Læknablaðið - 15.11.2013, Qupperneq 30
UMFJOLLUN O G GREINAR
BrjóstapúÖi. Birtist í tímaritinu Esthetique, sumariö 2000.
Meðfylgjandi teikningar eru skannaðar úr viðkomandi tímaritum og myndgæði því síðri en ella. Útgefandi tímaritanna er Montage Media Corporation.
Teiknaðar myndlýsingar
í læknisfræði
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Hjördís Bjartmars er líklega eini íslend-
ingurinn sem lokið hefur prófi í læknis-
fræðilegri myndlýsingu, og er ein örfárra
með slíkt próf á Norðurlöndunum. Hún
hefur starfað hérlendis frá árinu 2002
eftir að hafa stundað nám og unnið í
Bandaríkjunum um tíu ára skeið.
„Það blundaði alltaf í mér að fara út í líf-
fræðitengt nám eða myndlist en hvort
fyrir sig höfðaði ekki til mín. Ég fór í
áhugasviðspróf í menntaskóla, svokallað
Strong-próf, og þar kom fram að starfið
„medical illustrator", gæti átt vel við mig.
Ég hef þýtt starfsheitið á íslensku sem
læknisfræðilega teikningu, en líklega er
betra að tala um myndlýsingu fremur en
Facial nerve
Masseter nerve
Masseter-andlitstaug. Birtist í og á forsíðu tímaritsins Plastic
and Reconstructive Surgery - Journal of the American Society of
Plastic Surgeons 2013.
teikningu. Enda margs konar teiknaðar
myndlýsingar sem fengist er við í þessu
starfi," segir Hjördís.
Hún segir áhöld um hvaða orð á ís-
lensku henti starfsheitinu best, krafan sé
að sjálfsögðu sú að starfsheitið nái utan
um alla þætti starfsins og sé um leið auð-
skiljanlegt. „Það væri líklega réttara að
tala um heilbrigðisfræðilega teikningu þar
sem viðfangsefnin snúast ekki eingöngu
um læknisfræði, en þetta hefur fest við
mig. Þar sem ekki eru beinlínis margir að
fást við þetta hef ég nánast haft sjálfdæmi
um starfsheitið."
Fjölbreytt og krefjandi nám
í kjölfar áhugasviðsprófsins vaknaði
forvitni hennar og hún kynnti sér hvað
medical illustrator snerist um. „Mér leist
feykilega vel á þetta og fann strax að þetta
myndi henta mér vel, þar sem ég hafði
bæði áhuga á myndlist og einnig þennan
mikla áhuga á læknisfræðilega tengdum
greinum. Með þessu gat ég slegið margar
flugur í einu höggi."
Val á skóla var ekki einfalt þar sem
þetta er kennt á fáum stöðum og helst
í Bandaríkjunum. „Þetta var mjög dýrt
nám og á þessum árum var ekki hægt að
fá námslán fyrir skólagjöldum, sem voru
mjög há í Bandaríkjunum. Ég fann skóla,
Rochester Institute of Technology í New
York-fylki í Bandaríkjunum, þar sem ég
gat í rauninni stundað samtímis nám á
J
518 LÆKNAblaðið 2013/99