér að vegna samningsins sem
ég hafði undirritað. Ég þurfti eiginlega að
byrja alveg upp á nýtt og þá héðan frá ís-
landi. Greinin er eðlilega nánast óþekkt
hér á landi."
Hjördís hefur nýlokið rannsókn á
notkun myndefnis við heilbrigðisfræðslu
á íslandi með þeirri niðurstöðu að mikil
þörf sé fyrir markviss samskipti í heil-
brigðisfræðslu, fræðsluþarfir eru mis-
munandi og möguleikar læknisfræðilegra
teikninga eru að stórum hluta ónýttir á
íslandi. „Á íslandi er nánast engin útgáfa á
fræðsluefni fyrir aðra en sjúklinga, sem er
eðlilegt. Hins vegar skiptir notkun mynd-
máls í samskiptum og fræðslu sjúklinga
gífurlega miklu máli og gefur þeim
tækifæri til að taka ábyrgð á eigin meðferð
og eykur öryggi þeirra. Allir geta notið
góðs af aukinni notkun skýringarmynda
í fræðslu en þó sérstaklega þeir sem eiga
við náms- eða tungumálaörðugleika að
stríða, eiga við lestrarvanda að etja eða
skerta möguleika til að tjá sig."
Viðskiptavinir erlendis - starfstöð á islandi
„Það hefur tekið mig langan tíma að
byggja upp starfsgrundvöll að nýju en
það er reyndar komið á það stig að ég
get ágætlega unnið hér á íslandi fyrir
viðskiptavini erlendis, enda ekkert mál
að vera í samskiptum við fólk í gegnum
tölvubúnað hvar sem er í veröldinni
nánast."
Hún hampar nýútkomnu tölublaði af
hinu þekkta lýtalækningatímariti Plastic
artd Reconstructive Surgery - Joumal ofthe
American Society ofPlastic Surgeons þar sem
hún teiknaði skýringarmyndir við grein
Þóris Auðólfssonar lýtalæknis og fleiri
lækna sem starfa í Svíþjóð. Forsíðu tíma-
ritsins prýðir ein af teikningum Hjördísar
og inni í blaðinu eru svo 6 aðrar teikningar
hennar er fylgja grein Þóris og félaga. „Ég
var mjög ánægð með að fá forsíðumyndina
því þetta er auðvitað mjög góð kynning
fyrir mig í þessari grein lækninga."
Grein Þóris fjallar um lýtaaðgerðir á
fólki sem orðið hefur fyrir alvarlegum
skaða á andliti. Hjördís segir að þörfin
fyrir sérhæfðar teikningar komi skýrt í ljós
þegar fræðimenn vilja miðla ákveðinni
þekkingu. Ekki síst þegar lýsa á mörgum
stigum flókinna aðgerða, þar sem draga
þarf fram tiltekin smáatriði sem engin leið
er að sýna með ljósmyndum.
„Ljósmyndir sýna yfirborð hlutanna
og geta verið yfirfullar af smáatriðum
sem draga athyglina frá aðalatriðinu. Með
teikningu er hægt að sýna handtök eða
aðferð frá sjónarhorni sem aldrei sést í
aðgerðinni sjálfri, og velja úr eingöngu
það sem skiptir máli. Þegar verið er að
lýsa aðferð eða aðgerð vinn ég í mjög nánu
samstarfi við höfund efnisins, hvort sem
hann er hjúkrunarfræðingur, læknir, tal-
meinafræðingur eða eitthvað annað. Hlut-
verk mitt er að miðla því sem fræðarinn
vill koma á framfæri á sem skýrastan hátt.
Þess vegna þarf ég að þekkja mannslíkam-
ann út í hörgul og kunna líffærafræðina
til að vita nákvæmlega hvaða taugar, æðar,
líffæri og bein er um að ræða. í náminu
vorum við heilan vetur að kryfja lík, 30
tíma á viku í 9 mánuði og annan vetur að
fylgjast með skurðaðgerðum og teikna þær
upp frá öllum mögulegum sjónarhornum.
í Bandaríkjunum vinna teiknarar við alla
helstu spítalana og teikna skurðaðgerðir
þegar þess er óskað. Það er vegna þess að
teikning gefur aðra möguleika á miðlun
þekkingar en ljósmynd, en svo fá ljós-
myndarar alls ekki alltaf að vera við-
staddir skurðaðgerðir, svona svipað og í
bandaríska dómskerfinu."
Samstarf þeirra Hjördísar og Þóris
var að hennar sögn með þeim hætti að
hann bað hana um að gera teikningar
við greinina. „Þetta er mjög tímafrek og
þarafleiðandi kostnaðarsöm vinna en í
alþjóðlegum læknisfræðilegum sérgreina-
tímaritum eru gerðar strangar kröfur um
gott myndefni með greinum. Annars fást
þær einfaldlega ekki birtar. Þetta getur
því verið kostnaðarsamt fyrir höfundinn/
520 LÆKNAblaðið 2013/99
j